Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 14.12.2000, Side 65

Víkurfréttir - 14.12.2000, Side 65
sammála Gylfa Jóni að ef mað- ur er heiðarlegur í samskiptum sínum, segir það sem manni finnst og vinnur út frá baminu í samvinnu við foreldra, þá kann fólk að meta það og sýnir und- antekningalaust samstarfsvilja. Bestur árangur næst fyrir bam- ið ef við emm í góðu samstarfi við foreldra, því foreldrarnir em auðvitað aðalpersónumar í lífi bamanna", segir Gyða. Gylfi Jón tekur undir og segir að um leið og foreldrar finni að verið sé að hugsa um bamið, þá séu þeir tilbúnir til sam- starfs. „Mörgum málum er hægt að ljúka þannig að báðir séu sáttir, þ.e. skóli og heimili, en stundum gengur ansi mikið á á leiðinni", segir Gylfi Jón. Mamma og pabbi verða að vera kærustupar Fyrirlestrar Gylfa Jóns um samskipti foreldra og barna hafa vatóð mikla athygli. Hann þykir vera líflegur og koma efninu frá sér á skemmtilegan og auðskiljanlegan hátt. „Eg held að ég sé að koma á framfæri einhverju sem á erindi til fólks. Ég fjalia um leiðandi uppeldi en gmndvöllur þess er agi, hlýja, ástúð og virðing", segir Gylfi Jón. Þetta hljómar fallega, en er þetta mögulegt fyrir venjulegt fólk í nútímasamfélagi sem er alltaf að flýta sér? Gylfi Jón er ekki lengi að hugsa sig um áður en hann svarar þessari spumingu. „Hjónaband og sambúð byggir á þeirri staðreynd að mamman og pabbinn á heimilinu eru kæmstupar. Ef fullorðna fólkið ræktar ekki samband sitt og sig sjálf þ.e.a.s. em kæmstupar og sinna eigin þörfum, líður ekki á löngu þar til orkan er búin og þá eiga foreldramir ósköp lítið eftir til að veita bömunum það sem þau þarfnast”, segir Gylfi Jón með áherslu. Agi er ekki andlegt ofbeldi Talið berst að aga en eins og þeir vita sem em með fullt hús af bömum, þá getur verið ansi erfitt að springa ekki þegar allt er á suðupunkti á heimilinu; allir að koma heim úr skóla og vinnu, þurfa að læra, vilja fá að borða, vilja ekki fara í bað, vilja fara út að leika o.s.frv. Hvemig er hægt að samræma ólíkar þarfir einstaklinganna þannig að öllum líði vel? „Ég held að fólk átti sig ekki alltaf á því að böm eru skipu- lagsfíklar og taka til sín það skipulag sem er í umhverfmu. Gott dæmi er „Úlfatíminn” frá kl. 16-20, þá á að elda, vaska upp, læra heirna og það ganga bara allir út frá því að allt gangi sjálfkrafa upp. Það gerir það bara ekki á langflestum heimil- um. Það verður að vera skipu- lag á hlutunum. Það er t.d. ákveðinn tími sem bömin vilja horfa á bamaefni í sjónvarpinu, þá ættu foreldrar að nota þann tíma til að gera eitthvað sem þeir þurfa næði við og gera ráð fyrir að þurfa að koma barninu af stað í leik áður en foreldri getur farið að gera eitthvað annað. Skipulag og agi em fyr- ir mér nátengdir hlutir og agi er ekki andlegt ofbeldi heldur skýr rammi Þar sem einnig er pláss fyrir hlýju nærgætni og ástúð“, segir Gylfi Jón Margar tegundir af rómantík Gyða hefur látið fara lítið fyrir sér fram að þessu en hún hefur ekki síður áhuga á uppeldis- málum en Gylfi Jón og hefur mjög sterkar skoðanir á þeirn. Það sem henni finnst skipta mestu máli er að fólk sé það sjálft í uppeldinu og noti al- menna skynsemi í stað þess að taka upp aðferðir eftir kennslu- bókum, sem kannski passar þeim ekki og fólk trúir ekki á. Talandi um ,Jcæmstuparið“, þá tekur hún undir að það geti ver- ið erfitt að viðhalda rómantík- inni eftir margar andvökunætur þegar börnin eru lítil, en þá skipti miklu máli hvaða kröfur foreldramir gera til sjálfs síns og hvemig þau nýta þann tíma sem þau eiga saman. „Mér finnst að konur í dag geri oft allt of miklar kröfur til sjálfs síns. Þær vilja geta allt, hugsa um bömin, heimilið, vinna og vera góður félagi mannsins síns og líta frábærlega út. Hlutimir breytast þegar bömin eru lítil og þá verða hjón að aðlaga sig að þeim aðstæðum. Þá em aðr- ir hlutir í gangi í sambandinu og fólk verður að sætta sig við það“, segir Gyða og Gylfi Jón bætir við: „Það er t.d. þrælróm- antískt að keyra saman á milli Hafnarfjarðar og Suðumesja. Rómantík er ekki bara það að gefa blóm eða fara út að borða og eyða sitt hvomm tíu þúsund kallinum í hvort annað. Það er reyndar ein tegund af rómantík en það er lfka hægt að vera rómantískur í hinu daglega amstri, kærustupar inni á heimilinu." Við gerum öll mistök Síminn hringir og Gylfi Jón stendur upp til að fara í símann. Umræðan um uppeldi og dag- legt stress heldur áfram. „Mað- ur getur ekki gert þá kröfu að allir dagar séu eins og klipptir út úr Hollýwood bíómynd", heldur Gyða áfram, „suma daga þá lifir maður bara; kem- ur krökkunum á fætur, gefur þeim að borða og svo fara þau aftur í rúmið, og það er allt í lagi. Hlutirnir ganga heldur ekkert alltaf upp og þá verður maður að velta fyrir sér, hvað er það sem skiptir máli og hvemig er hægt að læra af mis- tökum sínum“, segir Gyða. Gylfi Jón er kominn úr síman- um og tekur undir þessi orð konu sinnar. „Þeir sem segjast ekki gera mistök eru einfald- lega að ljúga. Það er allt í lagi að gera mistök ef maður lærir af þeim.“ Konur eiga að hafa sömu möguleika Jafnréttismál eru hjónunum hugleikin en það er eitt af hlut- verkum Gyðu sem félagsmála- stjóri að sinna þeim málaflokki. Hún segist alltaf hafa haft áhuga á jafnréttismálum. „Samkvæmt lögum á að vera er jafnrétti á Islandi þannig að maður trúir því varla að mis- réttið sé svona mikið á milli kynjanna. Það var ekki fyrr en ég fór að heyra mörg dæmi þess að verið væri að mismuna fólki eftir kyni, að ég fór að trúa þessu“, segir Gyða og er alvarleg á svip. Að mati Gylfa Jóns er menntun ein leið til að ná fram jafnrétti. „Ég vil að það sé lögð meiri áhersla á nám og gildi þess að mennta sig í uppeldi bama, það er í raun sama hvaða nám er valið aðalatriðið er að mennta sig. Ég vil benda á að menntuð kona er með betri laun heldur en ómenntuð kona. Menntun gefur alltaf meiri möguleika." „Stóran huta þessa vandamáls má rekja til þess að konur meta sig ekki nógu mikið“, segir Gyða. „Þetta snýst um konur ekki síður en karlmenn. Konur verða að gera meiri kröfur og „Hún fékk sjaldgæft af- brigði af heilabólgu, sjúkdóm sem gerir það að verkum að ónæmis- kerfíð bregst ranglega við og ræðst á mið- taugakerfið. Þetta byrj- aði þannig að hún fékk flensu síðan fékk hún sjóntruflanir, missti mátt, andlega getu og hreyfifærni og varð mjög ólík sjálfri sér“. standa betur saman“, bætir hún við með áherslu og á þá við launamisréttið. En hver er skýringin á að konur eru ekki jafn duglegar við að semja um sömu laun og karl- menn? Gylfi Jón verður fyrr til svars. „Það að krefjast er hugs- anlega talin karlmannleg hegð- un, karlmaðurinn kemur fram sem ákveðinn og sterkur og sumum finnst sú hegðun óvið- eigandi fyrir konur, þær eru kannski sagðar frekar og „agressívar" þegar þær fara fram á „mannsæmandi” laun.“ Konur vilja fæstar vera karl- mannlegar en að mati Gyðu ættu konur að læra að tileinka sér ákveðna þætti frá karl- mönnum sem nýtast á þessu sviði, konur þurfa þó ekki að verða karlmannlegar til þess að vera ákveðnar og kunna að meta sjálfa sig. „Þetta snýst fyrst og fremst um jöfn tæki- færi og jafna möguleika, svo er þetta spurning um val“, segir Gyða. Ingibjörg í fangi föður síns og Adda Guðrún búin að koma sár vel fyrir hjá mömmu. Héldum að við værum að missa hana Annasöm störf og ótal áhuga- mál hefur verið umfjöllunar- efnið hingað til, en það sem skiptir Gylfa Jón og Gyðu mestu máli er fjölskyldan. Þau eiga tvær ungar dætur, Ingi- björgu 8 ára og Öddu Guðrúnu 5 ára. I marsmánuði á þessu ári veiktist eldri dóttir þeirra alvar- lega og um tíma var ekki vitað hvort hún myndi lifa veikindin af. „Hún fékk sjaldgæft afbrigði af heilabólgu, sjúkdóm sem gerir það að verkum að ónæmiskerf- ið bregst ranglega við og ræðst á miðtaugakerfið. Þetta byrjaði þannig að hún fékk flensu síð- an fékk hún sjóntruflanir, missti mátt, andlega getu og hreyfifæmi og varð mjög ólík sjálfri sér. Ég fór með hana til læknis en hann sagði að það væri ekkert að henni. Ég var mjög ósátt við þá niðurstöðu en neyddist til að fara aftur með hana heim. Þegar Gylfi Jón heim úr vinnunni fór hann und- ireins með bamið aftur á spítal- ann og þá var annar læknir kominn á vakt“, segir Gyða. „Hún var lögð inn en henni hrakaði hratt og við héldum að við væmm að missa hana. Hún fór í alls konar rannsóknir og var sett á lyf. Læknamir vissu ekki hvað var að henni í byrj- un, þannig að hún var sett á lyf við hinu og þessu“, segir Gylfi Jón. Ingibjörg missti meðvitund og var meðvitundarlaus í tíu daga. Hún missti mál, sjón og alla hreyfigetu. Þetta var mjög erf- iður tími fýrir fjölskylduna. „Við vissum ekkert hvað yrði um hana. Þegar þeir sáu að hún myndi lifa þetta af þá undir- bjuggu þeir okkur meðal ann- ars undir að mjög líklega yrði hún blind, skemmdimar á sjón- taugunum væru varanlegar", segir Gyða. Ingibjörg er hetja Ættingjar, vinir og samstarfs- menn stóðu eins og klettar við hliðina á fjölskyldunni á Jress- um erfiða tíma og við fundum hvað fjölskylda og góðir vinir skipta miklu máli. Yfirmenn okkar beggja, Eirík- ur Hermannsson skólamála- stjóri og Aðalsteinn Sigfússon félagsmálastjóri Kópavogsbæj- ar, sýndu okkur mikinn skiln- ing meðan á veikindum Ingi- bjargar stóð og það hjálpaði okkur einnig mikið að finna alla þá hlýju og stuðning sem við fengum frá samstarfsfólki í Reykjanesbæ. Það tóku bara allir utan um mann. Fólk úr Reykjanesbæ hringdi líka mik- ið í okkur og ég mér fannst bærinn allt í einu ferlega lítill og hlýr. Það stóðu allir með okkur“, segir Gylfi Jón. Ingibjörg vaknaði eftir tíu daga en það tók hana tæpar þrjár vikur þangað til hún fór að segja fyrstu orðin. JOLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2 0 0 0 BS

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.