Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 70

Víkurfréttir - 14.12.2000, Síða 70
JÓLASMÁSAGA FYRIR 6 Ö R N Fyrir mörgum, mörgum árum komu tveir fátækir fömmenn að stómm og ríkmannlegum bæ og báðust gistingar. „Nei“, sögðu bóndi og húsfreyja einum rómi „við höfum ekkert rúm fyrir flæk- inga.“ Fömmennimir urðu að halda ferð sinni áfram og brátt komu þeir að koti þar sem fátækur bóndi og kona hans bjuggu. Þeir börðu á dyr og spurðu hvort þeir gætu fengið næturgistingu. „Það er ykkur velkomið ef þið getið gert ykkur að góðu það lítilræði sem við getum boðið ykkur.“ Ferðalangamir þökkuðu innilega fyrir sig og gengu í bæinn. Þeir höfðu ekki dvalið lengi hjá fá- tæku hjónunum þegar konan hvíslaði að bónda sínum: „Eigum við ekki að athuga hvort við get- um ekki gefið gestum okkar eitthvað gott að borða? Það er jú aðfangadagskvöld. Við skulum slátra kiðlingi.“ „Það skulum við gera“, samsinnti bóndinn. Svo slátmðu þau kiðlingi, steiktu kjötið og átu öll nægju sína. Þegar komið var að háttatíma gengu hjónin úr rúmi fyrir gesti sína og buðu þeim rúmin sín. Sjálf lögðust þau til svefns á gólfmu í eldhúsinu. Næsta dag, jóladag, fóm þau öll fjögur til kirkju. Þegar messu var lokið báðu hjónin fömmenn að gera sér þann greiða að dvelja lengur hjá sér. „Við eigum svo mikið af kjöti núna og þið verðið endilega að hjálpa okkur að borða það.“ Ferðamennimir þökkuðu fyrir sig og kváðust gjaman vilja dvelja hjá þeim jóladag og annan í jólum. Snemma morguns þriðja í jólum kvöddu flakkaramir fátæku hjónin og þökkuðu þeim fögr- um orðum gestrisnina. Þeim fannst leitt að geta ekki launað hjónunum gestrisnina því þeir sögðust ekkert eiga til að gefa í staðinn. „Það gerir nú ekk- ert til“, svöruðu hjónin einum rómi. „Við hýstum ykkur ekki til að fá greiðslu fyrir það.“ Rétt í þann mund er flakkaramir vom að fara, sagði annar þeirra: „Var kiðlingurinn hymdur?“ , Já, já“, svaraði bóndi. „En homin em lítils virði, þau étur enginn." „Hve mörg vom homin?“ spurði flakkarinn. „Þau vom nú tvö“, svaraði bóndi. , Jæja, þá fáið þið tvær óskir“, sagði flakkarinn. „Óskið þess sem þið viljið.“ Bóndi sagðist einskis óska sér nema guðs blessun- ar, daglegs brauðs og eilífs lífs eftir dauðann. „Guð veitir ykkur það“, sögðu förumennimir. „Við komum aftur að ári“, og þeir fóm leiðar sinnar. Upp ffá þessu gekk fátæka bóndanum og konu hans allt í haginn. Kýrin bar þremur hraustum kálfum, báðar æmíir þeirra bám fjómm lömbum hvor og gyltan fæddi svo marga grísi að það var varla tölu á komið. Allt sem þau gróðursettu, óx og dafnaði svo undmm sætti. Þannig urðu þau vel efnuð og leið betur en nokkm sinni áður. Hjónunum var oft hugsað til förumannanna. Þau hlökkuðu mikið til næstu jóla því þá kæmu þessir ágætis menn í heimsókn á ný eins og þeir höfðu lofað. Allir í sveitinni höfðu tekið eftir velgengni hjón- anna í kotinu og veltu vöngum yfir henni. Þau sem hugsuðu mest um hvemig stæði á þessari dæmalausu velgengni vom ríku hjónin á stórbýl- inu. Þegar þau fréttu að alla velgengnina ættu fá- tæku hjónin því að þakka að þau hýstu tvo flæk- inga um síðustu jól, urðu þau bálreið. Þeim fannst jafnvel að kotbóndinn og kona hans, hefðu stolið óskunum tveimur frá sér. Fömmennimir komu jú fyrst til þeirra á stórbýlið og - ef þau hefðu vitað þá... Þegar ríku hjónin fréttu að förumennimir væm væntanlegir aftur um næstu jól báðu þau kotbónd- ann og konu hans vinsamlegast að leyfa sér nú að taka á móti blessuðum mönnunum. Hjónakomin úr kotinu gátu ekki annað en látið það eftir þeim. Sérstaklega af því að þetta vom ná- grannar þeirra og raunar hið besta fólk, sagði kot- bóndinn. A aðfangadagskvöld var barið að dymm í kotinu. Fömmennimir vom komnir eins og þeir höfðu lofað. Hjónin tóku vel á móti þeim með kostum og kynjum og áttu ekki orð til að lýsa þakklæti sínu fyrir allt það sem förumennimir höfðu gert fyrir þau. Förumennimir spurðu hvort þeir mættu dvelja hjá þeim um jólin. „Alveg væri það nú meira en velkomið“, sögðu hjónin í kór. En svo mundu þau hverju þau hefðu lofað nágrönnum sínum. Þau sögðu fömmönnun- um að þessum ágætu nágrönnum hefði þótt það svo leitt að geta ekki tekið á móti þeim um síðustu jól. Nú vildu þau bæta fyrir það og bjóða föm- mönnunum að dvelja hjá sér yfir jólin. , Jæja, úr því að þið viljið", sögðu förumennimir. „Við fömm þangað í kvöld en í fyrramálið fömm við með ykkur í kirkju.“ Vikapilturinn á stórbýlinu var látinn bíða við tún- garðinn og fylgjast með mannaferðum. Þegar hann sá til fömmannanna hljóð hann inn í bæ og hrópaði: „Þeir em komnir. Þeir em komnir!" Stórbóndinn og kona hans flýttu sér til að taka á móti gestunum. Þau báðu innilega afsökunar á því að hafa vísað þeim burt í fyrra og buðu þeim svo inn í stofu. Bóndinn hafði slátrað feitum uxa og húsfreyja var búin að steikja kjötið. Dýrindis kræsingar vom bomar á borð og þegar gengið var til náða vom förumennimir leiddir inn í fínasta svefnherbergið á bænum þar sem stóðu tvö uppbúin rúm. Næsta dag vöknuðu förumennimir árla morguns. Bóndinn og kona hans báðu þá blessaða að vera hjá sér um jólin. En förumennimir sögðust þurfa að kveðja því þeir ætluðu til kirkju. Síðan sögðust þeir myndu halda ferð sinni áfram. Bóndi spennti strax bestu hestana sína fyrir vagn- inn og bauðst til að aka þeim til kirkju. Aður en förumennimir lögðu af stað þökkuðu þeir alla gestrisnina en kváðust því miður ekki geta greitt fyrir hana því þeir ættu enga peninga. „En bíðið við“, sagði annar þeirra. „Var uxinn ekki hymdur?“ , Jú, jú, vissulega", svaraði bóndinn ákafur. Hann hafði heyrt söguna um kiðlingshomin ífá því árið áður og nú ætlaði hann ekki að láta happ úr hendi sleppa. „Hvað vom homin mörg?“, spurði förumaðurinn. Húsfreyja togaði í ermina á jakka bónda síns og hvíslaði: „Segðu fjögur, segðu fjögur.“ Bóndi sagði því að uxinn hefði verið með fjögur hom. „Nú já! Þá getið þið fengið fjóraróskir, tvær fyrir hvort ykkar.“ Síðan settust þeir í vagninn og bóndi ók af stað til kirkju. Bóndi flýtti sér alla leiðina og þegar til kirkju var komið sagði bóndi: „Því miður get ég ekki komið inn með ykkur. Ég verð að flýta mér heim.“ Bónda fannst að hann yrði að flýta sér heim því hann gat ekki beðið með að óska sér. Bóndi var að hugsa um þetta allt saman þegar annar hesturinn hnaut við fót og missti skeifu. Bóndi varð að stöð- va og bæta úr því. En loks þegar hann var búinn að jáma hestinn og ætlaði aftur sá hann sér til mikillar gremju að hinn hesturinn var líka búinn að missa skeifu. „Fjandinn hirði ykkur, tmntumar ykkar!“ hrópaði bóndi í bræði. Fyrr en varði vom hestamir á bak og burt. Vesal- ings bóndinn sat nú þama í vagninum með taum- ana í höndunum en án hesta. Hann varð að skilja vagninn eftir og halda heim fótgangandi. Bóndinn var búinn að fá eina ósk uppfyllta. Þó hann bölv- aði sjálfum sér fyrir klaufaskapinn hafði hann ekki miklar áhyggjur. Han átti sjálfur eina ósk eftir og konan hans tvær. Hann gæti auðveldlega eignast eins marga hesta og hann vildi, ásamt alls konar gulli og gersemum. Hann þurfti bara að vanda sig þegar hann óskaði sér. Því þrammaði hann áfram veginn, léttur í lund. Meðan á þessu gekk beið húsfreyjan heima. Hún var orðin óþolinmóð að bíða eftir bónda sínum. Hún var oft búin að ganga út fyrir til að gá að manni sínum og ekki bólaði á honum. Loks missti hún þolinmæðina, dæsti og sagði: ,Æ, hvað ég vildi að endemis þrjóturinn, hann bóndi minn, væri nú kominn hingað heim.“ Hún hafði varla sleppt orðinu en bóndinn stóð á hlaðinu hjá kerlingu, ljóslifandi. ,Æ, hvaða klaufaskapur. Nú er ég búin að nota aðra óskina mína og núna á ég bara eina eftir. En hvemig stendur á því að þú standir þama eins og þvara? Hvar er vagninn og hestamir?" „Ég var sá erkiklaufi að rnissa út úr mér að fjárinn mætti hirða hestana og hann er víst búinn að því. Þetta er allt þér að kenna. Það fylgir því ógæfa að hafa rangt við. Þú sagðir að uxinn hefði verið með fjögur hom. Þú skrökvaðir og ég vildi að homin væru föst á hausnum á þér!“ tautaði bóndinn ön- ugur. Og viti menn. Bóndi trúði ekki sínum eigin aug- um. Homin sátu föst á höfði kerlingar og æpti hún hástöfum: „Hvað hefur þú gert? Hvað hefur þú gert?“ Nú vom þau búin að nota þjrár óskir og aðeins ein var eftir. Bóndi reyndi að róa konu sína og sagði: „Vandaðujúg nú mín kæra, við eigum aðeins eina ósk eftir. Oskaðu þér nú nóg af peningum, notaðu tækifærið!“ „Nei, þakka þér fyrir“, svaraði konan snúðugt. „Þú skalt ekki láta þér detta í hug að ég ætli að ganga um með hom á hausnum það sem eftir er ævinnar.“ Og hún var ekki lengi að óska sér þess að fjárinn tæki þessu bansettu hom. Um leið hurfu homin en hjónin stóðu eftir með sárt ennið, hestunum og uxanum fátækari. Græðgin varð þeim að falli! 70 JÓLABLAÐ VÍHURFRÉTTA 2 Q □ □

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.