Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 40

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 40
Öflugt félagsstarf Islendingafélagsins { Lundúnum búa margir íslendingar en þeir halda uppi öflugu félagslífi sjn á milli. Þóranna segist þó lítió hafa tekið þátt í staríi íslendingafélagsins þangað til á þessu ári. „Við vomm bara í skólandum og kynntumst bara Bret- um. Við leituðum íslendingana ekkert uppi, nema bara þá sem við þekktum áður og vorum ósköp sátt við það. Nú umgöngumst við íslendinga rnjög mikið og ég er Þoranna og Sigrun Sævarsdóttir, sem kemur úr þekktri tónlistar fjölskydlu úr Keflavík, bregöa á leik. fyrirvaralaust þegar eitthvað gengur upp“, segir Þór- anna og það er auðheyranlegt að frumkvæðisleysi og leti er ekki að hrjá hana. Meö upptökustúdíó í svefnherberginu Þóranna og Kalli, eða Kristin og Charlie, búa í mið- borg Lundúna, í aðeins 15 mínúma göngufæri við Ox- ford Street. Þau leigja pínulitla íbúð með einu herbergi sem er í raun bæði svefnherbeigi og upptökustúdíó. „Það var svolítið áfall að koma hingað fyrst. Húsnæði er mun verra hér en heima og maður borgar offjár fyrir smá íbúðarholu enda er mjög algengt að 3-6 manns deili húsi. Þar sem við vomm búin að vera saman í 4 ár þegar við komum hingað þá vildum við vera útaf fyrir okkur. Þó að íbúðin sé lítil þá er það stór kostur að hún er miðsvæðis sem lækkar tilfinnanlega ferðakostnað.“ Erilsamir dagar Þegar Þóranna er beðin um að lýsa venjulegum degi í lífi sínum þá hugsar hún sig lengi um. „Það er svo sem engin dæmigerður dagur nema kannski í smá tíma inn á milli þegar ég er í venjulegri vinnu. Annars er þetta hringiða af pmfum, æfingum, tónleikum, upptökum, örfáum stundum sem finnast til að semja og svo fer ég í líkamsrækt eins oft og ég get því að það er jú stað- reynd að leikarar verða að Staðreyndin er að um leið og eitthvað gerist í tónlist- inni þá á maður meiri möguleika í leiklistinni." Keyptu sér upptökustúdíó Eftir að Þóranna lauk námi þá segir hún að 99% af tímanum hafi farið í bölvaða vitleysu og allt of lítið í það sem hana langaði til að fást við, þ.e. að æfa og leika. „Þó fór hugurinn að leita meira og meira í tónlistina, en ég hef alltaf verið með annan fótinn í henni í gegn- um tíðina. Við fórum yfir fjármálin okkar og sáum fram á að geta keypt okkur lítið uppstökstúdíó til að vinna heima. Við vorum búin að vinna svolítið með ýmsum framleiðendum hér, m.a. einurn sem hefur unnið með böndum eins og 911, Honeyz og Wu Tang Klan, og komumst að því að það væri meira vit í að eyða peningunum í studíó og geta unnið eins mikið, og eins lengi og við vildum.“ Kalli og Þóranna fóm að taka upp síðsumars og stofn- uðu síðan hljómsveit sem er farin að halda tónleika hingað og þangað. „Við eigum eftir að spila á tveimur tónleikum fram að jólum sem á kannski eftir að opna einhverjar dyr fyrir okkur. Hingað til höfunt við komið ifam undir mínu nafni, Kristín, en nafnið breytist eftir áramót í Raw Plastic.“ Hljómsveitin er að fara að taka upp fleiri lög. Þeir sem hafa áhuga á að skoða hvað hljómsveitin er að gera, geta farið á heimsíðuna www.krsm.com en þar er hægt að hlaða MP3 af vefnum. Þar má einnig finna ljós- myndir og sitthvað fleira um bandið. Hræddir við að ráða útlendinga Við snúum umræðunni frá lífagæðakapphlaupinu að breska hreimnum hennar Þórönnu sem blaðamaður gat ekki annað en dáðst að. „í skólanum var ég alltaf innan um Breta og á æfing- um með talkennara, en þá varð hreimurinn auðvitað betri. Það hefur komið fyrir að ég hef unnið með fólki í fleiri vikur og það ekki trúað mér þegar það hefur borist í tal að ég væri frá Islandi", segir Þóranna. Hún viðurkennir að það geti verið leikurum fjötur um fót að vera ekki innfæddir, því breski leiklistarheimurinn sé hræddur við allt sem er öðruvísi. Þrátt fyrir að enskan sé í góðum gír þá virðast þeir sem velja í hlutverkin, alltaf vera hræddir við að ráða ein- hvem sem ekki er breskur í húð og hár. Það er kannski skiljanlegt að vilja ekki velja útlending ef persónan á að vera bresk, en svona er lífið. Þetta er líka ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að kýla meira á tón- listina. Mig langaði það alltaf en þetta ýtti við mér. Ætla að gifta sig á íslandi Þóranna viðurkennir að það sé ýmislegt í farvatninu og útilokar ekki að hún eigi kannski eftir að eyða góðurn tíma á klakanum á næsta ári. „Tónlistin er aðal málið eins og er og ég vil halda því gangandi þar sem boltinn er farinn að rúlla, en það er ekki þar með sagt að ég hafi sagt skilið við leiklistina - langt því frá“, segir Þóranna með mikilli áherslu. Meðal jress sem er á döfinni eru tónleikar sem Þóranna stefnir á að halda með Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur. „Sigríður er vinkona mín og lærði iíka leiklist og söng héma. Við ætlum að reyna að halda tónleika bæði í Reykjavík, Keflavík og jafnvel á fleiri stöðum, ein- hvem tíma með vorinu. Svo komum við Kalli heim í júní því við ætlum að gifta okkur í kringum Jónsmess- una, með miklu húllumhæi. Vinir okkar ætla að koma frá Englandi til að vera viðstaddir, svo að það lítur út fyrir að næsta ár verði viðburðarríkt og skemmtilegt.“ Þóranna með móður sinni, Magdalenu Sirrý og Elmari Geir, bróður sínum. Pabbi, Jón Björn Sigtryggsson tók myndina í London í haust. t.d. orðin virkari í hlutum eins og Islendingafélaginu og íslenska kómum og er m.a. formaður skemmtinefndar fyrir Þorrablótið þetta árið. Við höfum eignast marga góða og trausta breska vini og myndum sakna margra ef við flyttum heim.“ íslendingar gleyma stundum að njóta lífsins Þóranna segir að það sé reyndar mjög spennandi að vera í íslendingasamfélaginu í Lundúnum þar sent margir Islendingar séu að gera mjög spennandi hluti. „Hugsunarhátturinn er oft ólíkur hugsunarhætti íslend- inga sem búa heima. Mér finnst fólk á Islandi stundum of upptekið við að hafa það gott; eiga fínan bfi og fína íbúð og vinna svo eins og vitleysingar til að geta þetta allt, en gleymir oft því sem mestu máli skiptir, þ.e. að njóta lífsins og gera það sem maður vill - með þeim sem manni þykir vænt um“, segir Þóranna með áherslu en henni fínnst að Islendingar í Lundúnum séu frekar fólk sem er að gera nákvæmlega það sem það vill gera og hugsar um að verða hamingjusamt frekar en að taka þátt í lífsgæðakapphlaupi landans. „Það virðist vera svo mikil pressa heima að standa sig og hafa það gott fjárhagslega en gleymist kannski stundum að athuga hvemig fólk hefur það inná við. Margir Islendingar hér tala urn að hér finnist þeim gott að geta bara lifað lífinu eins og þeir vilja, án þess að vera að spá í hvað öðmm finnst og hvað aðrir gera - og hvað þeim finnst þeir eiga að vera að gera.“ líta sæmi- lega út“, segir Þóranna en bætir við að þrátt fyrir þéttskipaða stundatöflu þá gefi hún sér tíma til að hitta vini sína við og við og eyða smá tíma í einrúmi með Kalla sínum, sem er reyndar allt of sjaldan að hennar sögn. Kalli lærði hljóðtækni, eða sound engineering og vinnur við að stjóma upptökum og hljóðblanda á tónleikum. „Hann lærði rafvirkjun heima, sem er fínt að hafa til að hlaupa uppá, þar sem hljóðbransinn er ekkert traustari en leiklistin", segir Þóranna og er stolt af sínum rnanni. 40 JÓLABLAB VÍHURFRÉTTA 2 0 0 0

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.