Morgunblaðið - 22.04.2016, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Kíkið á verðin eftir
tollalækkun
Æfingapeysa, hálfrennd
6.990 kr.
íþróttafatnaður
stærðir 36-46
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Það eru tvær spurningar sem þarf
að svara við fjárfestingar. Annars
vegar: hvað er best að kaupa; og
hins vegar: hvenær er best að
kaupa. Of oft virðast fjárfestar
gleyma að spyrja sjálfa sig seinni
spurningarinnar og getur leitt til
þess að þeir sitja uppi með stór-
fellda lækkun, enda eðli hlutabréfa
og skuldabréfa að ganga upp og
niður í bylgjum.“
Þannig útskýrir Sigurður B.
Stefánsson hagfræðingur eitt af
helstu áhersluatriðum bókarinnar
Lesið í markaðinn: eignastýring og
leitin að bestu ávöxtun. Bókina
skrifuðu þau Sigurður og Svandís
Ríkarðsdóttir, sjóðstjóri hjá Eigna-
stýringu Landsbankans, og er það
Crymogea sem gefur út í samvinnu
við Landsbankann.
Sigurður og Svandís stýrðu sam-
an vogunarsjóði á sínum tíma. Þeim
tókst að koma sjóðnum nokkuð far-
sællega í gegnum fjármálahrunið
og í framhaldinu kviknaði hjá þeim
sú hugmynd að skrifa bók um sögu
fjárfestingarhugsunar. Útkoman er
veglegt rit, rösklega 400 síður að
lengd, þar sem farið er ítarlega í
gegnum sögu nútíma verðbréfavið-
skipta um leið og lesandanum eru
kenndar helstu kenningar og að-
ferðir. Er bókin ætluð bæði fagfólki
og almenningi.
Viska gömlu meistaranna
„Til að leiða fram svörin við lykil-
spurningunum tveimur förum við
alla leið aftur til upphafs verðbréfa-
viðskipta á Wall Street, enda
fræðin á sviði markaðsviðskipta
nær öll komin frá Bandaríkjunum.
Við rekjum okkur áfram í gegnum
söguna og kemur þá í ljós að það
var gömlu meisturunum eðlislægt
að spyrja alltaf beggja spurning-
anna. Síðan verður klofningur um
miðja 20. öldina og upp rís skóli
nýrra kenninga, sem í dag er kall-
aður nýklassíski skólinn í fjármála-
fræði og kenndur við Chicago,“ út-
skýrir Sigurður.
„Lykilþáttur í hugsun Chicago-
skólans er að hreyfingum hluta-
bréfaverðs megi lýsa með „slembi-
rölti“ og áhættu fjárfestis megi
mæla með staðalfráviki ávöxtunar.
Þetta viðhorf þýðir í raun að því er
slegið sem föstu að ekki sé hægt að
svara seinni lykilspurningunni, þ.e.
hvenær er rétt að kaupa og selja,
enda viti enginn hvað morgun-
dagurinn beri í skauti sér.“
Til að skilja aðferðirnar
Sigurður og Svandís segja að
mikilvægt hafi verið í starfi þeirra
sem vogunarsjóðstjórar að þekkja
bæði nýju og gömlu kenningarnar.
„Það varð til þess að okkur tókst
giftusamlega að bjarga eignum fjár-
festanna sem lögðu traust sitt á
okkur, og er þeirri sögu stuttlega
lýst í bókinni. Bókina skrifuðum við
ekki bara til að fræða aðra, heldur
líka til að skilja sjálf betur þær að-
ferðir sem við höfum verið að vinna
eftir,“ segir Svandís, en efni bók-
arinnar er að hluta byggt á þeim
rannsóknum sem hún vann við skrif
meistararitgerðar sinnar í fjárfest-
ingastjórnun árin 2014 og 2015.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ráð Svandís Ríkarðsdóttir og Sigurður B. Stefánsson kafa m.a. ofan í þær
aðferðir og kenningar sem þau hafa sjálf stuðst við í fjárfestingum sínum.
Glímt við sveiflurnar
Ný bók rekur sögu verðbréfaviðskipta allt til árdaga Wall
Street til að sýna hvernig skynsamlegast er að fjárfesta
● Volkswagen hefur náð sam-
komulagi við bandarísk stjórnvöld
um að þýski bílaframleiðandinn kaupi
til baka nærri hálfa milljón dísilbíla.
Um er að ræða
bíla sem hafa að
geyma ólöglegan
búnað sem gefur
villandi nið-
urstöðu í útblást-
ursprófunum.
Wall Street Jo-
urnal segir að
þess megi jafnframt vænta að VW
greiði sekt og bætur og eiga fulltrúar
VW, stjórnvalda og eigenda VW-
bifreiða eftir að komast að niðurstöðu
um upphæðir. Sekt VW gæti, tækni-
lega, numið allt að 18 milljörðum dala
en sérfræðingar áætla að upphæðin
verði mun lægri en það.
Áætlað er að kostnaður VW af því
að kaupa til baka dísilbílana sem um
ræðir nemi um sjö milljörðum dala.
Munu eigendur eiga þess kost að ým-
ist láta laga bíla sína til samræmis við
útblástursreglur eða selja þá til VW.
ai@mbl.is
VW kaupir til baka hálfa
milljón bíla í BNA
Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna
tilkynnti á miðvikudag að ásjóna
frelsishetjunnar Harriet Tubman
myndi prýða framhlið 20 dala seð-
ilsins. Kemur hún í stað Andrew
Jackson, sjöunda forseta Banda-
ríkjanna, en Jackson verður færður
yfir á bakhlið seðilsins, að því er
CNN greinir frá. Er þetta í fyrsta
skipti sem bandarískir seðlar
skarta mynd af svartri konu.
Tubman lést árið 1913 í hárri elli.
Hún ólst upp sem þræll í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna en náði að
flýja ánauðina og í framhaldinu fór
hún ótalmarga björgunarleiðangra
og hjálpaði þrælum að komast í
frelsið í norðrinu. Eftir að þræla-
hald var gert ólöglegt var Tubman
áberandi í hópi þeirra sem börðust
fyrir kosningarétti kvenna.
Má vænta þess að nokkur ár líði
áður en seðlar með Tubman fara í
umferð. Samkvæmt Wall Street
Journal er áætlað að kynna útlit
nýja seðilsins árið 2020, þegar liðin
verða 100 ár frá því að bandarískar
konur fengu kosningarétt.
ai@mbl.is
Harriet Tubman
fer á 20 dala seðilinn
Ljósmynd / H. Seymour Squyer (PD)
Djörf Harriet Tubman var merkur
einstaklingur og baráttukona.
Hjálpaði fjölda þræla að flýja norður
● Bandarískar eftirlitsstofnanir á fjár-
málamarkaði kynntu á fimmtudag til-
lögur að nýjum reglum um launa- og
bónusgreiðslur æðstu stjórnenda í fjár-
málageira.
Miða reglurnar m.a. að því að stjórn-
endur geti ekki tekið áhættusamar
ákvarðanir í rekstrinum sem skili þeim
drjúgum bónusum vegna skamm-
tímagróða en láti fyrirtækin sitja uppi
með langtímaskaðann.
Wall Street Journal segir eftirlitsstofn-
anirnar þannig leggja til að stærstu
bandarísku bankarnir hafi allt að sjö ára
frest til að taka bónusa til baka ef í ljós
kemur að ákvarðanir stjórnenda ollu
bönkunum tjóni. ai@mbl.is
Kynna reglur til að
koma böndum á bónusa
AFP
STUTTAR FRÉTTIR …