Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Tectonics-tónlistarhátíðin hefst í dag í Hörpu og stendur yfir í tvo daga. Sinfóníu- hljómsveit Íslands stendur fyrir hátíðinni og sem fyrr er Ilan Volkov listrænn stjórnandi hennar. Þetta er í fimmta sinn sem hátíðin er haldin. Áhersla er á nýja tónlist og verða haldnir átta tónleikar. Dagskráin stendur yfir frá kl. 18-23 báða dagana og fer fram í Eldborg, Norður- ljósum og opnum rýmum Hörpu. Meðal listamanna sem koma fram auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru Roscoe Mitchell (Bandaríkin), Peter Ablinger (Austurríki), Goodiepal (Danmörk) og Séverine Ballon (Frakkland). Tectonics er gjarnan auglýst sem óvenjuleg tónlistarhátíð en hver er helsta sérstaða hátíðarinnar? „Það eru fleiri sin- fóníuhjómsveitir í heiminum að gera svip- aða hluti, og Tectonics er líka haldin á nokkr- um stöðum. Enn frem- ur eru líka til sambæri- legar hátíðir þar sem verið er að reyna að setja sinfóníuhljóm- sveitir í nýtt samhengi. En það sem er mjög sérstakt við hátíðina hér á landi er að það er búið að kanna nýj- ar lendur í verkefnavali innan Sinfóníu- hljómsveitarinnar á þessari hátíð. Það eru tónskáld sem hafa nánast ekki heyrst á Ís- landi sem eru orðin klassísk í samtíma- tónlist sem eru fyrst flutt í samhengi við Tectonics,“ segir Berglind María Tómas- dóttir, verkefnastjóri hátíðarinnar. Tectonics var fyrst haldin af Sinfóníu- hljómsveitinni árið 2012 en hefur síðan ferðast til Glasgow, Adelaide, New York, Tel Aviv og Óslóar. Mismunandi stefnur mætast Berglind María segir að annað óvenju- legt við hátíðina sé að þar mætist mismun- andi tónlistarstefnur; Sinfóníuhljóm- sveitin mæti öðrum geirum tónlistar. „Bæði hafa margir raftónlistarmenn kom- ið fram og fólk sem vinnur á mörkum myndlistar og tónlistar og fleira,“ segir hún. Er þetta þá leið til að ná til nýs hóps sem er ekki fastagestur á Sinfóníutón- leikum? „Já, vonandi. Það er komin hefð á hátíð- ina á Íslandi þannig að fólk sem fylgist með veit að hverju það gengur. En við er- um alltaf að reyna að þróa hlutina áfram og prófa. Það sem er kannski nýtt í ár er að það er óvenjulega mikið samstarf við Listaháskólann, sem er fengur fyrir báða aðila,“ segir hún og nefnir í því samhengi málstofu sem fór fram fyrr í vikunni um stöðu sinfóníuhljómsveita í samtímanum. Sinfóníuhljómsveitin frumflytur alls sjö ný verk, sem flest verða frumflutt á heims- vísu á hátíðinni. Höfundar þessara verka eru Jim O’Rourke, Peter Ablinger, Roscoe Mitchell, Frank Denyer, Davíð Franzson, Þráinn Hjálmarsson og María Huld Mark- an Sigfúsdóttir. Auk þess koma fram í Norðurljósasal Hörpu Borgar Magnason, Kira Kira, S.L.Á.T.U.R. og fleiri. Verk samin inn í rýmið Jafnframt verða flutt ný verk í opnu rými Hörpu eftir Inga Garðar Erlendsson og Hafdísi Bjarnadóttur. Í verkum í opnu rými fá gestir að njóta krafta Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nemenda Listaháskóla Íslands, Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts og Skólahljóm- sveitar Kópavogs. „Það er svo magnað við bæði verkin sem eru flutt í opna rýminu að það er verið að vinna mikið með rýmið. Þau eru samin með rýmið í huga. Verk Hafdísar stjórnast af hreyfingu ljósanna í glerhjúpnum, þau elta hreyfinguna í hljóðum. Verkið hans Inga er síðan byggt upp í kringum stóra stigann í anddyrinu sem nær upp á aðra hæð. Þarna er hægt að upplifa Hörpu á nýjan hátt.“ Helsti gestur hátíðarinnar í ár er saxó- fónleikarinn Roscoe Mitchell. „Það er mik- ill fengur að komu þessa merka tónlistar- manns sem er einn af stofnmeðlimum the Art Ensemble of Chicago og á að baki afar farsælan feril sem spannar áratugi,“ segir í tilkynningu. Roscoe Mitchell flytur eigin tónlist en einnig mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk eftir hann í nýjum hljóm- sveitarútsetningum. „Lokatónleikarnir verða líka mjög spennandi og mikil veisla. Kira Kira verð- ur með svo marga á sviðinu, með risastórt band, kór og vídeó. Svo er Goodiepal með verk sem er ekki flutt hefðbundið á sviði heldur er það rýmisverk. Hann verður með stóran hóp flytjenda með sér,“ segir Berglind María að lokum. Nýjar lendur kannaðar  Tectonics-tónlistarhátíðin hefst í Hörpu í dag  Alls verða átta tónleikar haldnir á tveimur dögum  Áhersla er á nýja tónlist  Helsti gestur hátíðarinnar í ár er saxófónleikarinn Roscoe Mitchell Gestur Roscoe Mitchell flytur eigin tónlist en einnig mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja verk eftir hann í nýjum hljómsveitarútsetningum. Ljósmynd/Elvira Faltermeier Berglind María Tómasdóttir Stjórnandi Listrænn stjórnandi og stofnandi hátíðarinnar er Ilan Volkov. FIMMTUDAGUR 14. APRÍL  Norðurljós klukkan 18: Peter Ablinger: Voices and Piano, Flöte und Rauschen, TIM-Song. Berglind Tómasdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir, Peter Ablinger.  Opið rými Hörpu kl. 19: Hafdís Bjarnadóttir: Sveimur (frumflutn- ingur). Hugleiðing um Sveim // Sveimur-Spinoff (frumflutningur). Samstarfsverkefni Hafdísar og nemenda við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Guy Wood. Flytjendur: Hafdís Bjarnadóttir, Sig- urður Halldórsson, Guy Wood, Ung- sveit og meðlimir Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, nemendur Listaháskóla Íslands.  Eldborg kl. 20: Jim O’Rourke: Come Back Soon (Evrópufrumflutn- ingur), Davíð Brynjar Franzson: On Matter and Materiality, fyrir selló og hljómsveit. Frank Denyer: a linear topography (frumflutningur). Flytj- endur: Sinfóníuhljómsveit Íslands, Séverine Ballon selló, hljómsveitarstjóri: Ilan Volkov.  Norðurljós kl. 21.30: Roscoe Mitchell flytur eigið efni á saxófón. Borgar Magnason flytur eigið efni á kontra- bassa. FÖSTUDAGUR 15. APRÍL  Norðurljós kl. 18: Steingrímur Ro- hloff: Magic Number (frumflutn- ingur), Evan Johnson: dozens of ca- nons: Anaïs Faivre Haumonté (frumflutningur). Flytjandi: Séverine Ballon selló. Hlynur Aðils Vilmarsson: Svíta fyrir sjálfspilandi dórófón (frumflutningur). Johan Svensson: Verk fyrir víólu og dóró- fón (Íslandsfrumflutningur). Hafdís Bjarnadóttir: Febrúardagur, fyrir dórófón, rafhljóð og harmónikku.  Opið rými Hörpu kl. 19. Ingi Garðar Erlendsson: Stig- inn / Stigin : fyrir tvær blásarasveitir (frumflutningur). Flytjendur: Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts, Skólahljómsveit Kópavogs.  Eldborg kl. 20: Peter Ablinger: Quartz, Roscoe Mitchell: Conversa- tions for Orchestra (frumflutn- ingur). Þráinn Hjálmarsson: As heard across a room, María Huld Markan Sigfúsdóttir: Aequora (frumflutningur). Flytjendur: Sin- fóníuhljómsveit Íslands, hljómsveit- arstjóri: Ilan Volkov.  Norðurljós kl. 22: Kira Kira: Call it Mystery – Alchemy For Impatience (Evrópufrumflutn- ingur) og Gefum í (frumflutningur). Goodiepal: My Mot- or Skills Have Failed (frumflutningur). Nánar á tectonicsfestival.com. Miðasala fer fram í Hörpu og á sinfonia.is og harpa.is. TECTONICS REYKJAVÍK Tónleikadagskráin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.