Víkurfréttir - 14.12.2000, Qupperneq 64
gömlu hlýlegu húsi,
við litla bratta götu í
Hafnarfirðinum
búa hjónin Gylfi Jón Gylfason og Gyða Hjart-
ardóttir ásamt dætrum sínum Ingibjörgu og
Öddu Guðrúnu. Silja Dögg Gunnarsdóttir
lagði leið sína í Fjörðinn og bankaði uppá hjá
fjölskyldunni. Móttökurnar voru ekki af verri
endanum, nýlagað kaffi og konfekt. Þegar ég
var búin að fá mér sæti í hlýlegri stofunni hjá
þeim, gat viðtalið hafist, en umræðuefnin
teygðust í allar áttir, þar sem Gylfi Jón og
Gyða eru ekkert venjulegt fólk.
Gylfi Jón og Gyða með dætrum sín
um, Ingibjörgu og Öddu Guðrúnu.
Notaði glósurnar
sem ástæðu
Gylfi Jón er sonur Gylfa Guð-
mundssonar skólastjóra og
Guðrúnar Jónsdóttur kennara í
Njarðvíkurskóla og Gyða er
dóttir Hjartar Vilhelmssonar
sem rak verslunina Fataval og
Ingibjargar Guðmundsdóttur
sem er látin. Gyða ólst upp hjá
föður sínum og stjúpmóðu
Ingu Árnadóttur í Keflavík.
Hún útskrifaðist sem félagsráð-
gjafi frá Háskóla íslands en það
var einmitt þar sem leiðir henn-
ar og Gylfa Jóns lágu saman.
Gytfi Jón vill meina að hún
hafi elt hann uppi á göngum
skólans en Gyða segir að Gylfí
Jón hafi sjálfur beitt lymsku-
legum brögðum til að kynnast
sér betur. „Við þekktumst áður
en við byrjuðum í HI þar sem
við vorum bæði úr Keflavík.
Gylfi Jón hætti skyndilega að
mæta í tíma og fór að fá lánað-
ar glósur hjá mér í staðinn",
segir Gyða og lítur á Gylfa Jón
sem hlær og viðurkennir að
hann hafi nú skipulagt að næla
í Gyðu.
Gylfi Jón fetaði í spor foreldra
sinna og hlaut kennaramenntun
en fór síðan í sálfræðinám til
Árósa í Danmörku, þar sem
hann og Gyða bjuggu í fimm
ár. Eftir að Gylfi Jón lauk námi
starfaði hann í tvö ár á bama-
og unglingageðdeild í Viborg
þar sem hann sérhæfði sig á
sviði ofvirkni og Gyða lauk
mastersnámi í félagsráðgjöf.
Fundu framtíðarheimilið
Þau fluttu heim til íslands fyrir
einu og hálfu ári síðan og
ákváðu þá að búa miðsvæðis
þar sem Gyða fékk fyrst starf
sem deildarfélagsráðgjafi í
Kópavogi og Gylfi Jón á skóla-
skrifstofunni í Reykjanesbæ.
Þau fundu fallegt hús í Hafnar-
firðinum og ákváðu að það
skyldi verða þeirra framtíðar-
heimili þar sem þau voru orðin
leið á sífelldum flutningum.
Skjótt skipast þó veður í lofti
og Gyða fékk starf í Sandgerði
sem félagsmálastjóri.
Aðspurð um hvers vegna þau
flytji ekki á Suðurnesin þar
sem þau starfa þar bæði, segir
Gylfi Jón að þau hjónin hafi
ákveðið að nóg væri komið af
flutningum að sinni, fjölskyld-
unni líði vel í Hafnarfirði og
því ástæðulaust að flytja.
Gott samstartviö
foreldra er mikilvægt
Gylfi Jón og Gyða er bæði í
ábyrgðamiklum stöðum og
þurfa oft að fást við mjög við-
kvæm og erfið mál. Þau eru
sammála um að í flestum til-
fellum séu foreldrar mjög já-
kvæðir í þeirra garð og vilji
gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að leysa málin á sem
farsælastan hátt.
Gylfi Jón er deildarstjóri skóla-
skrifstofunnar og er yfir þeirri
deild sem sér um einstaklings-
mál, auk þess veitir hann öllum
leikskólum sálfræðiþjónustu,
Holtaskóla og sér um etfið ein-
staklingsmál í hinum skólun-
um. Hann kemur einnig fram
fyrir hönd skólaskrifstofunnar
út á við.
„Eitt af því er að koma á fram-
færi ákveðinni stefnu, þ.e. sam-
vinnu heimilis og skóla. I stuttu
máli þá eiga heimili og skóli að
haldast í hendur. Það er ekki
einkamál skólans ef krakkar
haga sér illa þar. Til að búa til
góðan einstakling verða heimili
og skóli að vinna saman. Ef
það er ekki gert þá er hætta á
að hlutirnir fari illa“, segir
Gylfi Jón til útskýringar. „Mitt
hlutverk er að hafa hagsmuni
bamsins í huga og veiti ég for-
eldrum og skóla ráðgjöf út frá
því. Það sem skiptir máli er að
baminu líði vel. Mín tilfinning
er að í langflestum tilfellum
sýna foreldrar mikinn vilja til
að vinna með okkur að lausn
vandamálanna. Yfirleitt eru
foreldramir venjulegt og gott
fólk í vandræðum með venju-
leg böm. Ég hef ekki enn hitt
foreldra sem ekki vilja vinna
með mér, hingað til hefur okk-
ur tekist að finna sameiginlega
flöt á milli heimilis og skól-
ans“, segir Gylfi Jón.
Gyða segist stundum verða vör
við í starfi sínu sem félagsráð-
gjafi að ákveðinnar tortryggni
gæti hjá fólki gagnvart félags-
málayfirvöldum. „En ég er
B4
JÚLABLAÐ
VÍHURFRÉTTA
2 0 0 0