Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 48

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 48
segir Daninn Jes V. Hansen í iiði íslandsmeistara Njarðvíkur og segist ekki hafa rekist á neitt sem honum er ilia við. Daninn Jes V. Hansen í liði Njarðvíkinga er í fyrsta sinn að leika sem atvinnumaður í körfuknattleik. Hann er fæddur í Kaupmanna- höfn 9. janúar 1976 og er því 24 ára gamall. „Ég byrjaði í körfuknattleik 14 ára með Greve Basketball og lék þar í þrjú ár og tók þátt í að heiinta tvo deildarbikartitla í hús. Síðan færði ég mig um set og lék fyrir undir-18 lið Stevnsgade Basketball í eitt ár og með karlaliðinu eftir það. Á fyrsta ári mínu unnum við danska meistaratitil- inn sem er stærsti sigur minn í boltanum hingað til en markmiðið er auðvitað að bæta íslandsmcistaratitli með UMFN í safnið. Eftir 3 tímabil hjá Stevnsgade setti ég niður í töskur og flutti mig um set til Havvaii. Nei, það var ekki um frí að ræða hjá mér heldur bauðst mér há- skólavist í University of Havvaii. Ég fann mig ekki og ég og þjálfarinn áttum ekki upp á pallborðið hjá hvor öðr- um og úr varð að ég sneri heim eftir til Danmerkur eftir ársdvöl í Bandaríkjunum. Nú til að gera langa sögu stutta þá lék ég tvö tímabil til viðbótar með Stevnsgade og er nú kominn hingað til Njarðvikur.“ Ertu kominn af körfubolta- mönnum? „Ekki get ég nú sagt það. Mamma, Annalise Hansen, er fyrrum kúluvarpari og þar með er íþróttaiðkun fjölskyldumeð- lima upptaiinn. Föður rninn þekki ég ekki. Ég veit hver hann er en hef aldrei átt nein samskipti við hann.“ Hvers vegna ísland? „Ég veit það eiginlega ekki. Ég var búin að heyra ýmislegt gott unt kmd og þjóð frá þeim Jesper (Sörensen úr KR) og Sune (Hendrikson úrTindastól) og þegar Njarðvíkingar höfðu samband við umboðsmann ntinn eftir Norðurlandamótið í sumar þá ákváð ég að halda á vit ævintýranna og gerast at- vinnumaður í körfuknattleik.“ Hvernig líst þér á íslenskan körfuknattleik? „Hann er hraður og snýst mikið í kringum þriggja stiga skotin. Ég hafði fengið upplýsingar um að hér gætu allir skotið boltanum og fékk það staðfest í fyrstu leikjunum. Mér finnst svona leikur, hraður og spenn- andi, afar skenrmtilegur og leiðist ekki sjálfum að setja niður þrista. Þetta er minn leik- ur og ég skemmti mér konung- lega.“ Hin eina sanna, hvernig líst þér á ísland? „Ég veit ekki hvort þetta á við um allt ísland en fólkið héma í Njarðvík hefur sýnt mér mik- inn vinskap og þótt ótrúlegt virðist þá líður mér eins og ég sé einn úr fjölskyldunni eftir aðeins tveggja mánaða dvöl. Ég hef ekki enn rekist á neitt sem mér er illa við hér en ég gæti alveg án kuldans verið.“ Hvaða íslensku Ieikmenn líst þér best á liingað til? „Mest spennandi leikmennimir sem ég hef rekist á em Logi (Gunnarsson) okkar, Eiríkur (Önundarson) í ÍR og Jón Am- ór (Stefánsson) í KR og svo auðvitað Teitur sem ég nýt þess að spila með. Af útlendingun- um em það Brenton Birming- ham, héma hjá Njarðvík, Cal- vin Davis hjá Keflavík og Shawn Myers í Tindastól en jreir em báðir mjög erfiðir viðureignar." Fylgist þú nieð stjörnunum í NBA? „Ég reyni að fylgjast með NBA boltanum en það er nokk- 48 JÓLABLAB VÍKURFRÉTTA 2 0 0 0

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.