Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS
Forsalan á 2017 vélsleðum
er í gangi til 6. maí
150.000 kr.- afsláttur af sleðum í forsölu
Verð frá 2.490.000 kr.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Dýr í allri sinni mynd, lifandi og dauð,
hafa alla tíð heillað listakonuna Ingu
Maríu Brynjarsdóttur. Í útskrift-
arverkefni hennar í myndlist frá
Listaháskóla Íslands vinnur hún með
dýr, dýramyndir, teikningar og einn-
ig úr hræjum ýmissa dýra. Hamur af
ketti, hræ af önd, þresti og stara og
rottu prýða verkefnið auk innyfla úr
þeim sem eru til sýnis í krukku. Þetta
er hægt að virða fyrir sér í Gerð-
arsafni í Kópavogi ásamt öðrum
meistaraverkefnum í hönnun og
myndlist en sýningin þar er opin til 8.
maí.
Dýr eru ekki rusl
„Ég hef alltaf teiknað mikið af
náttúru- og dýralífsmyndum og
áhuginn sprettur þaðan. Ég er með
fulla frystikistu af alls konar dýra-
hræjum sem ég hef safnað á síðustu
tveimur árum,“ segir Inga María.
Þetta byrjaði fyrir tveimur árum þeg-
ar hún fann dauða önd sem hún hirti
þegar hún fylgdi syni sínum í skól-
ann. Eftir það fjölgaði hræjunum óð-
um enda vinir og kunningar duglegir
við að benda henni á hræ sem þeir
höfðu rekist á. „Þessum dýrum er
hent í ruslið. Fyrir mér er þetta ekki
rusl því það er svo mikil fegurð í
þeim,“ segir Inga María. Á vissan
hátt hefur áhuginn og barnsleg for-
vitni um dýrin og lífið sjálft aldrei elst
af henni eins og flestum öðrum, bend-
ir hún á og hlær. Öll hræin sem henni
áskotnast myndar hún og skrifar nið-
ur sögu þeirra því öll eiga þau sína
sögu. Hluti af útskriftaverkefni henn-
ar er hamur af ketti sem Inga María
átti þegar hann var kettlingur. Kött-
urinn fór síðan til annarra eigenda.
Þegar hún frétti að honum yrði lógað
fékk hún að eiga hræið af honum.
Inga María hamfletti sjálf dýrin
sem hún notaði í sýninguna og segir
að það hafi ekki verið auðvelt til að
byrja með. „Ég vissi ekki hvort ég
myndi æla eða hver viðbrögðin yrðu.
En þetta var ekkert óðgeðslegt og
mun auðveldara en ég hélt. Ég var
ein og hafði rólega stemningu í kring-
um mig og gerði þetta af mikilli virð-
ingu fyrir dýrunum,“ segir Inga
María og segist finna ákveðið flæði
þegar hún hamflettir dýrin.
Ástæðan fyrir því að hún vildi
kynna sér dýrin innan frá er sú að
hún hefur alla tíð verið heilluð af þeim
og langaði að komast í betri tengsl við
þau. „Maður kemst ekki nær dýrinu
en að opna það. Ég teikna dýrin betur
og horfi á líkama þeirra og hvernig
innri byggingin er. Ég vinn ekki með
dauðann heldur líkamlega formið.“ Í
listsköpuninni vill hún fanga feg-
urðina í dýrunum og draga hana
fram.
Inga María er með töluvert af rott-
um í frystikistunni, sem hún fékk frá
meindýraeyði. „Ég hef mikinn áhuga
á rottum. Það vill enginn horfast í
augu við þær. Líkami þeirra er svo
ótrúlega sterkur og massaður,“ segir
hún og bætir við: „Við erum komin
svo langt frá dýrunum. Við viljum
ekki horfast í augu við þau og vitum
t.d. ekki hvaðan kjötið sem við borð-
um er komið.“
Tómur strigi og skotleyfi
„Tómur strigi. En teikningin fer
aldrei frá mér,“ segir Inga María,
spurð hver næstu skref verða eftir út-
skrift. Hún ætlar að halda áfram að
kafa dýpra, prufa sig áfram og gera
mistök. Jafnvel læra að stoppa upp
dýr. Einnig veltir hún því fyrir sér að
fá sér skotleyfi. „Fyrsta dýrið sem ég
myndi skjóta yrði jólamatur og ég
myndi nýta allt sem kæmi af því. Það
er eðlilegra að vita hvaðan kjötið
kemur frekar en að vita ekkert. Ég
hef ekki hugmynd um það hvort ég
get það eða ekki en ég á eftir að kom-
ast að því,“ segir Inga María Brynj-
arsdóttir.
Hamflettir rottur og sjálfdauð dýr
Hamflett dýr hluti af útskriftarverkefni Maríu Brynjarsdóttur í myndlist við Listaháskóla Ís-
lands Með fulla frystikistu af dýrahræjum Ætlar að fá sér skotleyfi og nýta allt af dýrinu
Morgunblaðið/Golli
Dýramyndir Inga María Brynjarsdóttir með myndir sínar af dýrum, sem hún sýnir á útskriftarsýningunni.
Útskriftarsýning MA-nemar í myndlist setja upp sýningu í Gerðarsafni.