Víkurfréttir - 19.12.2002, Blaðsíða 49
51. tölublað • fimmtudagurinn 19. desember 2002
MENNING OG LISTIR
Listhúsið Stapakot
Laugardaginn 7. desember
var opnað Gallerý að
Stapagötu 20 í Innri-
Njarðvík, en þar eru 15 lista-
menn af Suðurnesjum með
verk sín til sýnis og sölu. Að
sögn Hafdísar Hill eiganda iist-
hússins er þetta fyrsti áfangi af
tveimur því í febrúar opnar
listsmiðja í sama húsnæði: „í
listsmiöjunni gefst fólki kostur
á vinna og selja verk sín, en þar
verður í boði góð aðstaða fyrir
þá sem vilja vinna að list sinni,
en hafa kannski ekki aðstöðu,“
sagði Hafdis í samtali við Vík-
urfréttir.
Listhúsið Stapakot er opið frá
klukkan 13:00 - 17:00 alla daga
og fram að jólum er 20% afslátt-
ur af öllum vörum.
Kópur GK seldur
Gengið hefur verið frá sölu
á Kópi GK til Þórsbergs
hf. á Tálknafirði. Frá
þessu er sagt á Patreksfjarðar-
vefnum Tíðis en seljandi er Jó-
hannes Jónsson útgerðarmað-
ur í Melhóli ehf. I frétt Tíðis
segir að samþykkt hafi verið á
hluthafafundi hjá Þórsbergi hf.
sem haldinn var í síðustu viku
að ganga til samninga um
kaup á nýju skipi til fyrirtæk-
isins.
Um er að ræða línuveiðiskipið
Kóp GK sem undanfarin ár hefur
verið gert út frá Grindavík. Kóp-
ur GK er ágætlega búinn tækjum
og er m.a. með beitningarvél.
Skipið var mikið endurnýjað
1986. Það hefur verið í slipp upp
á síðkastið þar sem það hefur
verið botnmálað og ýmsar aðrar
smávægilegar lagfæringar gerð-
ar. Ekki fylgja skipinu neinar
aflaheimildir en verið er að vinna
í því að auka aflaheimildir hjá
Þórsbergi og stefht er á að fyrir-
tækið hafi yfir að ráða 600 tonna
kvóta í þorskigildum þegar líður
á veturinn. Skipið leysir af hólmi
Mariu Júlíu BA sem hefur þjón-
að Tálknfirðingum um áraraðir.
Af vefnum skip.is
Skötu- og sjávar-
réttahlaðborð
Pantið borð
tímanlega
í síma 42 I 4797.
Minnum einnig á
okkar vinsælu snittur
fyrir jólin.
Pantið tímanlega!
Ó^V)SJA & S#fQ
MATARLYST ATLANTA
IÐAVELLIR 1 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4797
Glæsileg ftölsk leðursöfasett
verð frá aðeins 198.000,- Stöf.
49