Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 4
Sfflmyir fimja á von j<'/o6o(k/mj)fo ótí «<) mma
Aðventan er um biðina og aðventan er um vonina.
Enn og aftur erum við í þeim sporum að bíða eftir
komu jólanna. Ég man hvað það var erfitt að bíða
komu jólanna þegar ég var lítil. Strax í desember var byrj-
að að skreyta skólann, verslanir og aðra fjölmenna staði og
um leið og jólaljósin fóru að skína þá varð biðin erfiðari. Að
sjálfsögðu var ég ekki að bíða eftir því að fara í öll jólaboðin
sem fylgja jólunum. Og ég var ekki að bíða eftir öllum góða
jólamatnum sem borin var á borð. Hangikjötið, hamborg-
arahryggurinn, svínasteikin og grjónagrauturinn með rús-
ínunum voru ekki efst í huga mér þegar ég hugsaði til jól-
anna. Nei, ég var að bíða eftir aðfangadagskvöldi, þegar all-
ar gjafirnar voru komnar undir tréð og tími var kominn til
að opna þær. Það var gamanið, það var sportið við jólin - að
fá allt nýja dótið til að leika sér með. Um það snerist biðin
eftir jólunum.
Já, bömunum þykir erfitt að bíða í örfáar vikur, en hugsið ykkur
hvemig það væri að bíða í sex hundruð ár! Sú varð raunin með
Israelsmenn sem Gt. segir frá. Spámenn Gt. sem spáðu fyrir um
komu Krists upplifðu hörmungartíma eyðileggingar og örbrigð-
ar. Þjóðin þjáðist og öll von virtist úti fyrir Israelsmenn. En orð
spámannanna veitti fólkinu von. Þeirra var boðskapurinn að
tímamir myndu breytast, að koma skyldi konungur til að frelsa
þau úr ánauð og erfiðleikum. Þeir boðuðu komu Krists sem
frelsara og sögðu fyrir um betri tíma. En þeir tímar komu ekki
strax. Vonin og biðin eftir Kristi hófst sex hundmð ámm áður
en hann kom. Bið Israelsmanna var ólík okkar, engin vom ljós-
in, engin tilboðin, engar gjafir, engir jólasveinar, jólaþjöllur,
ilmandi jólatré né smákökur - nei, aðeins þjáð og einmana þjóð
sem hélt í vonina. Og vonin varð að veruleika þegar þau síst
væntu. Jesús Kristur kom í heiminn. Hann kom ekki til að gefa
gjafir - hann kom til að gefa sjálfan sig. Fólk sem lifði í myrkr-
inu sá ljós og utangarðs fólk var velkomið til hans. Einmana
fengu félagsskap, sorgmæddir huggun og fólk án vonar öðlaðist
von og væntingar til lífsins. Bið þeirra var á enda, vonin hafði
ræst. Vonin kom til þeirra í líki bams sem kom af fátæku fólki,
fæddist í smáþorpi, á afskekktu svæði.
Já, aðventan er um biðina og aðventan er um vonina. Læri-
sveinar Jesú reyndu það, líkt og svo maigir, að þurfa að bíða.
Vonin eftir endurkomu Krists byrjaði um leið og hann reis upp
og var uppnuminn til himna. Lærisveinamir bjuggust við end-
urkomu hans von bráðar en urðu fljótt þreyttir á biðinni. Þeir
misstu vonina þegar musteri Jerúsalemborgar var eyðilagt tíu
ámm eftir dauða og upprisu Krists. Gleði þeirra snerist í soig,
vonin varð að efa. Trú þeirra dalaði. En orð vonarinnar hljóðn-
aði ekki: Verið algáðir og vakið. Látið ekki hugfallast. Jesús
mun koma aftur en enginn veit daginn né stundina. Vertu því
ávallt reiðubúinn að mæta Kristi, hvenær sem er, hvar sem er.
Margir þurfa á von jólaboðskaparins að halda en hafa ekki trú á
að hún rætist. Hafi sorgin knúið dyra hjá fólki þá er framtíðin
oft myrk og fólk jafnvel treystir sér ekki til að halda jólin hátíð-
leg. A slíkum stundum er nauðsynlegt að muna að Kristur kom
ekki vegna prjálsins í kringum jólin - Kristur kom til að hugga
sorgbitna, styðja við þá sem eiga erfitt og veita félagsskap þeim
sem einmana em. Um það snúast jólin, um það snýst fæðing
Krists. Megi Guð gefa okkur náð til þess að meðtaka þann jóla-
boðskap. Guð gefi okkur öllum gleðileg jól. Amen.
íris Kristjánsdóttir,
sóknarprestur í Hjallakirkju,
Kópavogi.
Diskamcttur
cjj sessur
cll tilefni
Milú úrval
ajjclayúlíum
Deh artjöndurmálninc
Tjaruargölu 17 - Kcflavík - -ími 121 2061
Ég er svona,
bara miklu minni!
Finniö
Snæfinn
snjókarl!
Við fóldum Snæfinn
snjókarl í blaðinu. Finnið
myndina af honum,
skrifið á hvaða
blaðsíðu Snæfinnur
er og sendið til okkar
á Víkurfréttum
fyrir 19. desember ásamt
nafni, aldri og
símanúmeri.
Við ætlum að gefa
þreniur heppnum
krökkum jólapakka frá
Víkurfréttum fyrir jól.
Sendið okkur
nafn, aldur og heimilisfang
ásamt svarinu við
spumingunni.
Víkurfréttir
„Snæfinnur snjókarl“
Grundarvegi 23
260 Njarðvík
Listaverka-
almanak
Þroskahjálpar
Listaverkaalmanak
Þroskahjálpar er komið
út. Eins og fyrri ár
prýðir almanakið myndir eftir
íslenska grafíklistamenn. Alm-
anakið er einnig happdrætti og
er dregið einu sinni í mánuði. I
vinninga er fjöldi listaverka
m.a. eftir Erró, Karóiínu Ei-
ríksdóttur og fleiri þekkta
Iistamenn. Almanakið kostar
1300 kr. Hægt er að panta alm-
anakið á skrifstofu samtak-
anna í síma 588-9272, netfang:
afgreidsla@throskahjalp.is
Sölufólk óskast!
Fólk vantar til þess að
selja almanök Lands-
samtaka Þroskahjálpar
í Reykjanesbæ, Garði og Sand-
gerði. Góð söluluun í boði.
Þeir aðilar sem hafa áhuga vin-
samlegast snúið ykkur til Þroska-
hjálpar á Suðumesjum að Suður-
völlum 9, Reykjanesbæ og fáið
afhent almanökin hjá fram-
kvæmdastjóra félagsins.
Nánari upplýsingar hjá fram-
kv.stjóra í síma 421-532 .
4
JOLABLAÐ
VÍHURFRÉTTA
2 0 0 0