Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 82

Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Meðal þess sem skjölin sem lekið var frá lög- fræðistofunni Mossack Fonseca í Panama hafa leitt í ljós er að aflandsfélög hafa verið notuð til að fela eignarhald á verðmætum listaverkum. Samkvæmt The New York Times hefur þó ekki verið sannað að þessi huldufélög hafi verið not- uð, eins og sumir telja, til að leika á myndlistar- markaðinn, komast hjá skattgreiðslum eða „þvo“ peninga. Fyrir níu árum var safn módernískra meistaraverka sem Ganz-hjónin í New York höfðu safnað selt á uppboði hjá Christie’s fyrir metfé, 206,5 milljónir dala. Um 25 milljarða króna á gengi dagsins í dag. Panamaskjölin sýna að verkin voru ekki seld beint af Ganz- fjölskyldunni, eins og talið hefur verið, heldur að breski kaupsýslumaðurinn Joe Lewis, eig- andi knattspyrnuliðsins Tottenham FC, hafði leynilega keypt allt safnið í gegnum aflands- félag nokkrum mánuðum fyrr. Listaverk eftir Picasso, Jasper Johns, Frank Stella og fleiri. Lewis, sem mun sjálfur vera ástríðufullur safn- ari, keypti alls 118 myndlistarverk fyrir 168 milljónir dala og hagnaðist því verulega á söl- unni án þess að nafn hans kæmi fram. Dýrust voru tvö verk eftir Picasso; Draumur- inn frá 1932 var slegið hæstbjóðanda fyrir 48,5 milljónir dala og Konurnar frá Alsírborg (Út- gáfa 0) fyrir 31,9 milljónir. Það reyndist góð fjárfesting fyrir kaupandann því á dögunum var það selt aftur fyrir nær 180 milljónir dala. Panamaskjölin sýna einnig að rússneski millj- arðamæringurinn og myndlistarsafnarinn Dmitry E. Rybolovlev, sem hefur keypt verk eftir Da Vinci og fleiri snillinga fyrir meira en tvo milljarða dala, 250 milljarða kr., færði eign- arhaldið á listaverkasafni sínu á aflandsfélag þegar hann stóð í skilnaði árið 2008, til að eigin- konan gæti ekki gert kröfu í þau. Þá hefur franskur ríkisborgari í nokkur ár ár- angurslaust krafist þess að sér verði skilað verðmætu málverki eftir Modigliani sem hann segir nasista hafa rænt af afa sínum. Verkið var keypt árið 1996 af félagi sem er skráð í Panama og ekki hefur reynst unnt að gera kröfu á, en nú sýna skjölin að það er í eigu Nahmad- fjölskyldunnar, sem rekur víðkunn gallerí víða um lönd, og er í geymslu í Sviss. Saksóknari þar í landi hefur nú krafist þess að verkinu verði skilað. efi@mbl.is Upplýsingar um listaverk í leyniskjölum  Aflandsfélög hafa verið notuð til að fela eignarhald á verðmætum listaverkum AFP Verðmæti Talið var að Ganz-fjölskyldan hefði selt þetta verk eftir Picasso fyrir 31,9 milljónir dala en Panamaskjöl sýna að Joe Lewis seldi. AF FARÖLDRUM Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Heimasíðan Boardgamegeek-.com hefur nú verið starf-rækt í sextán ár, en þar er að finna hálfgerðan gagnagrunn um flestöll borðspil sem gefin hafa verið út í heiminum, allt frá hinu víðfræga Monopoly niður í íslensk stórvirki eins og Útvegsspilið og Verðbréfa- spilið. Á meðal þess sem gerir síð- una sérstaka í hugum spilanörda er listi, þar sem borðspilum er raðað eftir þeirri einkunn sem notendur síðunnar gefa spilunum. Á þeim lista hefur kaldastríðs- spilið Twilight Struggle lengst af trónað á toppnum, en því var „steypt af stóli“ um síðustu mánaðamót, eftir rúmlega tíu ára veru. Arftaki nafn- bótarinnar „Besta spil allra tíma,“ reyndist vera samvinnuspilið Pan- demic Legacy sem kom út fyrir síð- ustu jól, en það byggist á eldra spili sem heitir einfaldlega Pandemic. Leikmenn í Pandemic setja sig í spor sérfræðinga í faraldsfræðum, sem eiga að koma í veg fyrir að fjór- ir skelfilegir sjúkdómar leggi heims- byggðina alla að velli. Ólíkt mörgum spilum, þar sem leikmenn keppast um að bera sigur úr býtum verða þeir að vinna saman í Pandemic eða dæma mannkynið til útrýmingar. Og það er léttara verk en marg- an grunar að tapa illa í spilinu, því það er nánast sérhannað til þess að taka spilarana og rassskella þá ef þeir gæta sín ekki. Hjarta spilsins er í tveimur sér- hönnuðum spilastokkum, þar sem annar inniheldur það sem leikmenn geta gert, en hinn sýnir þær borgir sem verða fyrir barðinu á sjúkdómi. Útbreiðsla sjúkdómanna fjögurra er sýnd með því að setja glæra plast- kubba, einn til þrjá, ofan á þær borg- ir sem hafa orðið fyrir barðinu á þeim, og tryggir spilastokkurinn að nýjar og nýjar borgir bætast stöðugt í hópinn. En hvað gerist ef fjórði kubbur- inn bætist við eina borgina? Svarið er einfalt: sjúkdómurinn dreifir úr sér og allar nágrannaborgirnar fá einn sjúkdómskubb í viðbót. Ef spilar- arnir gæta sín ekki getur þarna haf- ist keðjuverkun sem leiðir til þess að viðkomandi sjúkdómur verður óstöðvandi. Þeir eru ófáir Pandemic-leikirn- ir þar sem allt hefur virst vera í himnalagi þangað til spilið tekur völdin án nokkurrar viðvörunar. „Ég held við munum ná að vinna þetta spil!“ er til að mynda setning sem er bönnuð við mitt spilaborð. Í hvert sinn sem einhver hefur misst hana út úr sér hefur eitthvað hræðilegt kom- ið upp á og nær öruggum sigri snúið í sárgrætilegt tap. Menn verða því alltaf að vera á tánum. Í nýja spilinu, Pandemic Legacy, bætist önnur vídd á þessa þróun, þar sem spilið „man“ hvað hefur gerst áður í því. Spilið fylgir eftir atburð- um eins árs, og lýsir hver spilun þess þá einum mánuði af árinu. Ef leik- menn tapa, þá endurtaka þeir mán- uðinn einu sinni, og reyna að vinna aftur. Spilið býður því upp á allt að tólf til 24 mismunandi spil, allt eftir því hversu vel eða illa leikmönnum gengur að hemja sjúkdómana fjóra. Spilið er í raun „forritað“ til þess að leiða leikmenn í gegnum ákveðna sögu, nánast eins og um hlutverkaspil væri að ræða. En á sama tíma mun hver spilahópur í raun skapa sína eigin sögu, sitt eigið Pandemic Legacy, þar sem allar gjörðir spilaranna munu hafa var- anlegar afleiðingar. Í mínum spila- hóp ákvað „gula veiran“ til að mynda að leggja Afríku nánast í rústir í fyrsta spilinu, með þeim af- leiðingum að það sem eftir lifir „árs- ins“ munum við þurfa að gæta þess vandlega að ástandið þar fari ekki enn frekar úr böndunum. „Ekki koma nálægt Kharto- um!“ heyrðist hrópað þetta kvöld. Höfuðborg Súdan var nefnilega orð- in hluti af „dauðaþríhyrningnum“ í Afríku ásamt Jóhannesarborg og Kinshasa. Óttinn við að þessar borg- ir myndu hreinlega leysast upp fór að stjórna öllum okkar gerðum. Öllu þessu er stýrt af þriðja spilastokknum, en innan hans leynist söguframvindan og þau verkefni sem leikmenn verða að leysa af hendi, ætli þeir sér að vinna spilið. Þau verkefni geta breyst á augabragði, og er þar með komin enn ein víddin inn í spilið. Stundum hefur spjald einnig að geyma þau fyrirmæli að eyðileggja sjálft spjaldið, svo önnur fyrirmæli þess komi aldrei fyrir aftur. Fyrir suma er þetta skelfileg upplifun, að taka hlut úr spilinu sínu og eyði- leggja það vísvitandi. Sem eigandi spilsins féll sú skylda í mínar hend- ur. Ég tók litla pappakortið í hendur mér, lokaði augunum og reif það. Um leið fékk ég svona „frelsistilfinn- ingu“, nú verður ekki aftur snúið. Engu að síður ákvað ég að geyma leifarnar, því að hver veit? Það segir kannski mest um þessa upplifun að þegar fyrsta spila- kvöldið var búið hafði hópurinn ein- ungis náð að spila sig í gegnum „febrúar-mánuð“. Tíu mánuðir bíða, fullir af óvissu og skelfilegum hætt- um. Engu að síður var þegar talað um hvenær næst yrði tekið til við baráttuna. Helsti galli Pandemic Legacy er sá, að eftir að „desember- mánuði“ lýkur, er spilinu í raun lok- ið. Það eina sem þá situr eftir er spilaborð, þar sem búið verður að skrásetja hina hetjulegu baráttu spilahópsins míns gegn sjúkdóm- unum fjórum. Ég veit ekki enn, hvort að við munum ná að halda þeim í skefjum. Ég veit hins vegar að ég hlakka mikið til þess að sjá hvað gerist næst. Það er ekki tilfinn- ing sem maður tengir oft við borð- spil. Er þetta besta borðspil í heimi? Morgunblaðið/RAX Pandemic Legacy Þeir eru ófáir Pandemic-leikirnir þar sem allt hefur virst vera í himnalagi þangað til spilið tekur völdin án viðvörunar. » „Ekki koma nálægtKhartoum!“ heyrðist hrópað þetta kvöld. Hæ sæti, hvað ert þú að borða? – fyrir dýrin þín Bragðgott, hollt og næringarríkt Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 AMH – Akranesi – sími 431-2019 | www.dyrabaer.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.