Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu núna! Bókaðu snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir í sumar. Vegna mikillar sölu vantar okkur fasteignir á höfuðborgarsvæðinu, á söluskrá. Ef þú ert í söluhugleiðingum, endilega hafðu samband sem fyrst, í síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign, hafðu samband í síma 533-4200 eða arsalir@arsalir.is Ágæti fasteigna eigandi ! Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi. Margsinnis hefur verið bent á í blaða- greinum að undan- förnu hver óhæfa það sé að grafa upp forna kirkjugarðinn við Aðal- stræti til þess eins að þoka fyrir risahóteli (á íslenzkan mælikvarða). Kirkjugarðar hafa oft verið „grafnir“, sem svo var kallað fyrrum, ef kirkja var lögð af og byggð annars staðar. Þá voru bein manna öll graf- in upp og færð að hinni nýju kirkju. Þessi ákvæði fornra kirkjulaga eru staðfest af fornleifarannsóknum, svo sem á Hrísbrú í Mosfellssveit, þeirr- ar beinafærslu getur í Egils sögu, og á Stöng í Þjórsárdal. Einnig er þess getið við kirkjugarð í Sælingsdals- tungu. Líklegast hefur hinum fornu ákvæðum þó ekki verið haldið fast fram er aldir liðu. Í seinni tíð hefur komið fyrir að kirkjugarðar væru grafnir og bein færð í nýjan garð. Þannig var í Gufu- nesi árið 1968 er Áburðarverksmiðj- an var stækkuð og eins í Þorlákshöfn er garðurinn þar fannst við nýbygg- ingar en hafði verið týndur lengi. Þá voru lagaákvæði hvergi nærri svo föst um með- ferð slíkra kirkjugarða og beina úr þeim sem nú er, og segja má að almenningsálitið hafi þá látið sig minna varða varðveizlu fornminja. Í ófá skipti hafa komið upp mannabein á bæj- um þar sem kirkjur voru fyrrum og hefur þá verið með þau farið á ýmsan hátt. Gamli Vík- urkirkjugarður er þar sem menn hafa kallað „hjarta Reykjavíkur“, í miðjum kjarna borgarinnar. Honum var lengi takmarkaður sómi sýndur sem slíkum. Schierbeck landlæknir fékk að gera þar trjágarð sem enn má sjá, en umhirða hans hefur síðan verið með ýmsu móti og oft heldur slæm. Um hríð voru götur í kráku- stígum um garðinn og blómabeð af- mörkuð með hraunsteinum. Marg- sinnis hefur verið grafið í og umhverfis garðinn fyrir lögnum og þá oft raskað grafarró. Eitt sinn var stytta, sem vera skal til minnis um Skúla fógeta, sett niður einmitt þar sem menn ætla að kór kirknanna hafi verið. Við framkvæmdir á 6. ára- tugnum kom upp mikið af manna- beinum og þeim kastað upp á skurð- bakka. Var sagt í blöðum að einhverjir hefðu hirt þar höfuðkúpur úr uppgreftinum til að eiga. En þetta eru ekki rök fyrir frekari röskun og má nú vera nóg komið. Í hinni miklu hótelvæðingu lands- ins nú á að koma hér hótel og mun nýbygging þess ná inn í kirkjugarð- inn forna. Því er nú verið að grafa upp legstaði fólks, þó af vandvirkni og fyllstu aðgát og má sjá myndir af því í blöðum. Svo virðist hins vegar sem yfirvöld er leyfðu nýbyggingar hafi ekki gert sé grein fyrir að kirkjugarðurinn næði inn á bygging- arreit hótelsins og hefði það þó mátt vera augljóst af aðgengilegum heim- ildum. Í þokkabót kvað eiga að ganga inn í hótelið yfir kirkjugarð- inn og hlýtur því að verða þar mikil ös fólks og aukin bílaumferð um þröngt Aðalsræti. Kirkjugarðar voru fyrrum nefndir „helgir reitir“. Svo er nú komið að hvarvetna sem talað er um ferðamennsku býsnast menn yfir því ofurkappi sem virðist vera lagt í sífellda fjölgun ferða- manna, auknar hótelbyggingar og þá ekki sízt í miðborg Reykjavíkur þar sem ferðamennska og hótel- byggingar beinast helzt að því að ryðja brott sem mestu af hinni gömlu byggð borgarinnar, og hefur það tekizt að miklu marki víða. Í staðinn koma hótel, minjagripabúð- ir, búllur og veitingahús. Menn vilja fá fleiri ferðamenn, en þó er sam- tímis kvartað undan landskemmdum af fjölda ferðamanna, ófögrum timburpöllum og göngupöllum sem skemmi náttúrulega ásýnd landsins. Menn vilja bæði sleppa og halda. Enn er tími til að koma í veg fyrir þessi spjöll í miðborginni í Reykja- vík. Ætla mætti að nú sé nóg komið af ferðamannahótelum í sjálfum mið- bænum. Við Aðalstræti eru þrjú hót- el, og fjögur ef fer sem horfir með Herkastalann, við Kirkjustræti (og Thorvaldsensstræti) á nú að koma eitt, við Kirkjutorg er eitt, tvö eru við Pósthússtræti, eitt er að koma í Hafnarstræti og annað í Lækjar- götu, eitt kemur við Kalkofnsveg og eitt við Tryggvagötu. Allt gríðarstór hótel á okkar mælikvarða. Það mætti þyrma borginni við hót- eli í kirkjugarðinum og laga hann frekar til svo að hann geti orðið fal- legur og friðsæll minningarreitur um liðnar kynslóðir en ekki umferðarreitur töskudragandi ferðamanna. Reyna mætti að bæta í nokkru fyrir þau spjöll sem orðið hafa með útþurrkun minnismerkja úr garðinum. Hér má ekki láta pen- ingaöflin fara sínu stjórnlaust fram í miðborg Reykjavíkur. Ferðamenn kváðu nú orðnir nær sexfaldur íbúa- fjöldi landsins og þarf að flytja inn fólk til að annast þá, straumurinn orðinn okkur landsmönnum óviðráð- anlegur. Víkurkirkjugarður Eftir Þór Magnússon » Í hinni miklu hótel- væðingu landsins nú á að koma hér hótel og mun nýbygging þess ná inn í kirkjugarðinn forna. Þór Magnússon Höfundur er fyrrverandi þjóðminja- vörður. Í gamla daga heyrði maður oft menn og konur segja þegar ein- hverjir sýndu öðrum yfirgang og ósanngirni: „Svona gerir maður ekki, maður er nú einu sinni kristinn.“ Það eru sennilega liðin 25 ár síðan ég heyrði síðast svona tekið til orða. Það er ótrúlegt hvernig hægt er að einangra sumt í þjóðfélagsumræðunni, taka það út úr öllu eðlilegu samhengi og hamra á því neikvæðasta sem tengist atriðinu þar til fjöldinn hendir frá sér allri dóm- greind og trúir áróðrinum. Fjöl- miðlar ganga gjarnan í fararbroddi í áróðurshernaðinum og fréttamenn sem ættu að gæta hlutleysis vegna stöðu þess fjölmiðils sem þeir starfa við ganga gjarnan fremstir í flokki hlutdrægni og ófaglegra vinnu- bragða. Þessi áróðurstækni er slungin og auðvelt að láta blekkjast og fljóta með. Þeir sem standa fyrir áróðr- inum gera „grýlu“ úr málefninu og grýlan er tákngervingur þess sem er réttlaust og réttdræpt. Grýlan er leidd fram til grýtingar og dómstóll götunnar sér um að framfylgja dómn- um sem er aftaka án dóms og laga. Gott dæmi um þetta er umræðan um inneignir ráðamanna í svo nefnd- um skattaskjólum erlendis. Grýlan er svo mögnuð að ekki er tekið gilt þó fjáreignirnar séu taldar fram til skatts og greidd tilskilin gjöld af inni- stæðunum lögum samkvæmt. Áróð- ursherinn flæðir yfir allar slíkar út- skýringar og étur þær jafnharðan eins og engisprettur gras á akri. Jafnvel heyrist sagt að það skipti ekki máli hvort farið er að lögum eða ekki, svo sjúk getur umræðan orðið. Gott er að líta yfir sviðið frá víðu sjónarhorni. Stöndug fyrirtæki sem hefja rekstur sinn á Íslandi flytja starfsemi sína til útlanda og þar með atvinnu og skatta og telja með því hag fyrirtækisins betur borgið. Svo virðist sem almenningi finnist þetta réttlætanlegt. Einstaklingar sem þegið hafa skólagöngu sína á kostnað íslenska samfélagsins setjast að erlendis að námi loknu og sumir þeirra eiga aldr- ei eftir að endurgjalda uppeldi sitt með skattgreiðslum til samfélagsins hér heima. Þetta virðist þykja sjálf- sagt og eðlilegt. Skoðum þann samanburð sem kannski er nærtækastur. Fjöldi Ís- lendinga á fasteignir á erlendri grund sem kosta stórar fjárhæðir. Í um- ræðunni er ekkert amast við slíku enda skilar fasteignin sjálfsagt ein- hverjum aurum í eignaskatt til rík- issjóðs. Eignin er talin fram til skatts og allt er lögum samkvæmt. Aldrei hef ég heyrt nokkurn mann kalla eignir í þessari stöðu skattaskjól. Svo er það maðurinn sem á pen- inga í banka á Tortóla. Hann gefur upphæðina upp á skattframtali sínu og greiðir lögboðin gjöld af inneigninni til Ís- lands. Þá hefst apaspilið. Austurvallarherinn er allt í einu mættur á stað- inn „Þú þarna bölvaður glæpahundurinn þinn með allar þínar afla- ndskrónur sem svíkur þjóð þína og „platar“ skattstjórann til að segja að þú gefir „þýfið“ upp til skatts, snáfaðu í burtu frá mínu syndlausa augliti.“ Ekkert virðist hugsað út í það að sá sem á peningana getur á einum degi breytt þeim í fasteign og komið sér í allt aðra stöðu. Það að menn skuli fordæmdir fyrir að eignir þeirra erlendis eru í mis- munandi formi er varla sanngjarnt að öðru jöfnu. Ekki er réttlátt að ráð- herrar og aðrir sem gera sín skatta- skil samkvæmt lögum eigi allt sitt undir dómstóli götunnar. En auðvitað gefa þeir höggstað á sér í um- ræðunni, sem þvælast inn á „hand- sprengju-svæði“ fjármálaheimsins. Ef lög eru sniðgengin gilda allt önnur viðhorf. Banki sem tekur á móti peningum til vörslu og ávöxt- unar ætti að vera ábyrgur sé um ólöglegan feluleik varðandi með- höndlun fjárins að ræða. Við- skiptavinur bankans á ekki einn að taka skellinn af óvönduðum vinnu- brögðum fjármálastofnunar sem sniðgengur skattalög, þó svindlið sé hugsað í hans þágu. Alger tvískinnungur hefur verið hér í umræðunni og að kalla það lýð- ræði að ætla að flæma réttkjörna rík- istjórn frá völdum sem er með trygg- an meirihluta á þingi er náttúrlega ekkert annað en ofbeldi og „sýrlensk aðferðafræði“ til að knýja fram kosn- ingar. Mótmæli eru eðlileg þar sem ein- ræði ríkir og kosningar eru snið- gengnar, en menn verða að kunna að gera greinarmun á mótmælum og skrílslátum. Ef skrílslætin, sem nú eru látin helga málefnið, eftir að skipt var um forsætisráðherra, verða til þess að ríkisstjórnin hrökklast frá áð- ur en kjörtímabilinu lýkur þá skal stjórnarandstaðan, sem túlkar ólætin sem lýðræði, athuga að réttkjörnar ríkisstjórnir munu varla hér eftir sitja út kjörtímabilið. Afkristnunin í þjóðfélaginu mun sjá um að viðhorfið „líku skal líkt launa“ verður ráðandi viðhorf sem smám saman étur upp hefðbundna lýðræðislega starfshætti og enginn segir „Við erum nú einu sinni kristin þjóð“. Ég bið Íslendingum Guðs friðar. Lýðræði á fylleríi Eftir Ársæl Þórðarson Ársæll Þórðarson » Jafnvel heyrist sagt að það skipti ekki máli hvort farið er að lögum eða ekki, svo sjúk getur umræðan orðið. Höfundur er húsasmiður. Að sjálfsögðu er gott að heyra að mikill uppgangur sé víða í þjóð- félaginu, en er raunveruleikinn eins glæsilegur og af er látið ? Alla vega heyrist að skuldir séu víða miklar í rekstrarumhverfinu og því megi lítið út af bera svo illa geti farið. Nauðsynlegt er að við sýnum meiri fyrirhyggju en oft áður og byggjum upp á traustum grunni í stað froðuuppbyggingar eins og árin fyrir hrun. Snæddar voru gullkryddaðar steikur og drukkin eðalvín til að fagna miklum gróða og kerfið stóð agndofa yfir rekstrarsnilldinni þar til raunveruleikinn kom í ljós. Vonandi erum við ekki að sigla inn í svipað rekstrarumhverfi á ný með ýmsum hremmingum sem slíku fylgir. Eftir stóð almenningur með himinhá íbúðarlán, okurvexti, verðlaus hlutabréf, atvinnuleysi og fleiri skakkaföll meðan fyr- irhyggjufólk seldi sín hlutabréf í tíma og lagði afraksturinn inn á verðtryggða reikninga sem síðan voru tryggðir upp í topp af stjórn- völdum meðan aðrir misstu allt sitt. Fólk sem vill byggja upp af raunsæi. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Er froðuuppbygging í uppsiglingu ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.