Víkurfréttir - 20.06.2002, Page 38
MENNING í REYKJANESBÆ
Menning að sumri
í Reykjanesbæ
Menningarlíf í Reykjanesbæ
stendur nreð miklum blóma í
sumar og ferðafólk og heima-
menn geta fiindið sér ýmis-
legt til dundurs.
Bátafloti Gríms Karlssonar
í Duushúsum.
A vegum Bygðasafns Suður-
nesja hefhr nýlega verið opn-
uð sýning á 58 bátalíkönum
Gríms Karlssonar í Duushús-
um, rétt við smábátabryggj-
una. Þetta er glæsileg sýning,
bæði með tilliti til sögunnar
og handverksins. Þetta er
mjög sérstök sjóminjasýning
þar sem sýndur er hluti sjáv-
arútvegssögu íslensku þjóðar-
innar á mjög nútímalegan
háttt. Sýningin er opin alla
daga frá 11.00 til 18.00 og
þar eru allir textar bæði á
ensku og íslensku og því
upplagt að koma með erlenda
gesti á sýninguna. Einnig er
hægt heimsækja Byggðasafnið
áVatnsnesi en þá þarf að
hringja á undan og panta
tíma í síma 421-6700. Á
Bókasafni Reykjanesbæjar er
ekki slegið slöku við yfir
sumartímann. Þar er m.a.
hægt að lesa sér til um ferða-
lög, bæði innan lands og utan
og einnig hefúr þangað verið
safriað miklum fróðleik um
Suðurnesin sem starfsfólk
safhsins hefur komið fyrir á
aðgengilegan hátt. Þá er líka
hægt að ferðast þar í hugan-
urn með því að lesa ferða-
bækur annarra.
Handverksfólk á Suðurnesj-
um hefur lengi rekið verslun
í Fischershúsi að Hafnargötu
2 og þar er alltaf opið frá
13.00-17.00 virka daga. Þar
má finna handverk og list-
muni eftir Suðurnesjamenn.
Félag myndlistarmanna í
Reykjanesbæ hefur líka opn-
að sölugallerý í Svarta pakk-
húsinu að Hafnargötu 2. Þar
sýna og selja myndlistarmenn
af svæðinu verk sín og er
opið hjá þeim alla daga frá
13.00-17.00, líka um helgar.
Að auki má nefha að Hring-
list við Hafhargötu hefhr ein-
nig gott úrval listaverka eftir
Suðurnesjamenn. Tónlistar-
menn hafa alltaf verið áber-
andi í menningarlífi Reykja-
nesbæjar og hafa kaffihúsaeig-
endur verið duglegir að bjóða
uppá lifandi tónlist um helgar.
Eru bæjarbúar hvattir til að
fylgjast vel með auglýsingum
og sjá hverjir eru að spila og
hvar.
Stekkjarkot við Reykjanes-
brautina hefur verið í viðgerð
undanfarið en mun opna nú
aftur í sumar. Þar gefit fólki
kostur á að sjá hina dæmi-
gerðu þurrabúð eins og þær
vom svo margar hér áður
fýrr. Við eigum hér á
Reykjanesi margar gamlar og
38