Víkurfréttir - 19.12.2002, Side 32
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Ósíium
Qfuðurnesjamönnum
ö(TumgGMegmjóGi
ogfarsceG Gomandi árs.
n
a annu sem er
STUÐLABERG
v
idsGiptin
Ásberg
Fasteignasala *"J
■_________GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Þakkir til
Mjög viöburðarríku ári
er nú senn að ljúka og
nýtt tekur við með sín
tækifæri og nýjar vonir. Við
þessi tímamút tel ég rétt að
rifja upp ýmislegt að því sem
gert hefur verið og snýr af
störfum mínum á Alþingi á yf-
irstandandi ári. Ekki er hægt
að segja annað en að á árinu
hafi mörg af baráttumálum
okkar Suðurnesjamanna náö
þeim þroska að komast af stað
eða jafnvel klárast. Efst trónir
sá langþráöi áfangi að tvöföld-
un Reykjanesbrautarinnar
verður að veruleika eftir ára-
tuga langa baráttu. Ég held að
margir geri sér ekki grein fyrir
því hve mikil vinna liggur að
baki slíkri ákvörðun enda ekki
von. Ég tel þú að allir sjái að ef
ekki hefði komiö til úrofa sam-
staða Suðurnesjamanna fyrir
framkvæmdinni hcfði hún enn
verið á umræðustigi. Eftir lýs-
ingu brautarinnar er þetta svo
sannarlega fullkominn árang-
ur og eins fullkomiö öryggi fyr-
ir vegfarendur og hugsast get-
ur.
Suðurnesjamanna
Mörg önnur mál sem tengjast
okkur fá brautargengi fram á
næsta ár og má þar nefna af-
greiðslur íjárlaganefndar til Al-
þingis um fjárveitingar til svæð-
isins. Duushúsin fengu 7 milljón-
ir króna, fræðasetur víkinga á
Fitjum fékk 7 milljónir, Saltfisk-
setur i Grindavík fékk 7 milljón-
ir, byggðasafn í Gerðahreppi 3
milljónir, upplýsingamiðstöðvar
á Suðumesjum fá um 6 milljónir
samtals og Sæfiskasaín í Höfn-
um 3,5 milljónir króna.
Hafnarmál hafa einnig verið í
eðlilegri vinnslu og má þar nefha
höfnina í Grindavík sem hefur
verið endurbyggð fyrir á annan
milljarð króna á síðustu árum.
Síðustu vikurnar hef ég fundið
tyrir miklum stuðningi héðan af
svæðinu sem hefur verið mér
mikill styrkur í þeirri baráttu
minni að halda þingsæti mínu á
næsta kjörtímabili. Ekki er útséð
um að það takist. Yfir 300
manna fhndur ásamt fjölda sím-
tala, bréfa og viðtala, lýsir öllu
sem þarf um þann stuðning sem
mín störf fá hér á svæðinu. Fyrir
þennan mikla stuðning vil ég
þakka af alhug og er sama hvem-
ig fer þá verður hann mér ávalt
efstur í hug. Um leið og ég fagna
komu jólanna óska ég og fjöl-
skylda mín ykkur öllum gleði-
legrar hátíðar og farsældar á nýju
ári með kærri þökk fyrir það ár
sem er að líða.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján Pálsson
alþingismaður
yfir hátíðarnar:
. des LOKAÐ
opið kl. 10-17
31. des. og 1. jan. LOKAÐ
2. jan. opið 13-17
EIGNAMIÐLUN SUDURNESJA
Hafnargotu 17, Keflavík - Sími 421 1700
Skötu-
veisla
Lions
í Vogum
Samkvæmt árlegri venju halda
félagar í Lionsklúbbnum Keili í
Vogum SKÖTUVEISLU sína nú
fyrir jólin. Hún verður laugar-
daginn 21. des. n. k. og opnar
húsið kl 14:00. Snætt verður í
húsi klúbbsins að Aragerði 4.
Fyrir ókunnuga ætti að vera
auðratað því húsið er merkt inn á
kortið af Vogunum þegar komið
er inn í þorpið. Auk þess mun
fáni Lions blakta við hún við
húsið. Boðið verður upp á hefð-
bundnar veitingar bæði skötu og
saltfisk.
Ekki verður hætt að snæða fyrr
en um kl 22:00 eða síðar um
kvöldið. Verð á veitingunum
verður kr 2.500 á mann.Venja er,
að fjöldi gesta komi og gæði sér
á veisluföngunum og vonast
Lionsfélagar að svo verði nú sem
endranær.
32