Víkurfréttir - 05.09.2002, Síða 26
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Spurningin
Hvað ætlar þú að
gera á Ljósanótt?
Sólmundur Jónsson, Garði,
eftirlaunaþcgi
Við fbrum örugglega til
Keflavíkur á Ljósanótt.
Soffía Grímsdóttir,
heimavinnandi húsmóöir
Fara niður í bæ og kíkja á
fjörið.
Hjördís Rós Egilsdóttir,
afgreiðslustúlka í Samkaup
Ég ætla bara að skella mér á
djammið.
Kristof Dudaj,
starfsmaður ISAL
Ef stelpan mín sofnar snemma
þá kem ég.
Ólafur Einar Hrólfsson,
pípari
Ég ætla að rölta um bæinn,
skoða fólkið og fara síðan á
djammið.
LISTAVERKAAFHJÚPUN Á UÓSANÓTT
Laxness áhrifavaldur segir Erlingur
Jónsson myndhöggvari og listamaður
sem mun vígja nýtt listaverk við
gamla Barnaskólann í Keflavík
Laxness fjöðrin
vígð á Ljósanótt
Á laugardaginn verður vigt lis-
taverk eftir Erling Jónsson mynd-
höggvara fyrir utan gamla
Barnaskólann að Skólavegi 1.
Verkið nefnist Laxnessfjöðrin og
er þetta í annað sinn sem
Erlingur vígir listaverk sín á
Ljósanótt, en í fyrra vígði hann
listaverkið Flug sem stendur fýrir
ffaman Ný-Ung á Hafnargötu.
Erlingur sem er nýkontinn til
landsins segir að sagan á bakvið
Laxnessfjöðrina sé sérstök:
„Fyrir mig er fjöðrin tákn andans
sem svífur óheftur. Ég var einu
sinni staddur vestur i Berufirði í
Reykhólasveit, en þangað fer ég
stundum á sumrin ef ég mögu-
lega get. Eitt kvöldið var ég á
labbi, en þetta var mjög yndislegt
kvöld og kyrrð var yfir öllu og ég
fann einhvern áhrifamátt frá
umhverfinu. Þegar ég stóð þama
úti í þessu fallega umhverfi sá ég
stóran örn svífa þarna yfir og
eins og ernir eru, hafði hann allt
á valdi sínu,“ segir Erlingur og
bætir við að örninn hafi flogið
burt stuttu seinna. Erlingi fannst
þessi sýn stórkostleg: „Mér datt í
hug þegar ég horfði á örninn
svífa þarna yfir að svona væri
Halldór Laxness fyrir okkur
Islendinga. Hann kom og hafði
Erlingur Jónsson mynd-
höggvari kemur reglulega til
íslands til að anda að sér
hámenningarlfotinu. Hér situr
hann ásamt góðum vini sínum
og fyrrverandi nemanda, Birgi
Guðnasyni, athafnamanni.
allt á valdi sínu með sinni óum-
ræðilegu snilld,“ segir Erlingur.
Sama dag var Erlingur á gangi i
fjörunni við Kinnastaói í
Þorskafirði og gekk hann þá
fram á amarfjöður: „Þegar ég tók
fjöðrina upp hugsaði ég með mér
að þetta væri Laxnessfjöðrin og
þetta er sagan á bakvið listaverk-
ið,“ segir Erlingur.
Eins og áður segir verður lis-
taverkið vígt fyrir framan gamla
Bamaskólann klukkan 15 á lau-
gardaginn, en Erlingur sem var
kennari í yfir 20 ár kenndi til
margra ára við Barnaskólann.
Erlingur hefur búið i Osló í um
20 ár og starfar hann þar sem
myndhöggvari. Hann segist
koma mjög reglulega til íslands:
„Halldór Laxness sagði eitt sinn;
„Það er hámenningarlofl á Islan-
di“ og ég er hjartanlega sammála
honurn," segir Erlingur að
lokum.
Ljósalagið
2002
geisladiskur
seldur á
Ljósa-
helginni
Sala á geisladisknum sem inniheldur Ljósalagið 2002, ásamt lögunum 9 sem komust í úrslit verður
í umsjón íþróttafólks Ungmennafélags Keflavíkur og Ungmennafélags Njarðvíkur. Ljósalagið
hefur hljómað á Ijósvakamiðlunum undanfarna daga, enda er um stórgott lag að ræða,
eins og reyndar er um öll lögin á disknum.
26