Víkurfréttir - 05.09.2002, Blaðsíða 8
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRETTIR
UÓSANÓTT A FÖSTUDAG
Afostudaginn veröur mikið
um að vera í Reykja-
nesbæ í tilefni Ljósanætur.
Fjöldi atriða verður í gangi um
allan bæ og langt fram á nótt.
Fjöldi verslana verða opnar til
klukkan 21.00 um kvöldið og
klukkan 13.00 opnarhand-
verkssýning í Framsóknar-
húsinu.Tónleikar meö hljóm-
sveitinni Guitar Islandico
vcrða í afgreiðslu Sparisjóðsins
í Keflavík og hcijast þeir
klukkan 16.30, en Gunnar
Þórðarsson er aðalsprautan í
þeirri hljómsveit. Ný Fimleika-
aðstaöa í íþróttahúsinu við
Sunnubraut vcrður vígð
klukkan 17.30 og um kvöldið
verða stórtónleikar á útisviði
við Hafnargötu þar sem 12
hljómsveitir munu koma fram,
m.a. hljómsveitin Land &
Synir.
Afsakið hlé ókeypis!
Á föstudagskvöldið verða haldnir stórtónleikar á
útisviði við Hafnargötuna. Á tónleikunum sem hefj-
ast klukkan 19.00 verður fjölbreytt dagskrá en þar
koma m.a. fram hljómsveitimar Elmarsbandið, Spik,
Silfurfálkinn, Gálan og Fálkar frá Keflavík. Ind-
verska prinsessan Leoncie mun taka lagið klukkan
21.00 og Rúnar Júlíusson stígur á sviðið um tíuleyt-
ið. Hljómsveitin Land og synir enda tónleikana, en
þeir byija að spila klukkan 22.20.
I tilefni tónleikanna hefur verið gefin út safnplata
sem ber sama heiti; Afsakið hlé og inniheldur 17 lög.
Allar hljómsveitimar eiga lag á diskinum. Þeir sem
koma á tónleikana fá safhplötuna ókeypis.
Handverkssýning í
Framsóknarhúsinu
Sýning á handverki og listiðnaði á vegum
Handverks og Hönnunar verður á dagskrá
Ljósanætur þar sem 25 konur sýna handverk
sitt. Sýningin er haldin í Framsóknarsalnum,
Hafhargötu 62 og verður sýningin formlega
opnuð í dag 5. september klukkan 17.00.
Sýningin stendur frá 5. til 15. september og
er opið alla daga ffá 13 til 17.
Kanadísk kvennarokksveit á Ljósanótt
Það verður sannarlega rokkað á N1 bar á fostudagskvöldið, því
kanadíska kvennarokksveitin Painting Daisies mun spila á staðnum í
tilefhi Ljósanætur. Stúlkumar í hljómsveitinni, þær Daisy Blue Grotf,
Rachelle Van Zanten , Kim Gryba og Carolyn Fortowsky frá
Edmonton í Kanada hafa getið sér ótrúlega gott orð vestan hafs og
hlotið all nokkrar viðurkenningar og meðal annars var hljómsveitin
valin skemmtikraftur ársins í Kanada árið 2001. Hljómsveitin er nú á
tónleikaferðalagi um Evrópu með viðkomu á íslandi og á Grænlandi.
Fjölmiðlar í Kanada hafa lofsamað hljómsveitina og tónlist þeirra og
segir tónlistargagnrýnandi tímaritsins „See Magazine” m.a.: „Painting
Daisies spila á tónleikum. Þær hafa fullt vald á sviðinu, hljóðfærum
sínum og áhorfendum. Tónlistin er vissulega írumstætt stelpustöff en
nægilega töff til að þurrka brosið ffaman úr smettunum á þeim sem
líta á þær sem stelpuband. Þetta er ekki hópur af poppprinsessum; þær
kunna að róta græjunum og brúka þær.”
Xenon
borðstofusett
Gegnheil eik
Alkantara áklæði
á stólum
Hlaut hönnunarverðlaun
í Belgíu árið 2001.
INNBÚ
Smiðjuvöllum 6 • Keflavík • Sími 421 4490
Verslun og verkstæði
Mega - sófi
Microsan - teflonvarið áklæði
stgr. kr. 102.410,-
—r-
■nmHHHMB
8