Víkurfréttir - 05.09.2002, Page 18
Ágætu bæjarbúar.
Ljósanótt, menningar- og fjölskyldudagar í Reykjanesbæ,
er nú haldin í þriðja sinn. Dagskráin verður viðameiri með
hverju árinu sem líður og nær nú orðið yfir 4 daga. Margir
áhugaveröir viðburðir af ýmsu tagi munu eiga sér stað og
ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fjöldi manns
kemur að undirbúningi Ljósanætur á einn eða annan hátt,
einstaklingar, hópar og fyrirtæki og vill nefndin þakka þeim
öllum góða samvinnu.
Frumkvæði og stuðningur fólksins í bænum er grundvöllurinn
sem við byggjum á. Markmið okkar allra er að skapa jákvætt
bæjarfélag sem vekur samkennd hjá okkur íbúunum og
löngun annarra til sækja okkur heim.
Góða skemmtun á Ljósanótt.
Steinþór Jónsson formaður
íris Jónsdóttir
Johan D.Jónsson
Stefán Bjarkason
Valgerður Guðmundsdóttir
AÐRIR VIÐBURÐIR Á UÓSANÓTT:
LJÓSALAGIÐ 2002. Sala geisladisksins verður í umsjón
Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags og Ungmennafélags
Njarðvíkur. Frábær tónlist, öll 10 lögin sem komust í úrslit.
LJÓSMYNDAKEPPNIN LJÓSANÓTT 2002.
Ljósmyndakeppni verður haldin um bestu Ijósmyndina
sem tengist Ljósanótt 2002.
Myndefnið er frjálst en verður þó að tengjast Ljósanótt.
Sendið myndirnar á skrifstofu Víkurfrétta merktar:
Ljósmyndakeppni - Ljósanótt 2002. Glæsileg verðlaun.
Kaffitár verður með landslið kaffibarþjóna til að gera
framandi kaffidrykki fyrir hátíðargesti. Kíkið á Kaffitársbílinn
við Íshússtíg, nálægt Ungó. Kaffibarþjónarnir verða með
uppbrettar ermar frá kl. 13:00 á laugardaginn.
Börn og útivist. Óvænt uppákoma milli 16:00- 17:00.
Blómasmiðja Ómars. Rósasýning.
Box-klúbburinn. Opið hús.
Söluborð og vagnar víða um miðbæinn. Vöfflur, kaffi kakó,
blóm, sykurlopi, poppkorn, flóðljósasprotar, blöðrur,
Hósannavagninn og margt fleira
Munið vef
hátíðarinnar:
www.ljosanott.is
UPPLÝSINGAR
Almennar upplýsingar og öryggismál.
LOKUN GATNA
Hafnargötunni (frá Skólavegi) verður
lokað frá kl. 12 - 24 eða frá hádegi til
miðnættisá laugardeginum. Einnigverða
neðstu hlutar Tjarnargötu, Vesturgötu og
Vesturbrautar lokaðir allan daginn.
Bílastæði: Við Reykjaneshöll, Fjölbrautaskóla,
Sundmiðstöð, bak við SpKef.
Sjá nánará Ijosanott.is
Strætó og rútuferðir.
Almenningsvagnar Reykjanesbæjar, AVR strætó verður
meðáætlunarferðirsamkvæmtkvöldáætlunfra kl. 16:00
til 00:30
SBK verður með rútuferðir:
-frá Reykjavík kl. 10:30,14:30,18:00,21:00.
-fra Reykjanesbæ kl. 16:00,19:30 ogaukaferð kl. 24:00.
Aðalstöðin býður 20% afslátt af leigubílaakstri frá
kl. 20:00 til 24:00 á Ljósanótt.
Öryggisráð Ljósanætur minnir á:
Öryggismiðstöð sími 8919101
(sími Útideildar) verður starfrækt að
Hafnargötu 8, (bakvið Nýung) þar sem týnd
börn njóta liðveislu. Einnigtapað -fundið.
Sjúkrabíll verðurá staðnum ásamt
sjúkraflutningamanni.
f neyðartilfellum skal hringt í 112 neyðarlínu
allra landsmanna. Högum akstri miðað við
aðstæður. Foreldrarogforráðamenn eru
hvattir til að fylgjast vel með börnum sínum
og eiga með þeim ánægjulega samverustund.
Útideildin verður starfrækt fram á rauða nótt.
Upplýsingar.
Upplýsingamiðstöð S: 891-9101 verður
starfrækt að Hafnargötu 8, (bakvið Nýung).
Nánari upplýsingar um dagskrá og
staðsetningar atburða, þyrluflug,
hestvagnaferðir um gamla bæinn ogfl.
Nánari upplýsingar í bæjarblöðum og á Ijosanott.is
Snyrtingar. Útisalerni eru staðsett:
-viðSBK
- við Leikjaland - Nóatún
- fyrir neðan DUUS húsin.
Dagskrábæklingur er styrktur af Hitaveitu Suðurnesja.
Undirbúningsnefnd þakkar öllum sem tekið hafa þátt í
undirbúningi hátíðarinnar, fyrirtækjum oggestum öllum.
Útgefandi: Undirbúningsnefnd Ljósanætur.
Ábyrgðarmaður: Steinþór Jónsson.
Hönnun: Víkurfréttir.
Prentun: Grágás. OjJjjl