Morgunblaðið - 22.04.2016, Side 36

Morgunblaðið - 22.04.2016, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ekki láta fjarlægðina draga úr þér með að hafa samband við gamlan vin eða vandamann. Þú leggur þig allan fram við að halda þér uppteknum en ekki gleyma að vandamálin hverfa ekkert fyrir það. 20. apríl - 20. maí  Naut Þær aðstæður eru nú uppi sem ýta á eftir því að þú takir ákvörðun í persónulegu máli. Vertu klappstýra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samræður við stjórnendur og for- eldra verða þýðingarmiklar í dag. Ræddu við einhvern þér eldri og vitrari því það getur komið sér vel. Vinátta verður aldrei ofmetin. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Leynilegt daður kryddar tilveruna hjá þér í dag. Fólk sem hugsar vel til þín hefur góð áhrif á skap þitt og léttir þér lífið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það skiptir engu máli hverrar trúar þú ert, þú trúir einhverju. Gefðu þessum þætti lífs þíns meiri tíma og athygli. Kannski eru ut- anaðkomandi aðilar að hamla innri vellíðan. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vitneskjan er það atriði sem nú skiptir sköpum um flesta ef ekki alla hluti. Leitaðu þér aðstoðar til þess og snúðu málunum við. Hugur þinn er lógískur, skipulagður og venju fremur agaður. 23. sept. - 22. okt.  Vog Eitthvað liggur í loftinu sem gerir þig óöruggan. Vertu með svörin við algengum spurningum á reiðum höndum og þá er allt klárt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér finnst mikið hvíla á þér og þú hefur áhyggjur af fjárhagnum og afkomu heimilisins. Reyndu að forðast árekstra við annað fólk því það er stuttur í þér þráðurinn þessa daga. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ný manneskja fær þig til þess að ljóma af skapandi orku. Brostu framan í heiminn og þá mun heimurinn svara í sömu mynt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gætir lent í óþægilegri aðstöðu er þú leitast við að aðstoða vin í vanda. Spennan gerir aðstæður áhugaverðar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur mikla þrá til að ferðast þessa dagana og kynna þér allan heiminn. Dagurinn í dag er tilvalinn til að biðja um hluti eins og lán, leyfi, eða hvaðeina annað. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú kemur öllu í verk sem þú einbeitir þér að. Bara það að hitta eina manneskju mun opna þér hundrað tækifæri sem stefna þér á spennandi stað. Sigmundur Benediktsson segirfrá því á Leirnum að „á apríl- fundi Kvæðamannafélagsins Ið- unnar fór Ragnar Ingi Aðal- steinsson með bragfræðipistil og tók þá m.a. fyrir, að flytja mætti til greinarmerki í sléttuböndum til nánari skýringar eftir því hvort kveðið væri afturábak eða áfram. Ætla ég að prófa það hér,“ segir Sigmundur. Og bætir við: „Bann- sett sumarmálahretið setti mig að hálfu leyti úr vorgírnum. Því þetta: Vorið hjarir, ekki er illa barinn gróður. Þorið varir, fráleitt fer, fegurð skarast óður. Og afturábak: Óður skarast, fegurð fer, fráleitt varir þorið. Gróður barinn illa er, ekki hjarir vorið. Síðan gefur Sigmundur smá- skýringu við sögnina að skarast, sem hefur ýmsar merkingar: Fyrri: skarast = jaðrast eða ganga á misvíxl = sameinast. Síðari: Óður skarast = frjósa að skarir. (Hvort tveggja að sjálf- sögðu huglægar myndlíkingar.) Sigmundur lýkur hugleiðingum sínum með þeim orðum að þetta sé nú orðin hálfgerð hrollkveðja – en vel meint samt! Pólitíkin er alltaf ofarlega á baugi. Ármann Þorgrímsson hefur orð á því að fyrstu fréttir af mál- efnaskrá ríkisstjórnarinnar sem á að afgreiða fyririr kosningar segi okkur að hver ráðherra sé með mörg forgangsmál: Lítils virði er loforð það sem lægði mestu öldurnar Mörgum finnst nú auðsýnt að eitthvað dragist kosningar. Ég fékk sendan mola í Vísna- hornið og væri gott að fá fleiri slíka: „Sigurdór Sigurdórsson ger- ir sér það að leik að setja reglu- lega inn skemmtilegar vísur á fés- bók, en það var einnig hans siður er hann hélt úti Sandkorni í DV á sínum tíma. Hann rifjar upp að á vísnakvöldi í Varmahlíð fyrir all mörgum árum var spurt um hvað menn hugsuðu daginn eftir Laufskálaréttardaginn. Sigurður Hansen svaraði: Ef menn hugsa yfirleitt er mér næst að gruna, að menn sem ekki muna neitt megi best við una.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sléttubönd og pólitík með vorkomunni Í klípu „JÆJA, JÆJA, SJÁÐU ÞETTA. ELDUR. TALANDI UM AÐ EYÐA UM EFNI FRAM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „NEI, LÆKNIR, ÉG ER EKKI VÉLMENNI. ÉG VAR MEÐ SÍMANN MINN Í RASSVASANUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... lymskufulla brosið hans. LÍSA, LÍFIÐ ER EINS OG STÓR LASAGNA-DISKUR… OG GRETTIR KOMST AÐ BORÐINU Á UNDAN OKKUR HVAÐ ERTU AÐ SEGJA, JÓN? VIÐ ÞURFUM AÐ FARA ÚT AÐ BORÐA ROP! SJÁIÐ ÞESSA SKRÍTNU FUGLA! ÞEIR NEFNAST KÍVÍ-FUGLAR! ÞEIR ERU MEÐ SAMA MAKANN FYRIR LÍFSTÍÐ! KÍVÍAR GETA EKKI FLOGIÐ! ÞAÐ ER ERFITT AÐ TRÚA ÞVÍ! ÉG BÝST VIÐ AÐ ÞAÐ ÚTSKÝRI ÞAÐ! Borgarstjórinn í Reykjavík háðimikla baráttu við Kardashian- systur og Kanye West um athygli ís- lenskra fjölmiðla síðustu vetrardaga en það er ekki sama hver á í hlut og borgarstjórinn átti ekkert í goðin. Limurinn hafði ekkert að segja í kyn- bomburnar. x x x Fram kom að sundbolur raunveru-leikastjörnunnar Kourtney Kar- dashian væri svartur og rifinn og hefði vakið töluverða athygli en ekki var minnst einu orði á sundskýlu borgarstjóra, ekki einu sinni í banda- ríska vefmiðlinum Wonkette, sem annars fjallaði á óvenjulegan hátt um manninn. x x x Íslenska þjóðin hefur greinilegamun meiri áhuga á því hvað Kim og Kourtney láta ofan í sig á Íslandi en hvaða borða borgarstjóri klippir. Bæjarins bestu og Búlluborgarar eru mál málanna en ekki hvort Framarar fá loks veg eftir margra ára baráttu til þess að komast úr Úlfársárdal nið- ur á Laugardalsvöll, þar sem þeir ætla að spila fótboltaleiki sína í sum- ar. x x x Haft var eftir forstöðumanni ferða-þjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu að heimsókn þessa stjörnufólks hefði mikil margföld- unaráhrif og fylgjendur þess víðs vegar í heiminum vildu hugsanlega upplifa það sama. Víkverji hefur hvergi séð minnst á að árátta borgar- stjóra að vera sýnilegur í öllu nema því sem skiptir máli fyrir borgarbúa hafi skilað auknum fjölda ferða- manna til höfuðborgarinnar. x x x Víkverji tók eftir því síðasta vetrar-dag að borgarstjóri lét enn einu sinni mynda sig, að þessu sinni með verðlaunahöfum Barnabóka- verðlauna Reykjavíkurborgar. Það ýtti ekki við aðdáendum Kardashian- systra sem felldu tár við brottför þeirra. „Veislan er búin, þær eru farnar“ var ein helsta fyrirsögn í net- miðlum í fyrrakvöld. Sennilega hefur enginn verið eins ánægður þá og borgarstjórinn. víkverji@mbl.is Víkverji En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég gerði Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þín- um. (Sálm. 73:28) Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 295 Vinnuvettlingar PU-Flex 1.395 Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 695 Strákústar á tannbursta- verði Garðklóra/ Garðskófla 595 1.995 Öflug stungu- skófla Garðverkfæri ímiklu úrvali frá 1.995 Garðslöngur ímiklu úrvali Fötur í miklu úrvali 4.995 Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu Úðabrúsar ímörgum stærðumfrá 995 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.