Víkurfréttir - 05.09.2002, Page 14
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
UÓSANÓTT M_____________VELKOMIN Á UÓSANÓTT
í tilefni af Ljósnótt eru \erslanir og fyrirtæki Reykjanesbæjar hvött til aö setja hvít ljós eða
seríur í glugga og bæjarbúar að draga íslenska fánann að húni, setja upp hvítar blöðrur og
koma fyrir friðarkertum fyrir utan hjá sér Ljósanæturhelgina. Að sögn Steinþórs Jónssonar
formanns undirbúningsnefndarinnar vonast hann til að sem flestir taki þátt í að skreyta bæ-
inn: „Eg vona að sem flestir dragi íslenska fánann aö húni, setji hvít Ijós í glugga og komi
fyrir friðarkertum fyrir utan hjá.sér. Við erum að vona að í framtíöinni verði skrevtingar
bæjarbúa stór hluti af Ljósanótt og ég er viss um að sú veröi þróunin,” segir Steinþór.
Skreytum búðir
bæinn!
Norrænt samstarf í íslandsbanka á Ljósanótt
Teygjustökk
fyrir ofurhuga
A Ljósanæturhátiðinni er
hugsað vel um að þjóna ofiir-
hugum bæjarins, sem og öðr-
um gestum. Á fostudeginum
verður teygjustökk á Keflavík-
urtúni og verður teygjan
strekkt klukkan 18, en opið
verður að minnsta kosti til
miðnættis. Á laugardeginum
verður einnig boðið upp á
teygjustökk á sama stað og
geta fyrstu gestir farið að
stökkva um hádegi, en það
verður hægt til miðnættis. Þeir
ofurhugar sem stökkva i
teygjustökkinu fá óvæntan
glaðning frá Café Duus.
Á laugardeginum munu svo
ofurhugar sýna listir sínar á
Mótorcross hjólum á Ægis-
götu við Miðbryggju og sæ-
þotukappar svífa um sjóinn
fyrir utan smúbátahöfnina frá
15-18.
Starfsfólk íslandsbanka vill taka
þátt í þessum merka viðburði
sem Ljósanóttin er, með því að
hafa opið hús á laugardaginn og
bjóða upp á skemmtun á vinnu-
stað okkar. Bankinn verður opinn
kl. 15.30 -17.30 og við höfum
fengið til liðs við okkur frábært
listafólk, leikara og hljómlista-
menn. Sýnt verður leikritið “Nor-
rænt samstarf” eftir Kristján
Þórð Hrafnsson, sem fjallar um
myndlistarkonu á fundi með
tveimur yfirmönnum í banka þar
sem hún er að kynna fyrir þeim
gjöming sem hana langar til að
standa fýrir í afgreiðslusal bank-
ans. Sýningar taka 10 minútur og
verða kl. 16.00 og 17.00. Leikar-
ar eru Guðmundur Olafsson,
Halldór Gylfason og Harpa Am-
ardóttir sem jafnframt er leik-
stjóri.
Hljómlistarfólkið er ekki af verri
endanaum en það er Rúnar Júll
og Qölskylda sem munu sjá til
þess að halda uppi stemmning-
unni á milli leikatriðanna. Það
verður boðið upp á kaffi og með-
læti og einnig Svala fyrir bömin.
Við vonum að sem flestir láti sjá
sig og taki þátt í gleðinni með
okkur.
Starfsfólk íslandsbanka
Keflavík
Aieins á LJósanótt
- npið fram eflir nóttu!
í tilefni Ljósanætur ætlum við að hafa opið til kl. 02:00
á laugardagskvöld, bæði í sal og heimsendingar.
Ljómandi Ljósanæturtilboð!
16" pizza með 2 áleggjum, stór skammtur af
brauðstöngum og 2 L af kók á kr. 1.950,-
Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777
...við erum langbestir í mat!
14