Víkurfréttir - 19.12.2002, Qupperneq 28
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
ll ífsi rlyi n isl a
Logi Þormóðsson
MEÐ VIUANN AÐ VOPNI
- Logi Þormóðsson í viðtali við jólablað Víkurfrétta
Logi Þormóðsson annar
stofnanda fískvinnslunn-
ar Tros í Sandgerði er
Suðurnesjamönnum að góðu
kunnur, enda þekktur fyrir
það að láta skoðanir sínar í
Ijós. Logi er frumkvöðull á
mörgum sviðum sjávarútvegs
og meðal annars er hann
hugmyndafræðingur að
stofnun fiskmarkaða á Is-
landi, en fyrir 15 árum fékk
hann ásamt öðrum hugmynd
að tölvukerfí fyrir fískmark-
aðsuppboð sem gjörbylti
möguleikum á kaupum og
sölu á físki á íslandi. Hann er
líka frumkvöðull í ferskfísk-
útflutningi, en Tros hefur
flutt út ferskan fisk með flugi
í 25 ár og er áætluð velta á
þessu ári verði rúmir tveir
milljarðar króna. Logi er
giftur Bjargey Einarsdóttur
og eiga þau fjögur börn og
þrjú barnabörn.
Þann 25. nóvember fyrir tveim-
ur árum var Logi ásamt eigin-
konu sinni á leið í flugvél til
Irlands þar sem þau ætluðu sér
að eyða helginni saman í
Dublin. Logi man eftir því þeg-
ar þau flugu út, en síðan man
hann ekki meira fyrr en í janú-
ar: „Við flugum út á fimmtu-
degi og á sunnudagsmorgnin-
um veikist ég og konan mín
hringir strax á sjúkrabíl og ég
var fluttur í snatri á sjúkrahús.
Eftir miklar og strangar rann-
sóknir var ég greindur með
Herpes vírus í heila, þessi virus
varð þess valdandi að smátt og
smátt fjaraði ég út.“
Herpes við Iteila
Herpesvírus er vel þekktur sem
vírus sem veldur frunsu í
mönnum og talið er að hann
liggi í dvala í flestu fólki, og
undir miklu álagi eða við önnur
veikindi blossi hann upp og
getur valdið miklum skaða.
Um 80% þeirra sem fá Herpes
í heila látast af völdum hans.
En þeir sem lifa af eiga oft við
mikil veikindi að stríða s.s.löm-
un málleysi, minnisleysi og
ýmsa aðra kvilla. Herpes vírus-
inn var greindur í gegnum
mænuvökva og hófst með-
höndlun hans strax á þriðja
degi frá innkomu á sjúkrahúsið,
þetta eru mjög sterk lyf sem
höfðu ýmsar aukaverkanir í för
með sér svo sem ristilbólgur,
blóðtappa og ýmislegt annað.
Fjölskylda Loga stóð þétt við
bakið á honum þann tíma sem
hann lá á sjúkraúsinu og voru
undirbúin fyrir það versta
hvenær sem var.
Talinn af fjórum sinnum
„Það var ekki fyrr en 23. des-
ember að fjölskyldu minni var
sagt að ég myndi að öllum lík-
indum hafa það af, en þá var
búið að telja mig af að minnsta
kosti fjórum sinnum. Þeim var
líka gerð grein fyrir því að ég
myndi verða mállaus, ekki geta
gengið og að ég yrði lamaður
öðru megin, það væru bara
eðlileg eftirköst", segir Logi.
Lyfjagjöfinn hafði slæm áhrif á
ristillinn og á tímabili var hald-
ið að það yrði að fjarlægja
hann en sem betur fer gengu
þær bólgur til baka.
Að sögn Loga er mjög erfitt að
gera sér grein fyrir einkennum
sem fylgja vírusnum og segir
hann að sér hafi bara liðið
ágætlega áður en þetta gerðist:
„Eg var nátturulega í mjög
miklu álagsstarfi, ferðaðist út
um allan heim og var sífellt á
þönum. Eg fann engin einkenni
sem bentu til þess að ég væri
eitthvað veikur og konan mín
sá heldur ekkert athugavert við
mig. Þetta getur komið fyrir
alla,“ segir Logi alvarlegur á
svip.
Með viljann að leiðarljósi
Þann 6. janúar kom Logi ásamt
fjölskyldu sinni heim til íslands
eftir að hafa legið á sjúkra-
húsi á írlandi í tæpa tvo mánuði
og var hann strax lagður inn á
Landspítala háskólasjúkrahús
þar sem hann lá fram í febrúar.
Á þessum tíma var hann búinn
að missa mikinn mátt hægra
megin í líkamanum en ffá byrj-
..Það er dálítið
skrýtið stundum að
finna enga lykt en
þegar ég var strák-
ur í sveit þá var
svo vond lykt þar
að ég vandi mig á
það að vera ekkert
að þefa, þannig að
ég tók ekkert eftir
því fyrr en löngu
seinna að ég fyndi
ekki lykt..
'*£ é L
$ Mm1’
\ik =£&
28