Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. A P R Í L 2 0 1 6
Stofnað 1913 93. tölublað 104. árgangur
VIÐ DEYJUM Á
MARS EFTIR
JÓNAS REYNI
MARÍA MEÐ
ÓVENJULEGT
VERKEFNI
ÞORBJÖRG HLAUT
MORGUNBLAÐS-
SKEIFUNA
HAMFLETT OG SJÁLFDAUÐ DÝR 15 60. SKEIFUDAGURINN 4FRUMSÝNING 38
Sumarið gekk í garð í gær með þurrviðri og nokkurri hlýju. Margir vörðu
deginum úti við með fjölskyldum sínum. Þessi unga stúlka lét mála á sér
nefið í tilefni dagsins á fjölskylduskemmtun við Valsheimilið að Hlíðar-
enda. Von er á þurrviðri og hlýindum víðs vegar um landið í dag.
Sumardeginum fyrsta fagnað í góðu veðri
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ísland er með-
al þeirra þriggja
aðildarríkja
Efnahags- og
framfarastofn-
unar Evrópu
(OECD) þar sem
frjósemi hefur
dregist mest
saman frá árinu
2008, en hin tvö
eru Danmörk og
Eistland. Yfirleitt er miðað við að
frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn
á hverja konu til að viðhalda mann-
fjöldanum en árið 2013 lækkaði
hlutfallið hér á landi í 1,93 og var
það sama árið 2014. »8
Frjósemi dregst
saman á Íslandi
Barn Ísland skorar
lágt í frjósemi.
„Það mætti þyrma borginni við hóteli í kirkjugarðinum
og laga hann frekar til svo að hann geti orðið fallegur og
friðsæll minningarreitur um liðnar kynslóðir en ekki um-
ferðarreitur töskudragandi ferðamanna.“
Þetta ritar Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminja-
vörður, í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Vísar hann þar
til Víkurkirkjugarðs sem finna má við Landsímahúsið í
miðbæ Reykjavíkur, en garðurinn nær inn á byggingar-
reit þar sem áformað er að reisa stórhýsi á næstunni.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram
tillögu, sem nú er komin til borgarráðs til frekari skoð-
unar, þess efnis að horfið verði frá fyrirhugaðri fram-
kvæmd. „Um er að ræða elsta kirkjugarð Reykjavíkur,
þar sem um þrjátíu kynslóðir Reykvíkinga hvíla, og hafa
beinagrindur verið grafnar þar upp í stórum stíl og flutt-
ar á brott. En það er þvert gegn kröfum Minjastofn-
unar,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við blaðið. »4 og 20
Beinagrindur víkja fyrir hótelbyggingu
Morgunblaðið/Golli
Uppgröftur Búið er að fjarlægja margar beinagrindur.
Poppgoðið
Prince lést í gær
að heimili sínu í
Minnesota. Hann
fannst meðvitund-
arlaus í lyftu en
dánarorsök er enn
ókunn. Þó er ljóst
að hann hafði ver-
ið með flensu.
Fjölmargar
stjörnur hafa minnst Prince á sam-
félagsmiðlum. „Hann breytti heim-
inum! Sannur hugsjónamaður. Hví-
líkur missir. Ég er eyðilögð. Þetta
er ekki ástarlag,“ sagði Madonna á
Twitter og birti mynd af þeim. »17
Tónlistarmaðurinn
Prince látinn 57 ára
Látinn Poppgoðið
Prince lést í gær.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Af þeim 50 sem sóttu um hæli á Ís-
landi í janúar voru 15 annaðhvort
með fölsuð eða engin skilríki við
komu í Leifsstöð. Að sögn Ólafs
Helga Kjartanssonar, lögreglustjóra
á Suðurnesjum, fjölgaði slíkum til-
vikum á síðasta ári.
„Það er alveg ljóst að þetta byrjaði
að aukast í fyrra. Flóttamanna-
straumurinn hefur aukist, tölurnar
tala sínu máli,“ segir hann.
„Menn þurfa að vera mjög á varð-
bergi. Það er mjög mikilvægt að geta
styrkt rannsóknir á ferðaskilríkjum
og fylgst með því hverjir koma til
landsins,“ bætir hann við.
Ríkislögreglustjóri hefur skilað af
sér skýrslu til innanríkisráðherra
um Schengen-samstarfið og flótta-
mannavandann í Evrópu. Í henni
segir meðal annars að uppflettingum
lögreglu sem skiluðu niðurstöðu í
upplýsingakerfum Schengen hafi
fjölgað mjög á síðasta ári. Þá voru
þær alls 57, en í janúar á þessu ári
voru þær strax orðnar 12.
Þá segir einnig að áhrif ótrausts
eftirlits ytri landamæra Schengen-
landanna valdi fjölgun „óskráðra“ í
Evrópu. Aldrei hafi reynt á ókosti
samstarfsins eins og nú.
MFramtíð Schengen óvissu háð »6
Aukið álag
» Fleiri hælisleitendur koma
nú án skilríkja eða með fölsuð
skilríki til landsins.
» Uppflettingum lögreglu í
kerfum Schengen sem skila
niðurstöðum fer fjölgandi.
Fleiri óskráðir til Íslands
Lögreglustjóri segir úrbætur þurfa í rannsóknum á ferðaskilríkjum Ekki áður reynt
jafn mikið á ókosti Schengen Ríkislögreglustjóri skilar ráðherra mati á Schengen
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Frá efnahagshruninu 2008 hafa
hjónin Ingibörg Stefanía Pálmadótt-
ir og Jón Ásgeir Jóhannesson komið
að rekstri fjölda félaga í mörgum
löndum sem lítið hefur farið fyrir.
Mörg þessara félaga eru skráð í
Lundúnum, nánar tiltekið í bygging-
unni Guru House. Þaðan hafa þau og
samstarfsmenn þeirra stýrt umsvif-
unum í gegnum eignarhald á Guru
Invest S.A., félagi í Panama, sem á
fjárfestingarfélagið Guru Capital
Limited í Lundúnum.
Sumarið 2012 var Ingibjörg Stef-
anía sögð eigandi félagsins Moon
Capital í Lúxemborg. Um líkt leyti
kom hún í stjórn félagsins Rhapsody
Investments (Europe).
Síðar um sumarið 2012 varð Guru
Invest hluthafi í félaginu.
Böndin berast til Guernsey
Tvö félög, annað á Guernsey, virð-
ast tengd Rhapsody Investments
(Europe), sem er eigandi verslunar
Sports Direct á Íslandi.
Meðal félaga sem Guru Capital
hefur fjárfest í er alþjóðlega hús-
gagnakeðjan Norr11. Hafa þau Jón
Ásgeir og Ingibjörg Stefanía horft
til möguleika vefverslunar, meðal
annars í tískuvarningi. »10-11
Ljósmynd/Zoë Robert
Höfuðstöðvar Mörg félög eru skráð
í húsinu Guru House í Lundúnum.
Umsvif í
mörgum
löndum
Ingibjörg Stefanía
hefur fjárfest víða