Víkurfréttir - 05.09.2002, Síða 22
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
UÓSANÓTT M_____________VELKOMIN Á UÓSANÓTT
Uppboð við Svarta pakkhúsið
verður aftur á vegum félagsmanna í Félagi myndlistarmanna kl. 22.15.
á Ljósanótt. Eins og sjá má tóku margir þátt í fyrra.
Margt í boði
fyrir börnin
Á laugardaginn verður mikið
um dýrðir fyrir bömin um all-
an Reykjanesbæ í tilefni af
Ljósanæturhátíðinni. Börnin
geta farið í sérstakt Leikjaland
þar sem ýmis sprelltæki verða
í boði, t.d. trampólín, risabox
og risarennibraut. Café Duus
býður bömunum upp á andlits-
málun, hoppukastala og leik-
tæki. Á grasflötinni við Vestur-
braut sýna skátarnir starf sitt
og syngja skátalög, en bæjar-
stjórinn, Ámi Sigfiisson mætir
með gítarinn klukkan 16.30 og
tekur lagið með skátunum.
Veltubílinn verður við Hafiiar-
götuna og víkingar skylmast á
hringtorginu við Duus húsin.
Víkurhestar bjóða uppá hest-
vagnaferðir sem farnar verða
frá Upplýsingamiðstöðinni,
Hafnargötu 8 og kostar ferðin
200 krónur.
Oryggi
Til að tryggja öryggi og
lialda uppi gæslu á Ljósa-
nótt hefur Öryggisráð
Ljósanætur útbúið nákvænia
áætlun fyrir alia aðila er konia
að öryggismálum á svæðinu.
Öryggisráðið, sem samanstendur
meðal annars af fulltrúum
slökkviliðs og sjúkraflutninga,
lögreglu og björgunarsveita, hef-
ur yfirfarið öryggismál sem
tengjast svæðinu og hátíðarhöld-
um á komandi Ljósanótt. Hugað
hefúr verið sérstaklega að skipu-
lagi á svæðinu og hugsanlegum
uppákomum, aðkomu lögreglu,
slökkviliðs og sjúkrabíla og ann-
arra viðbragðsaðila sem og verk-
þætti og viðbrögð þeirra. Ymis-
legt hefur komið i ljós og hafa
verið gerðar úrbætur og áætlun
um viðeigandi ráðstafannir.
Öryggisráð Ljósanætur minnir á
Öryggismiðstöð/Upplýsinga-
þjónustu, þar sem fulltrúar frá
í fyrirrúmi á Ljósanótt
slökkviliði og sjúkrahúsi eru í
beinum samskiptum við alla við-
braðgsaðila og verður öryggis-
miðstöðin beintengd lögreglu,
slökkviliði og Neyðarlínu um
TETRA ijarskiptakerfi.
Slökkvilið Brunavarna Suður-
nesja og lögreglan verða með
aukinn útkallsstyrk á tímabilinu
12 á hádegi og fram eftir nóttu.
Þegar mest verður þá verða 4
mannaðir lögrelgubílar til taks
ásamt 4 lögregluþjónum sem
verða á ferðinni.
Með notkunn TETRA fjarskipta-
kerfisins verður beint samband
við Neyðarlínu og samræmt fjar-
skiptasamaband við viðbragðs-
aðila s.s. sökkvilið, lögreglu,
Björgunarsveit Suðurnesja og
sjúkrahús. Þvi verður hægt að
virkja hópslysaáætlun með stutt-
um fýrirvara. Hlutverk viðbraðs-
aðila er víðtækt en skilgreint eins
og kostur er. Þá er ákveðið að
fulltrúar viðbragðsaðila mæti í
Öryggsimiðstöð á hádegi til að
fínstilla verkþætti og yfirfara
stöðu mála, prófa fjarskipti og fl.
Björgunarsveitin Suðumes verð-
ur með björgunarbátinn Njörð
allann daginn, en báturinn verður
mannaður köfúrum í viðbragðs-
stöðu og er fúlltrúi þeirra i beinu
sambandi við Öryggismiðstöð-
ina. Þá verður einnig gæsla á
svæðinu og bílar á ferðinni.
Simanúmer Öryggismiðstöðvar-
innar/Upplýsingaþjónustunnar
er: 891-9101.
Frá fundi öryggisnefndar Ljósanætur.
■