Víkurfréttir - 20.06.2002, Page 4
BÁTASAFN GRÍMS KARLSSONAR [ DUUSHÚSUM
Einstakt bátasafn Gríms
Hópur manna sem á einhvern hátt hafa tengst sjávarútvegi
og sjósókn hafa stofnað hollvinafélag bátasafns Gríms
Karlssonar. Bátafélagið eins og félagsskapurinn kallar sig,
lagði mikla áherslu á það að safnið yrði sem glæsilegast og
aðgengilegast fyrir fólk á öllum aldri.
Það var fyrir tilstuðlan Bátafe-
lagsins að Reykjanesbær festi
kaup á bátum Gríms Karlsson-
ar. Bátafelagið sótti um styrk til
ríkisins í fyrra og fekk 8,5
milljónir frá fjárlaganefnd al-
þingis og kom þannig 58 bát-
uni undir sama þak, en það er
svo Reykjanesbær sem kostaði
allan frágang hússins sem hýsir
bátaflotann.
Bátasafn Gríms Karlssonar var
síðan formlega opnað um 11.
maí. Afþví tilefhi kom sjávar-
útvegsráðherra, Arni Matthia-
sen til Reykjanesbæjar og
opnaði sýninguna fyrir al-
menningi. Grímur Karlsson
hefur löngum verið þekkmr
fyrir líkanasmíðir og góðan og
skemmtilegan kveðskap og
sannaðist það vel þegar hann
hélt tölu við opnunina. AUs
em 59 bátalíkön á safninu á-
samt ýmsum myndum og
öðru tengdu sjávarútvegi frá
Byggðasafninu i Reykjanes-
bæ.
Asamt hollvinafélaginu sem
stóð fyrir því að safiiið yrði
sett upp, var Arni Johnsen,
fyrrverandi alþingismaður
einn af frumkvöðlum safiisins.
Bátasafnið er staðsett í þeim
hluta Duus húsanna þar sem
áður var fiskverkunarhús en
ekti hluti þeirra, Bryggjuhús-
ið, var byggt árið 1877. Sigur-
jón Jóhannsson, leikmynda-
smiður er hönnuður sýningar-
innar og arkitektastofan Gata
hefbr séð um hönnun hús-
næðisins.
(--------------------------'N
Opnunartími:
Safnið er opið alla
daga vikunnar
V _________________________/
a- & hialii£;Jí»í3iLíj
K mm KefliJVU
Daglegar brottfarir frá (
höfninni í Keflavík.
Sjóstangaveiði.
Kvöldferðir.
Veisluferðir.
Skipuleggjum hópferðir
um Reykjanes með leiðsögn
www.dolphin.is • e-mail: moby.dick@dolphin.is
Upplýsingar í síma
421 7777
Grænt númer 800 8777
Fax.421 3361
GSM 896 5598
4
SUMARBLAÐ VÍKURFRÉTTA [ JÚNÍ 2002 ]