Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 85

Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 85
MENNING 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Fyrsta mynd leikstjóransRobert Eggers, TheWitch, eða Nornin, hefurfengið mikið lof gagnrýn- enda og verið kölluð ein óhugnan- legasta hryllingsmynd síðustu ára. Sögusviðið er Bandaríki landnema árið 1630, rúmum fimmtíu árum áð- ur en hinar sögufrægu og hryllilegu nornaveiðar og réttarhöld í Salem áttu sér stað. Þá sögu þekkja ef- laust margir í gegnum leikritið Eld- raunina (The Crucible) eftir Arthur Miller. Ég las viðtal við Eggers þar sem hann sagði frá því að kvikmyndin Rosemary‘s Baby eftir Polanski væri hans helsti áhrifavaldur. Þrátt fyrir að sögusviðið sé allt annað, er augljóst að áhrif frá hinum undir- liggjandi tryllingi sem einkennir myndir eins og til dæmis Rose- mary‘s Baby og The Shining eru sterk. Það sem gerir Nornina svo óhugnanlega er einmitt ekki enda- laus morð og viðbjóður eins og gjarnan er að finna í nútíma hroll- vekjum, heldur hlutirnir sem við sjáum ekki. Hryllingnum bregður aðeins fyrir í hröðum augnablikum þar sem áhorfandinn spyr sig, sá ég þetta? Sá ég þetta ekki? Vildi ég sjá þetta? Og sekkur enn dýpra of- an í bíósætið með hendur fyrir augu. Sagan fjallar um fjölskyldu púritana sem hrökklast frá land- nemabyggð vegna deilna og þau byggja sér nýtt heimili með nokkr- ar geitur í fátæklegum kofum í skógarjaðrinum. Trú þeirra er svo heit að það jaðrar við geðveiki, fað- irinn (leikinn af Ralph Ineson úr The Office) þylur upp vers úr Biblí- unni og hann, kona hans og börnin fjögur tala næstum illskiljanlega gamaldags ensku með norður- enskum hreim. Við skynjum hversu mikil hræðsla fylgir þessu nýja lífi þeirra í nýrri heimsálfu: þau hræð- ast hungur, hræðast villidýr, mögu- lega hræðast þau innfædda en að- allega hræðast þau guð og enda- lausa bölvun í helvíti. Hryllingurinn hefst þegar tán- ingsstúlkan Thomasine (leikin af Anya Taylor-Joy) er að passa yngsta soninn, ungbarn, sem hverf- ur nánast fyrir framan augun á henni, sporlaust. Í kjölfarið steypist líf fjölskyldunnar í gríðarlega sorg, endalausar bænir og ásakanir um að barnshvarfið gæti verið stúlk- unni að kenna. Auk þess telja þau líklegt að vesalings barnssálin sé komin til helvítis þar sem ekkert lík finnst. Það virðist sem allir fjöl- skyldumeðlimir hafi eitthvað að fela. Yngri bróðirinn Caleb (Harvey Scrimshaw) leiðir sakbitin augun af og til að blómstrandi barmi eldri systur sinnar, faðirinn selur silfur- bikar konu sinnar í laumi, og hin ungu og gríðarlega „krípi“ tvíburar segjast tala við svörtu geitina Black Philip á degi hverjum. Sviðsmyndin er öll grátóna, hér er rakt, rigning, umhverfið er í senn ömurlegt og skelfilegt. Áhorf- andinn virðist alltaf vita aðeins meira en persónur kvikmyndarinn- ar. Við sjáum afdrif ungbarnsins, þó aðeins í sekúndubrot, hrylling sem seint gleymist. Og það er eitt- hvað afar skrýtið við þessa geit. En allt í gegnum myndina vitum við ekki hvað er raunverulegt og hvað ekki. Er fjölskyldan á barmi móð- ursýki og sturlunar, er þetta allt ímyndun, eða er ógnin í skóginum raunveruleg? Einhvernveginn verð- ur áhorfandinn jafn vænisjúkur og fjölskyldan á hvíta tjaldinu. Atburðarásin spírallast svo út í gersamlega geðveiki og óhugnað og í lokin kemur svar við öllum spurn- ingum okkar um hvað er í raun og veru að gerast. Það sem mér fannst mjög vel út- hugsað og skemmtilegt í kvikmynd Eggers er hvernig hann notar sam- töl sem hann tekur beint upp úr gömlum heimildum um norna- réttarhöldin í Salem. Hann blandar táknum inn í myndina um hið „óeðlilega“ eins og þekkist í verk- um Shakespeares, hér eru dýr sem haga sér einkennilega: hérinn í skóginum, svört geit sem mögulega talar, svartur hrafn, geit sem mjólkar blóði. Einnig er að finna mjög táknrænar vísanir í ævintýr- in: norn bregður fyrir með rauða hettu, epli sem stendur í barni. Og svo er það undirliggjandi hræðslan við konur, hræðslan við þá töfra sem gerast þegar ung stúlka verður að konu, hræðslan við að konan sé í eðli sínu veiklynd og geti auðveld- lega snúist yfir á band djöfulsins. Í heildina er Nornin gífurlega vel leikin mynd, sviðsetningin frábær, stemningin óvenjuleg og óhugnað- urinn situr lengi eftir hjá áhorfand- anum. Yfirvofandi óhugnaður Nornin Gífurlega vel leikin, sviðsetningin frábær, stemningin óvenjuleg og óhugnaðurinn situr lengi eftir. Bíó Paradís The Witch (Nornin) bbbbn Leikstjóri: Robert Eggers. Aðalleikarar: Ralph Ineson, Kate Dicke, Anya Taylor- Joy og Harvey Scrimshaw. Bandaríkin 2015, 90 mínútur. ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON KVIKMYNDIR Harpa Þorvalds- dóttir mun flytja tónlist af nýút- kominni plötu sinni, Embrace, á hádegistón- leikum í Fríkirkj- unni í dag kl. 12. Harpa mun spila á píanó og syngja en Kristinn Svavarsson leika á saxófón. Lögin á plötunni eru frumsamin en eitt þjóðlag má einnig finna á henni. Aðgangseyrir er kr. 1.500 og ekki tekið við greiðslukortum. Flytur lög af Embrace Harpa Þorvaldsdóttir Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 naglbítar halda saman tónleika í Reykjavík og á Akureyri í kvöld og annað kvöld, þá fyrri í kvöld á Gauknum og þá seinni annað kvöld á Græna hattinum og hefjast hvorir tveggja kl. 22. Hljómsveitirnar þarf vart að kynna, „boðbera x-kynslóðarinnar“ eins og þeim er lýst í tilkynningu, og munu þær leika sín bestu lög. Hljómsveitirnar hafa ekki leikið saman á tónleikum síðan fyrir alda- mót. Ensími skipa Hrafn Thoroddsen, Franz Gunnarsson, Guðni Finnsson, Arnar Gíslason og Þorbjörn Sig- urðsson og 200.000 naglbíta þeir Vil- helm Anton Jónsson, Kári Jónsson og Benedikt Brynleifsson. Saman Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 naglbítar koma fram saman á tónleikum eftir ákaflega langt hlé, aðdáendum til ómældrar gleði. Ensími og 200.000 nagl- bítar saman á tónleikum HARDCORE HENRY 8, 10:25 MAÐUR SEM HEITIR OVE 5:30, 8 MY BIG FAT GREEK WEDDING 2 5:30, 8, 10:10 KUNG FU PANDA 3 5:30 ÍSL.TAL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.