Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er erfitt að lýsa þeim mikla snill- ingi sem Sigmund Jóhannsson var,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra. Hann þekkti Sigmund vel og mun minnast hans á Sigmundshátíð í kvöld. „Sigmund var einstakur. Enginn annar Íslendingur hefur með ærslum sínum og fölskva- lausri gleði náð því að láta morgun- stundir við lestur Morgunblaðsins breytast í hlátur dag eftir dag. Ég held að Sigmund hafi verið einfari í eðli sínu en hann gerði okkur öll sem töluðum saman um skemmtilegu myndirnar hans að félagsverum.“ Aldrei í peysufötum Guðni kvaðst oft hafa heimsótt Sig- mund og konu hans, Helgu Ólafs- dóttur, þar sem þau bjuggu við Breka- stíg í Vestmannaeyjum. „Það var dýrlegt að koma til Sig- munds og einstakt að fara með lista- manninum upp í turninn og sjá þegar hann var að undirbúa hárbeitta mynd næsta morguns. Svo fórum við í eld- húsið til Helgu þar sem var hlegið og sögur sagðar. Sigmund var grínsamur en hún alvarlegri. Þetta er mér allt ógleymanlegt,“ sagði Guðni. Sigmund teiknaði hátt í 200 myndir af Guðna á stjórnmálaferli hans. „Sig- mund sagði einhvern tíma við mig að hann myndi aldrei setja mig í peysu- fötin. Maddaman var alltaf í peysuföt- um. Þannig teiknaði hann formenn Framsóknarflokksins, Steingrím Hermannsson og Halldór Ásgríms- son, jafnan í peysufötum. Mig teikn- aði hann oft sem ríðandi víking á ís- lenska hestinum og með atgeir Gunnars á lofti. Sigmund var óskap- lega beittur.“ Sigmund lék á orgel sér og öðrum til skemmtunar. Hann átti það til að setjast við hljóðfærið og spila fyrir Guðna. „Stundum var Ísólfur Gylfi Pálmason með mér og þeir sungu saman en ég er laglaus eins og þjóðin veit. Ég hlustaði bara eins og lítið barn og naut þess,“ sagði Guðni. Í myndum Sigmunds er varðveitt mikil saga. Guðni sagði að ákvörðun þeirra Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar um að þjóðin eignaðist teikningar Sigmunds árið 2004 hefði verið mikilvægt skref. Áður en Sig- mund lést árið 2012 bað hann Guðna að sjá til þess að myndirnar sem þá stóðu út af, og höfðu verið teiknaðar eftir árslok 2004, yrðu einnig eign safnsins. Sigmund vildi að myndirnar yrðu varðveittar í Vestmannaeyjum. Ísfélag Vestmannaeyja og Vinnslu- stöðin gengu svo í það að kaupa myndirnar. Allt safnið er komið heim „Nú er safnið allt komið heim og því fylgir sú skylda að halda minn- ingu meistarans á lofti,“ sagði Guðni. „Þetta safn gæti orðið Lærði skólinn í húmor og teiknilist. Það er margt af Sigmund að læra. Hann gat með einni lítilli mynd sagt það sem þúsund orð gátu ekki lýst.“ -Kom aldrei fyrir að þér þætti erf- itt að vera myndefni Sigmunds? „Nei,“ sagði Guðni ákveðið. „Stjórnmálamennirnir sem ekki kom- ust að hjá Sigmund eða Jóhannesi Kristjánssyni eftirhermu og ekki í Spaugstofuna höfðu miklar áhyggjur af tilveru sinni. Við hinir, sem vorum á þessum stöðum, vorum í góðum málum! Þó að myndir Sigmunds væru auðvitað misjafnar, stundum ráðning og refsing og stundum heið- ur og hamingja, þá var betra að vera í höndum þessa meistara sem stjórn- málamaður en að vera gleymdur,“ sagði Guðni. Lærði skólinn í húmor og teiknilist  Myndir Sigmunds Jóhannssonar geyma sögu samtíma hans  Allt teikningasafnið á einum stað Forsetakosningar 1996 Myndin er frá 28. júní og teiknuð í tilefni af for- setakjörinu. Textinn var: „Ég er bara að æfa mig fyrir djobbið frú forseti...“ Guðni Ágústsson Í dag eru 85 ár liðin frá fæðingu Sigmunds Jóhannssonar, skopmyndateiknara og upp- finningamanns. Hann lést 19. maí 2012. Efnt verður til Sigmundshátíðar í Einars- stofu í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum kl. 20 í kvöld í tilefni af 85 árum frá fæðingu Sigmunds. Þar munu Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, Kristín Jóhannsdóttir, safnvörður Eldheima, Hlynur, sonur Sig- munds, og Jón Óli Ólafsson, sonarsonur Sigmunds, taka til máls. Ísfélag Vestmannaeyja og Vinnslustöðin hafa keypt um 1.000 myndir sem Sigmund teiknaði á árunum 2005-2008. Þær verða afhentar Vestmannaeyjabæ á hátíðinni. Sem kunnugt er keypti íslenska ríkið þann 15. desember 2004 um 10 þúsund teikningar eftir Sigmund. Þær voru gerðar að- gengilegar á vefnum sigmund.is og nú bætast nýrri myndirnar við það safn. Á hátíðinni verða sýndar á tjaldi um 150 myndir úr skopmynda- safni Sigmunds, ljósmyndasafni Sigurgeirs Jónassonar og úr fór- um fjölskyldu Sigmunds. Sigmundshátíð í Eyjum 1.000 MYNDIR AFHENTAR Sigmund Jóhannsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum annars vegar að fara að ræða forgangsmál ríkisstjórnar, sem við leggjum áherslu á, og hins vegar mál sem mikilvæg eru til að stjórn- kerfið gangi sinn eðlilega gang,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson forsætis- ráðherra í samtali við Morgunblaðið. Vísar ráðherrann í máli sínu til þess að formenn stjórnarandstöðu- flokka á Alþingi hafa verið kallaðir til fundar í for- sætisráðuneytinu klukkan 13 í dag til að fara yfir þau mál sem brýnt er að ljúka fyrir næstu kosningar. Þau mál sem ríkisstjórnin legg- ur einkum áherslu á snerta meðal annars velferðar- og heilbrigðissvið, fjármálamarkaði og afnám fjármagnshafta. „Þetta eru mörg mál og á hinum ýmsu mála- sviðum,“ segir Sigurður Ingi og bætir við að einhugur sé um það í ríkis- stjórninni hvaða mál þurfi að setja í forgang á þessu þingi. Sumarþing kemur til greina Sigurður Ingi segir aðalatriðið nú að sett verði fram áætlun um hvernig best sé að ljúka þessum málum. „Það er samtal sem við þurfum að eiga við stjórnarandstöðuna. Það er enn nægur tími til stefnu og hægt að hafa marga þingdaga fram að kosn- ingum, hvenær sem þær nákvæmlega verða. En aðalatriðið er að setja upp áætlun um hvernig við getum lokið þessu,“ segir hann. Spurður hvort sumarþing komi til greina kveður Sigurður Ingi já við. „Það er alveg inni í myndinni.“ Sumarþing í myndinni  Formenn stjórnarandstöðuflokka á Alþingi mæta í dag til fundar í forsætisráðu- neytinu  Þörf á áætlun um að ljúka mikilvægum málum, segir forsætisráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins réði niðurlögum elds sem kom upp í þaki einbýlishúss við Gunnarssund í Hafnarfirði í gærkvöldi. Engin meiðsli urðu á fólki en efri hæð húss- ins mun hafa skemmst talsvert, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Útkall vegna brunans barst um klukkan tíu mínútur yfir sjö í gær- kvöldi. Í fyrstu var talið að um minniháttar eld í þaki væri að ræða. Svo magnaðist reykurinn og fleiri tilkynningar um eldinn bárust. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn. Eldurinn kom upp nálægt vaktaskiptum svo að tvær vaktir mættu á vettvang og auka- mannskapur var kallaður út. Varðstjóri áætlaði að 25-30 slökkviliðsmenn hefðu verið á staðn- um þegar þeir voru flestir. Þegar mest var voru fjórir slökkviliðsbílar á staðnum auk körfubíla og sjúkra- bíla. Bæði þurfti að rífa og saga þak- ið til að komast að eldinum. Tals- verðan tíma tók að ganga frá. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Slökkvistarf Eldurinn var í þaki einbýlishúss við Gunnarssund. Eldur olli skemmdum  Eldur í einbýlis- húsi í Hafnarfirði EVE Fanfest, sem er bæði hátíð og ráðstefna tölvuleikjaframleiðand- ans CCP, hófst í gær. Hátíðin stend- ur yfir fram á laugardag og er eins og undanfarin ár haldin í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík. Alls er búist við að um 3.000 manns sæki hátíðina að þessu sinni, en þeirra á meðal eru erlendir gest- ir um 1.500 og verða yfir 50 blaða- menn frá mörgum stærstu leikja- og tæknimiðlum heims á svæðinu. Á hátíðinni kynnir CCP nýja leiki sína og verkefni á sviði sýndarveru- leika og segir Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, hátíðina fara vel af stað og skemmtilega stemningu vera að myndast. Um 3.000 á EVE-hátíð í Hörpu Morgunblaðið/Styrmir Kári Nýr heimur Þessi ungi maður er einn þeirra fjölmörgu sem fengu að prófa sýndarveruleika í Hörpu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.