Víkurfréttir - 05.09.2002, Síða 28
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
UÓSANÓTT hj___________STEMMNING Á UÓSANÓTT
Strætó og
rútuferðir
AVR strætó verður með
áætlunarferðir samkvæmt
kvöldáætlun frá klukkan
16.00 til 00.30 á lau-
gardaginn. Rútuferðir
SBK verða sem hér segir:
Frá Reykjavík kl. 10.30,
14.30, 18.00 og 21.00. Frá
Reykjanesbæ kl: 16.00,
19.30 og aukaferð verður
farin klukkan 24.00.
Söluborð um
allan bæ
A laugardaginn verða sölu-
vagnar og borð um allan
bæ, en þeir verða alls um
níu talsins sem er mikil
aukning frá því á Ljósanótt
í fyrra. Nú geta gestir
hátíðarinnar bragðað á
vöfllum, kakói, sykurlopa,
poppkorni, keypt blóm og
biöðrur og margt fleira.
Söluvagnarnir verða
staðsettir víða um
miðbæinn og ættu ekki að
fara framhjá neinum.
Farþegaskipið Moby Dick
lætur úr höfn á Ljósanótt.
Farið verður í sérstaka
hvalaskoöunarferö á tilboðs-
veröi að morgni laugardagsins
og um kvöldiö í Ljósanætur-
siglingu. Þá verða léttar
veitingar í boói, harmonikku-
tónlist og dansað á dekkinu ef
veður leyflr.
Fyrsta ferðin verður farin kl.
10:00. Það er þriggja tima hvala-
og höfrungaskoðun á Garðsjó.
Brottför verður frá Keflavík-
urhöfn.
Um kvöldið verður sérstök
Ljósanætursigling. Lagt verður
af stað frá sömu höfn kl. 21:30
og farið í rúmlega klukkustund-
arsiglingu: „Við munum skreyta
skipið í tilefni dagsins og bjóða
upp á léttar veitingar um borð
með hátíðlegu sniði og vera með
lifandi tónlist en nikkumar verða
á sínum stað og fólk getur dansað
við ljúfa harmonikkutóna fram
eftir kvöldi. Fólk er hvatt til að
mæta í betri fotum eða eftir því
sem veður gefur tilefni til og ekki
væri úr vegi að dansa á dekkinu.
Það verður eflaust ógleymanlegt
að upplifa steminguna ffá þessu
sjónarhomi þegar kveikt verður á
ljósunum á Berginu, horft á
flugeldasýninguna og fylgst með
þegar víkingaskipið Islendingur
siglir inn í höfhina", segir Helga
lngimundardóttir sem er einn af
eigendum Moby Dick.
Verð í kvöldsiglinguna verður kr.
1.500 fyrir fullorðna og kr. 500
fyrir böm 12 ára og yngri. Böm
þurfa að vera í fylgd með full-
orðnum.
„Okkur finnst alveg tilvalið að
nota skipið í þessa kvöldferð þar
sem margir hafa nú þegar
siglt með okkur að kvöldi til.
Stemmningin í þessum ferðum
hefúr verið alveg einstök. Skipið
er eiginlega fljótandi samkomu-
staður sem hentar til ýmis konar
mannamóta", segir Helga.
Nánari upplýsingar fást í sima
421 7777, 800 8777 eða 896
5598.
Ljósanætursigling með Moby Dick
Harmonikkur með í ferð og dansað á dekki fram eftir kvöldi
Kæru íbúar
Reykjanesbæjar
og aðrir gestir!
Gleðilega Ljósanótt. Þaö er sérlega ánægjulegt fyrir mig, þar
sem ég er nýsestur í stól bæjarstjóra hér í Reykjanesbæ að
hafa fylgst með og verið þátttakandi í undirbúningi
Ljósanætur 2002.
Dagskrá Ljósanætur í ár er einstaklega glæsileg, enda
spannar hún nú yfir fjóra daga. Nú þegar eru nokkur atriði
hátíðarinnar komin til framkvæmda og ber þar fyrst aö nefna
Ljósalagið sem við íbúar Reykjanesbæjar getum verið stoltir
af. Hápunkturinn verður heimkoma ístendings til
Reykjanesbæjar á Ljósanótt en við bindum miklar vonir við
víkingaskipið í framtíðinni og að það verði ferðaþjónustunni
hér til framdráttar.
Það hefur verið virkiiega gaman að kynnast því hve margir
aðilar koma að undirbúningi hátíðarinnar. Fyrirtæki, stofnanir
og íbúar hafa svo sannarlega ekki látið sitt eftir liggja í
þessum undirbúningi og án þátttöku þeirra væri engin
Ljósanótt.
Ljósanótt í Reykjanesbæ er orðin ein af stærstu menningar-
og fjölskylduhátíðum landsins og hefur fest sig í sessi sem
slík. Ég vona að sem flestir íbúar Reykjanesbæjar taki þátt í Árni Sigfússon
hátíðarhöldunum að þessu sinni og upplifi einstaka og fjöl- bœjarstjóri
breytta menningarviðburði, viðburði sem við getum öll verið
stoltaf.
Góða skemmtun.
28