Víkurfréttir - 05.09.2002, Page 12
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRÉTTIR [;>r.J_________UÓSANÓTT Á LAUGARDAG
Ástin og lífið í
bíósal Duushúsa
Sýningin Ástin og lífið verður
sýnd í Bíósalnum í Duushúsum
laugardaginn 7. september. Þetta
sérstaka verk er tileinkað ástinni
og lífinu og túlkað með ljósum,
tónlist og sögum. Þrir listamenn
taka þátt i uppsetningunni, Sigur-
borg Kr. Hannesdóttir sagna-
kona, Birgir Sigurðsson ljósa-
listamaður og Tatu Kantomaa
tónlistamaður. Efni sýningarinn-
ar er sótt á Suðurnesin og m.a.
má nefna að Rauðhöfði kemur
þar við sögu.
Sögustundirnar verða þrjár á
laugardeginum kl. 16.00, kl.
18.00 og kl. 20.00. Hver þeirra
stendur yfir í u.þ.b. hálftíma og
er ókeypis inn.
Bílar og tæki
Fornbílar munu aka um
Reykjanesbæ á laugardaginn og
er þetta í fýrsta sinn sem þessum
glæsivögnum er ekið um götur
bæjarins. Gljáfægðir slökkvibílar
frá Brunavörnum Suðurnesja
þeyta lúðra og aka um götur
bæjarins. Það verða líka
mótórhjól á ferðinni því félagar í
Mótorhjólaklúbbnum Örnum
verða á ferðinni. Sérstök sýning
verður haldin á SBK planinu, þar
sem gestir fá tækifæri til að beija
þessi eðaltæki augum.
í þyrlu á Ljósanótt
ibúum og gestum Reykja-
nesbæjar gefst kostur á að fara í
þyrluflug í tilefni Ljósanætur.
Flogið verður með gesti seinni-
partinn á föstudag og fram á
kvöld og frá hádegi á laugardag
og fram á kvöld. Gert er ráð fyrir
að flugtíminn verði um 5-7
mínútur og verður flogið yfir
Reykjanesbæ. Verð fyrir einstak-
ling er 2.500 krónur og er þeim
sem hafa áhuga á þyrlufluginu
bent á að hringja í Óryggis- og
upplýsingamiðstöð Ljósanætur í
síma: 891-9101.
Landslið kaffibar-
þjóna i Kaffitárs-
bílnum
Á laugardaginn verður Kaffitárs-
bílnum lagt við Íshússtíg, nálægt
Ungó og þar verður landslið
kaffibarþjóna að selja kaffi til
gesta Ljósanætur. I kaffilandslið-
inu eru: Ása Pettersen, Hjörtur
Skúlason og Sonja Grant lands-
liðsþjálfari, en þeim til halds og
trausts verða Aðalheiður Héðins-
dóttir framkvæmdastjóri Kaffi-
társ og Guðbjörg Ásbjömsdóttir
framleiðslustjóri. Á Ljósanótt í
fýrra var Kaffitársbillinn við ís-
hússtíginn og segir Aðalheiður
að þeim hafi verið tekið mjög
vel: “Við seldum á milli 500 og
600 bolla af kaffi i fýrra og við
búumst við ennþá meiri sölu í
ár,” sagði Aðalheiður í samtali
við Víkurfréttir.
Leikritið Gesturinn á Ljósanótt
Keflvíkingarnir Gunnar Eyjólfsson og Jóna Guðrún Jónsdóttir í aðalhlutverkum
ásamt stórleikaranum Ingvari E. Sigurðssyni og Kristjáni Franklín
Leikritið Gesturinn eftir
Eric-Emmanuel Schmitt
í þýðingu Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar verður sýnt í
Frumleikhúsinu, Vesturbraut
17, á Ljósanótt, laugardaginn
7. sept.kl. 18.30.
Þetta er samstarfsverkefni
Leikfélags Reykjavíkur og
leikhópsins Þíbilju sem koma
hingað með sýninguna í tilefni
Ljósanætur. Leikfélag
Keflavíkur tekur á móti hóp-
num og er þeim til aðstoðar.
Listamaður Reykjanesbæjar,
Gunnar Eyjólfsson leikur
aðalhlutverkið en með önnur
hlutverk fara Ingvar E.
Sigurðsson, Jóna Guðrún
Jónsdóttir og Kristján Franklín
Magnús. Leikstjóri er Þór
Tulinius.
Leikritið Gesturinn sem sýndur
var frá því í bytjun febrúar við
góða aðsókn á Litla sviði
Borgarleikhússins, fjallar um
dularfulla nótt á skrifstofu
Sigmunds Freuds í Vínarborg.
Hann er ofsóttur af nasistum,
og þegar að angist hans er sem
mest birtist skyndilega ókunnur
gestur sem segist vera Guð.
Efasemdarmaðurinn Freud
lætur „glepjast’’, eftir að gestur-
inn hefur gert nokkra, að því er
virðist yfimáttúrulega og dular-
fulla hluti, en aftur er trúin
tekin frá honum þegar hann fær
spurnir af því að geðveill
maður haldinn lygasýki hafi
falið sig í húsi hans.
Verkið er létt, spennandi, en
fýrst og síðast áleitið, því það
varpar fram ótal spurningum
um manninn, lífið, trúarþörf-
ina, kærleikann, svo að eitthvað
sé nefht.
Haldið var málþing um verkið
á vegum Siðffæðistofnunar og
Borgarleikhússins, þar sem
Pétur Pétursson prófessor í
Guðfræðideildinni, flutti meðal
annarra erindi um verkið.
Aðeins verður um þessa einu
sýningu að ræða hér á
Suðurnesjum og er fólk því
hvatt til að tryggja sér miða
sem fýrst.
Fríða sýnir
lágmyndir hjá
Fjólu
Fríða Rögnvaldsdóttir opnar
myndlistarsýningu hjá Fjólu á
Hafhargötu í dag fimmtudag. Þar
sýnir hún lágmyndir unnar í stey-
pu á striga.
Fríða hóf myndlist sína í
Baðstofúnni í Keflavík en hefur
síðan farið á mörg námskeið
Myndlista- og handíðaskólans.
Fyrir stuttu síðan kom hún heim
fiá Belgiu þar sem hún stundaði
myndlistarnám í tvö ár. Þar
kymntist hún m.a. þessari tækni,
að vinna lágmyndir í steypu á
striga en nú á Ljósanótt sýnir hún
11 stórar myndir en að auki er
ein upp á vegg í
Gleraugnaverslun Keflavíkur.
Fríða sagði myndimar vera fan-
tasíur; fólk og form. Verði er
stillt í hóf í tilefhi Ljósanætur og
fólki er velkomið að gera tilboð í
myndirnar. Opnunartími er sá
sami og hjá Fjólu.
12