Víkurfréttir - 19.12.2002, Side 52
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Einar Guðbrandsson, 3 ára.
Veistu hvaðan
jólasvcinarnir koma?
Upp í fjöllunum.
Veistu hvað þcir eru
margir?
13
Veistu hvaö þeir heita?
Einn heitir Stekkjastaur, einn
heitir Stúfur, einn heitir
Pottasleikir.
Vcistu af hverju jólin eru?
Já, út afjólasveinunum.
Hefurðu séð Grýlu?
Já, í bók í leikskólanum.
En jólasveinana?
Já, í bókinni.
Emilía Erla Guömundsdóttir,
4ára
Manstu hvað jólasveinarnir
eru margir?
13
Vcistu hvar þeir eiga licima?
1 fjöllunum hjá Grýlu og
Leppalúða.
Hver eru þau?
Þau borða óþekka krakka.
Veistu hvernig
jólasveinarnir geta gefið
börnunum í skóinn?
Þeir nota strompinn og líka geta þeir komist
undir hurðina því þeir eru smá göldróttir.
Veistu af hverju jólin eru?
Út af gjöfunum.
Hlakkar þig til jólanna?
Jáhá.
Suðurnesjamönnum
öllum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju árí
með þökk fyrir samstarfíð
og viðskiptin á árinu sem er að líða
A
RKTAKAR hf.
...tilbúnir á nýrri öld!
Víkurfréttir heimsóttu á dögunum
leikskólann Hjallatún og spurðu
krakkana þar um
jólasveinana og um jólin.
Heiða Ósk
Guðmundsdóttir
5 ára
Veist þú hvað jóla-
sveinarnir eru
margir?
13
Veistu hver kemur
fyrstur?
Stekkjastaur
Veistu hvar þeir eiga
heima?
í hellinum.
Hefurðu séð jólasvein?
Já, marga.
Veistu hvernig jólasveinarnir gefa í skóinn?
Við látum alltaf skóinn út i glugga og opnum gluggann
svo þeir geti gefið i skóinn.
Veistu af hverju jólin eru haldin?
Nei.
Hefurðu séð Grýlu?
Já, einu sinni og hún er ljót.
Hefurðu séð jólaköttinn?
Nei.
Kormákur Andri Þórsson
5 ára
Veistu hvað jólasveinarnir
eru margir?
13
Hver kemur fyrstur?
Stekkjastaur.
En síðastur?
Kertasníkir og Stúfúr er
þriðji.
En hvernig geta þeir gefið
í skóinn?
Við lokum gluggunum en
samt geta þeir gefið í skóinn af því þeir eru göldróttir.
Ég held allavega að þeir séu göldróttir.
En hver býr til gjafirnar?
Jólasveinamir auðvitað. En þeir kaupa aliavega
eitthvað. Ég held að þeir séu með svona vél upp í
Grýluhelli sem býr gjafimar til.
Hefurðu séð jólasvein?
Ég hef séð fólk í jólasveinabúningi sem er að þykjast
vera jólasveinar, það var bara fólk sko. En ég hef séð
alvöru jólasvein á jólaballi.
Hefurðu séð Grýlu?
Nei.
Af hverju eru jólin haldin?
Bara til að skemmta bömunum.
Hvað langar þig mest í jólagjöf?
Alvöm Star Wars sverð með bláum geisla.
52