Víkurfréttir - 05.09.2002, Side 4
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
VELKOMIN A UOSANOTT
LJOSANOTT
Undirbúningurinn fyrir
Ljósnótt er nú á lokastigi
og hafa margir komið að
undirbúningnum til að gera
hátíðina sem glæsilegasta.
Ljósahátíðin stendur nú yfir í
4 daga og er dagskráin scrlega
giæsileg. Steinþór Jónsson er
upphafsmaður Ljósanætur,
auk þess að stýra undirbún-
ingsnefndinni, en nefndin
hefur starfað að undirbúningi
síðastliðna mánuði.
„Hluti af Ljósanótt er nú þegar
kominn í framkvæmd því veflir-
inn www.ljosanott.is hefur verið
starfræktur síðustu mánuði og
þar er hægt að sjá dagskrána,
skoða fréttir af hátíðinni og
senda inn hugmyndir að
atriðum,” segir Steinþór og bætir
við: „Það vita líka allir af
Ljósalaginu sem er nýlunda og
koma Islendings er búin að vera
,á borðinu í nokkurn tíma.
Atriðum hátíðarinnar hefur verið
fjölgað til muna og dreifist hún
nú á fjóra daga og er dagskrá
fostudagsins sérlega glæsileg, þó
hápunkturinn verði auðvitað á
laugardaginn,” segir Steinþór.
Ljósanæturnefndin setti sér það
markmið í upphafi að á hverri
Ljósanótt yrði eitthvað
framkvæmt sem væri til fram-
búðar fyrir Reykjanesbæ. Á
Ljósanótt árið 2000 var bergið
upplýst og í fýrra voru minnis-
merki sjómanna og Flug-lista-
verk Erlings Jónssonar aflijúpuð.
Steinþór segist vera mjög
ánægður með það að markmið
nefndarinnar hafi náðst: „Á
Ljósanótt í ár kemur íslendingur
til Reykjanesbæjar og það er
mikið gleðiefni að hann verði
hér áffam. Listaverkið Laxness-
fjöðrin eftir Erling Jónsson
verður einnig vígð að Skólavegi
1,” segir Steinþór.
Dagskrá hátíðarinnar í ár er
mjög fjölbreytt og lýsir Steinþór
yfir sérstakri ánægju með
ffumkvæði fyrirtækja, stofnanna
og ibúa í skipulagningu
hátíðarinnar: „Það hafa mjög
margir komið að skipu-
lagningunni og kornið með
nýjar hugmyndir. Það er einmitt
þess vegna sem hátíðin nær nú
yfir ijóra daga þar sem mjög
margt er í boði. Með því að
vinna saman að þessari hátíð þá
getum við látið hana vaxa og
verða að föstum Iið á
Reykjanesi. Fólk sér auðvitað
viðskiptatækifæri i þessu því
eins og allir vita komu 20
þúsund manns á Ljósanótt í
fyrra, fyrir utan það hvað þetta er
góð kynning fýrir sveitarfélag-
ið.”
Nú hefur þú persónulega lagt á
þig mikla vinnu síðustu 3 ára við
undirbúning á Ljósanótt sem
hlýtur að vera gríðarleg. Hvemig
sérðu fýrir þér framtíðina í þes-
sum efnum? „Jú, að sjáifsögðu
hefur vinnan verió mikil en að
sama skapi mjög skemmtileg.
Þetta hefur verið rnikill mótu-
nartími og er þá oft erfitt að
dreifa vinnunni um of. 1 ljósi
þess að Ljósanótt er í raun
komin lengra en mínar björtustu
vonir stóðu til mun ég eftir
Ljósanótt skila inn skipuriti til
Bæjarstjórnar þar sem ég legg
fram ítarlegar tillögur af
undirbúningi til framtíðar með
yfirstjórn ljósanefndar og þá
með virkri þátttöku flestra nefli-
da bæjarins svo og Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu."
Þegar Steinþór er spurður að þvi
hvort hann búist jaftivel við fleiri
gestum en i fyrra svara hann:
„Við getum alveg búist við
fleirum því veðurspáin er góð og
uppákomur eru fleiri, en það
sem er aðalatriðið í mínum huga
er að allir sem á Ljósanótt koma
skemmti sér vel,” segir Steinþór
að lokum.
Ljósanæturhelgin
hefst á fimmtudegi
Að þcssu sinni hefst Ljósanæturhátíðin á fímmtudegi og
stcndur fram á sunnudag. Eins og áður hefur kontiö
fram er um einstaklega veglega dagskrá að ræða. í dag,
fímmtudag verður Ljósanætur púttmót við Mánagötu og er
mótið í boði Toyota. Klukkan eitt verður mynd mánaðarins
sýnd í Kjarna.
Ljósanótt 2002 verður sett með opnun myndlistarsýningar í
Svarta pakkhúsinu klukkan 15.00 og í Stapanum klukkan 21.00
verður spennandi litskyggnusýning með íslensku landslagi, þar
sem flutt verður tónlist samhliða sýningunni.
- „Vió getum alveg búist við fleirum en í fyrra“, segir
Steinþór Jónsson, formaður Ljósanætur.
4