Morgunblaðið - 22.04.2016, Side 14

Morgunblaðið - 22.04.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Haraldur Ingi Haraldsson mynd- listarmaður hlýtur starfslaun lista- manna á Akureyri að þessu sinni. Það var tilkynnt í mennningarhúsinu Hofi í gær, á Vorkomu Akur- eyrarstofu, árlegri samkomu á fyrsta degi sumars. Fleira var tilkynnt í samkvæminu:    Húsverndarsjóður Akureyrar veitti tvær viðurkenningar; annars vegar vegna Helgamagrastrætis 23 og hins vegar vegna brunns við Aðal- stræti 50.    Helgamagrastræti 23 er reisu- legt funkishús undir klassískum áhrifum, eins og segir í umsögn fag- hóps. „Það hefur nýlega verið gert upp af myndarskap og er frágangur þess utanhúss til eftirbreytni þar sem steining er endurnýjuð í sam- ræmi við upphaflega gerð. Hugsan- lega er húsið hannað undir áhrifum af þjóðernisrómantík eða hamrastíl Guðjóns Samúelssonar, húsameist- ara ríkisins. Það er hluti áhugaverðr- ar heildar funkishúsa í Helgamagra- stræti.“    Húsið hannaði og byggði Guð- mundur Tómasson, trésmiður og at- hafnamaður, árið 1944. Hann bjó í húsinu. Núverandi eigendur hússins Helgamagrastrætis 23 eru Guð- mundur Sveinn Sveinsson og Val- gerður Kristín Gunnarsdóttir.    Anna Guðný Sigurgeirsdóttir er eigandi hússins Aðalstrætis 50. Á lóðinni er að finna brunn sem sagður er hafa „mjög mikið fágætisgildi vegna aldurs og notkunar“ og „mikið umhverfislegt gildi vegna götumynd- ar Aðalstrætis“ og á lóð hússins, en hún er friðlýst. Í umsögn segir að þarna sé um að ræða einstakar frið- aðar minjar eða mannvirki sem mik- ils virði sé að varðveita. Viðgerð á brunninum er nýlega lokið.    Tvennt hlaut heiðursviðurkenn- ingu Menningarsjóðs Akureyrar; Er- lingur Sigurðarson, sem starfaði um árabil hjá Skáldahúsunum á Akur- eyri og vakti mikla athygli á verkum bæjarskáldanna Matthíasar Joch- umssonar og Davíðs Stefánssonar, og Gunnfríður Hreiðarsdóttir, sem hefur lagt mikið af mörkum til kóra- starfs í bænum með öflugri fé- lagsþáttöku og framlagi, að því er segir í tilkynningu.    Haukur Viktorsson arkitekt hlýt- ur byggingarlistarverðlaun Akur- eyrarbæjar 2016, fyrir þann átt í ævi- starfi hans sem snýr að bænum.    Haukur er Akureyringur, fæddur 1935, og nam arkitektúr í Stuttgart 1957-66. Hann var enn í námi þegar hann, ásamt Helga Hjálmarssyni, einnig námsmanni í Stuttgart, hlaut 2. verðlaun í samkeppni um skipulag miðbæjar Akureyrar 1963. Haukur hefur hannað nokkur íbúðarhús á Akureyri, „m.a. Hamragerði 31 (1969) sem er eitt af öndvegisverkum nútímabyggingarlistar á landinu. Aðrar byggingar: Þórunnarstræti 85, Kolgerði 3, Barðstún 7, Aðalstræti 65,“ segir í tilkynningu.    Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri afhentu á dögunum gjör- gæsludeild stofnunarinnar að gjöf fullkomna öndunarvél. Vélin er metin á tæpar tíu milljónir króna. Oddur Ólafsson forstöðulæknir sagði við það tækifæri að starf samtakanna væri frábært og án efa eitt það allra besta sem gerst hefði á Akureyri undanfarin ár. „Öndunarvélar eru kjarninn í starfsemi gjörgæslu- deilda,“ sagði Oddur.    Jóhannes Bjarnason, formaður Hollvinasamtakanna, sagði við þetta tækifæri að samfélagið væri mjög velviljað samtökunum og ljóst að margar fleiri gjafir væru væntan- legar á næstu misserum.    Komið er að síðustu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í vetur. Þeir eru í Hofi síðdegis á sunnudag, sannkölluð Mozart-veisla með skærustu stjörnum klassískrar tónlistar í dag, eins og það er orðað í tilkynningu, Daníel Bjarnasyni hljómsveitarstjóra og Evu Guðnýju Þórarinsdóttur fiðluleikara.    Flutt verður hin fallega og dular- fulla sinfónía nr. 40 í g-moll, fiðlu- konsert nr. 5 í A-dúr og forleikurinn að Brúðkaupi Figarós í Hofi þann 24. apríl 2016 kl. 16.    Hljómsveitin Todmobile heldur tvenna tónleika á Græna hattinum um helgina, í kvöld og annað kvöld. Eyþór Ingi Jónsson, Andrea Gylfa- dóttir og Þorvaldur Bjarni Þorvalds- son eru í framlínunni að vanda. Haraldur Ingi bæjarlistamaður á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vorkoma Unnar Jónsson form. Akureyrarstofu, Haraldur Ingi Haraldsson, Anna Guðný Sigurgeirsdóttir, Erlingur Sigurðarson, Gunnfríður Hreið- arsdóttir, Guðmundur Sveinn Sveinsson, Valgerður Kristín Gunnarsdóttir, Haukur Viktorsson og Þórgnýr Dýrfjörð, framkv. stjóri Akureyrarstofu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hollvinagjöf Sólveig Skjaldardóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á svæfinga- og gjörgæsludeild SAk, Oddur Ólafsson forstöðulæknir svæfinga- og gjörgæslulækninga, Jóhannes Bjarnason formaður Hollvinasamtakanna og stjórnarmennirnir Hermann Haraldsson og Kristín Sigfúsdóttir. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 VORLÍNAN ER KOMIN Í HÚS Liðsmenn Konunglegu bresku stór- skotaliðsherdeildarinnar, sem fagnar 300 ára afmæli sínu í vor, koma saman við hermannagrafreit- inn í Fossvogskirkjugarðinn í dag klukkan tvö. Þar verður fallinna fé- laga minnst, sem þjónuðu í sömu herdeild í breska setuliðinu á Ís- landi í síðari heimsstyrjöld. Athöfnin er liður í minningar- dagskrá herdeildarinnar sem hófst um mitt ár í fyrra. Þá var haldið af stað með kefli merkt herdeildinni frá stofnstað hennar í Woolwich á Englandi. Keflið hefur ferðast í vesturátt umhverfis jörðina með viðkomu á stöðum þar sem liðs- menn herdeildarinnar hafa fyrr og síðar komið við sögu. Ísland er síðasti viðkomustaður keflisins, en það verður afhent breska sendiherranum í Reykjavík á mánudag, áður en það verður flutt til Bretlands á ný. För keflisins lýkur formlega við hátíðlega athöfn í heimaherbúðum herdeildarinnar í Larkhill á Eng- landi á afmælisdegi herdeildar- innar, 26. maí. Konunglega stórskotaliðsher- deildin var stofnuð þann 26. maí 1716, en liðsmenn þriggja hersveita hennar taka þátt í aghöfninni í dag. Fyrirrennarasveit þeirra þjónaði sem hluti af setuliði Breta á Íslandi í síðari heimstyrjöld árin 1940- 1941. Bresk herdeild minnist fallinna félaga í dag Minningarreitur Minningarathöfn við hermannagrafreitinn árið 2010.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.