Víkurfréttir - 19.12.2002, Qupperneq 39
Steinbjörn Logason og Thelma Jónsdóttir
eyddu í fyrsta sinn jólunum saman eriend-
is á síöasta ári en þau búa í Berlín, ásamt
syni sínum Mána Mar. Steinbjörn segir að jóla-
undirbúningur Þjóðverja sé töluvert frábrugðin
þeim íslenska: „Þjóðverjar eru mun afslappaðri
en íslendingar og það var mjög þægileg upplifun.
Það kom mér skemmtilega á óvart hvað stemn-
ingin er skemmtileg á jólaútimörkuðum sem eru
um alla borg og gera allan desembermánuð fjöl-
skylduvænan. Þar er einnig boðið upp á
jólaglögg sem er ómissandi siður í Þýskalandi
fyrir jólin og yljar vel á köldum vetrardögum.“
Steinbjöm fylgdi Thelmu út til þýskalands en hún
lýkur á næsta ári mastersnámi í almannatengslum
og norðurlandafræðum frá tveimur háskólum í
Berlín. Steinbjöm segir að þeim hafí liðið vel um
jólin í Berlín: „Það var náttúmlega skrýtið að vera
án íslenskra hefða, en maður reynir eftir fremsta
megni að líkja eftir jólunum hjá „mömmu“. Við
settum upp jólaseriur og skreyttum jólatréð. Við
eyddum aðfangadagskvöldi með islenskum vinum
okkar Theó og Emil. Þau komu gangandi í jólasnjó-
kommunni um kl. 16 og um kl. 18 hófst borðhaldið.
í forrét höfðum við sjávarrétt og í aðalrétt var önd,
en í eftirrétt höfðum við hrísgrjónagraut með
möndlugjöf. Það verður að segjast að maturinn var
stórkostlegur og mín niðurstaða var að ömmur og
mömmur eru ekki einu kynjakokkar heimsins sem
geta gert jólamatinn. Við áttum að vísu í mestu
vandræðum að verða okkur úti um malt og appelsín
og þurftum að bregða á það ráð að prófa okkur
áfram. Við prófuðum margt, en að lokum fundum
við dökkan bjór og appelsínugosdrykk og var
bragðið keimlíkt íslensku jólablöndunni. Við áttum
messu á geisldiski sem við hlustuðum á, en það
fannst okkur nauðsynlegtsegir Steinbjöm og bæt-
ir því við að eftir matinn hafí verið gengið ffá öllu
leirtaui: „Þegar búið var að ganga frá var farið í það
að opna pakkana og glaðst yfír óvæntum jólagjöf-
um frá íslandi." Steinbjörn segir að ungt fólk í
Þýskalandi fari út á lífíð á aðfangadagskvöld til að
skemmta sér með vinum og kunningjum sem búa á
víð og dreif um landið en hittast heima um jólin:
„Að sjálfsögðu fannst okkur það óviðeigandi að
fara út á djammið á aðfangadagskvöld og því tók-
um við jólaspilið upp og spiluðum fram á nótt,“
segir Steinbjöm að lokum.
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
Stórdansleikir í Stapa um jólin
Föstudagskvöldið 20. desember verður stórdansleikur í Stapa þar sem
hljómsveitimar írafár og Á móti sól munu spila. Vignir Vigfússon í
hljómsveitinni írafár sagði í samtali við Víkurfréttir að honum lítist vel
á að spila í Stapa: „Það er alltaf gaman að spila fyrlr Suðumesjamenn
og góð stemnning. Við tökum að sjálfsögðu nokkra góða jólaslagara,
en ég efast um að við mætum í jólasveinabúningum," sagði Vignir og
bætti við að hann lofaði góðri stemningu og frábæm balli fyrir Suður-
nesjamenn á fostudagskvöldið í Stapa.
Á annan í jólum verður annar stórdansleikur í Stapa, en þá mun hin
þekkta hljómsveit Sálin Hans Jóns míns troða upp og skemmta íbúum
Suðumesja. Á gamlárskvöld mun svo hljómsveitin í Svörtum fötum
fagna nýja árinu með gestum í Stapa, en húsið opnar klukkan 01:00 á
nýja árinu. Það verður því nóg um að vera í Stapa um hátíðamar.
Myndbandið við lag hljómsveitarinnar írafárs sem heitir
„Allt sem ég sé“ hefur nú þegar verið tilnefnt til íslensku
Tónlistarverðlaunanna í flokknum „Myndband Ársins" árið 2002
en úrslit verða kynnt eftir áramót. Myndbandið var tekið upp í
og við Eyðibýli sem heitir Litli Hólmur og er staðsett milli Garðs
og Keflavíkur. Tökurnar áttu sér stað frá klukkan 15:00 á
föstudeginum 8. nóvember til hádegis á laugardeginum
9. nóvember. Leikstjóri og framleiðandi myndbandsins er
Suðurnesjamaðurinn Guðjón Jónsson, en hann starfar sem
auglýsingaleikstjóri hjá auglýsingagerð Norðurljósa.
Guðjón hefur starfað í þessum geira í þrjú ár og er myndbandið
„Allt sem ég sé“ þriðja myndbandið sem hann leikstýrir
og framleiðir fyrir írafár.
39