Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 32

Víkurfréttir - 19.12.2002, Page 32
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is Ósíium Qfuðurnesjamönnum ö(TumgGMegmjóGi ogfarsceG Gomandi árs. n a annu sem er STUÐLABERG v idsGiptin Ásberg Fasteignasala *"J ■_________GLEÐILEGA HÁTÍÐ Þakkir til Mjög viöburðarríku ári er nú senn að ljúka og nýtt tekur við með sín tækifæri og nýjar vonir. Við þessi tímamút tel ég rétt að rifja upp ýmislegt að því sem gert hefur verið og snýr af störfum mínum á Alþingi á yf- irstandandi ári. Ekki er hægt að segja annað en að á árinu hafi mörg af baráttumálum okkar Suðurnesjamanna náö þeim þroska að komast af stað eða jafnvel klárast. Efst trónir sá langþráöi áfangi að tvöföld- un Reykjanesbrautarinnar verður að veruleika eftir ára- tuga langa baráttu. Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir því hve mikil vinna liggur að baki slíkri ákvörðun enda ekki von. Ég tel þú að allir sjái að ef ekki hefði komiö til úrofa sam- staða Suðurnesjamanna fyrir framkvæmdinni hcfði hún enn verið á umræðustigi. Eftir lýs- ingu brautarinnar er þetta svo sannarlega fullkominn árang- ur og eins fullkomiö öryggi fyr- ir vegfarendur og hugsast get- ur. Suðurnesjamanna Mörg önnur mál sem tengjast okkur fá brautargengi fram á næsta ár og má þar nefna af- greiðslur íjárlaganefndar til Al- þingis um fjárveitingar til svæð- isins. Duushúsin fengu 7 milljón- ir króna, fræðasetur víkinga á Fitjum fékk 7 milljónir, Saltfisk- setur i Grindavík fékk 7 milljón- ir, byggðasafn í Gerðahreppi 3 milljónir, upplýsingamiðstöðvar á Suðumesjum fá um 6 milljónir samtals og Sæfiskasaín í Höfn- um 3,5 milljónir króna. Hafnarmál hafa einnig verið í eðlilegri vinnslu og má þar nefha höfnina í Grindavík sem hefur verið endurbyggð fyrir á annan milljarð króna á síðustu árum. Síðustu vikurnar hef ég fundið tyrir miklum stuðningi héðan af svæðinu sem hefur verið mér mikill styrkur í þeirri baráttu minni að halda þingsæti mínu á næsta kjörtímabili. Ekki er útséð um að það takist. Yfir 300 manna fhndur ásamt fjölda sím- tala, bréfa og viðtala, lýsir öllu sem þarf um þann stuðning sem mín störf fá hér á svæðinu. Fyrir þennan mikla stuðning vil ég þakka af alhug og er sama hvem- ig fer þá verður hann mér ávalt efstur í hug. Um leið og ég fagna komu jólanna óska ég og fjöl- skylda mín ykkur öllum gleði- legrar hátíðar og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir það ár sem er að líða. Guð blessi ykkur öll. Kristján Pálsson alþingismaður yfir hátíðarnar: . des LOKAÐ opið kl. 10-17 31. des. og 1. jan. LOKAÐ 2. jan. opið 13-17 EIGNAMIÐLUN SUDURNESJA Hafnargotu 17, Keflavík - Sími 421 1700 Skötu- veisla Lions í Vogum Samkvæmt árlegri venju halda félagar í Lionsklúbbnum Keili í Vogum SKÖTUVEISLU sína nú fyrir jólin. Hún verður laugar- daginn 21. des. n. k. og opnar húsið kl 14:00. Snætt verður í húsi klúbbsins að Aragerði 4. Fyrir ókunnuga ætti að vera auðratað því húsið er merkt inn á kortið af Vogunum þegar komið er inn í þorpið. Auk þess mun fáni Lions blakta við hún við húsið. Boðið verður upp á hefð- bundnar veitingar bæði skötu og saltfisk. Ekki verður hætt að snæða fyrr en um kl 22:00 eða síðar um kvöldið. Verð á veitingunum verður kr 2.500 á mann.Venja er, að fjöldi gesta komi og gæði sér á veisluföngunum og vonast Lionsfélagar að svo verði nú sem endranær. 32

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.