Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 18
Blaðamaður læddist í
myrkrinu eitt þriðju-
dagskvöld inn í bflskúr í
Ytri-Njarðvík. Heyrði hiátra-
sköll og háværar raddir koma
frá skúrnum. Barði laust á
dyrnar og beið. Dyrnar opnuð-
ust hægt og andlit Hörpu Guð-
mundsdóttur gjaidkera kom í
dyragættina. Blaðamaður
hafði mælt sér mót við gjaid-
kera Sparisjóðsins í Keflavík
en þær hittast í skúrnum henn-
ar Hörpu og Einars Guð-
mundssonar tvö kvöld í viku
og mála jólamyndir á gler-
krukkur.
Stemningin innandyra var nota-
leg og minnti á jólin. Kertaljós
logaði á fallega skreyttu borði en
þar voru smákökur, kaffi og gos.
Vinnuborð var á miðju gólfinu
og stólar í kring. Blaðamanni
voru boðnar smákökur og eitt-
hvað að drekka. Nammi, namm
en hvað það er notalegt að það
eru að koma jól. Skemmtilegur
árstími og alltaf eitthvað gimilegt
að borða. Svo er þessi sérstaka
stemning í loftinu, einhver jóla-
andi.
Hvers vegna í bflskúr?
„Við ákváðum að föndra í bíl-
skúrnum svo við fengjum frið
með dótið okkar,“ segir Harpa
ákveðið. „Þá getum við skilið allt
eftir á borðinu þegar við förum
heim og gengið að því vísu næst
þegar við hittumst. Annars þyrft-
um við alltaf að ganga frá eftir
okkur og eins og þú sérð þá er nú
ansi margt hér á borðinu sem allt
of seinlegt er að ganga frá.“
Blaðamaður jánkar því og finnst
þrælsniðugt að vinna svona í bíl-
skúmum. Þessi bílskúr er upphit-
aður með blástursofni þannig að
þær þurfa ekki að vera vel dúð-
aðar konumar héma.
„Við byrjuðum á þessu um mán-
aðamótin október / nóvember,“
segir Margrét Einarsdóttir. , J>etta
er rosalega skemmtilegt. Við
keyptum þessar glæru glerkrukk-
ur í IKEA og málum þær með
akrýllitum. Svo lökkum við þær.
Krukkurnar eru meðal annars
ætlaðar til jólagjafa og í þær má
setja smákökur og sælgæti. Það
er orðin hefð að maður gefi
handunnar jólagjafir einstaka
fólki í fjölskyldunni. Þær þykja
skemmtilegastar.“
Góður hópur
Stuttu eftir að blaðamaður kom
birtust tvær hressar skvettur úr
gjaldkeraliði bankans. Þær Ragn-
heiður Halldórsdóttir og Dag-
björt Bragadóttir bönkuðu hressi-
Iega á dymar og húsráðandinn
opnaði. „Nei, hva bara blaða-
maður á staðnum!" sögðu þær
báðar og þóttust vera voða hissa.
„Við emm í hvatningarliðinu og
komum reglulega til að hvetja
hinar áfram," segir Ragnheiður
og hlær. „Hva, er þetta mín kmk-
ka?“ spyr Dagbjört og tekur upp
fallega glerkrukku sem hún á
ekkert í. Öllu gamni slepptu þá
em þessar konur einnig í föndur-
liðinu. Blaðamanni var litið yftr
kvennahópinn jregar hann kvaddi
en þá voru þær allar komnar á
fullt við að mála fallegar myndir
á glerkrukkumar. Þær em hressar
og skemmtilegar þessar Spari-
sjóðskonur og allar vom þær að
fá útrás fyrir listsköpun sína.
Tilboðin
SJ áMföJilauy
*fs lá^
Hörpu TILBOÐ
10 Itr.
kr. 3.990,-
4 Itr.
kr. 1.990,-
FJORDAL
af allri gjafavoru
og jólaskrauti
Viðarparket
rá kr. 1.995,'
GEFUR
LIFINU
L____aropinn ^
Hofnargötu 90 • S: 421 4790 ■ 421 4714
18
JDLABLAE
VÍKURFRÉTTA
2 □ 0 0