Víkurfréttir - 19.12.2002, Síða 60
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Anna Fíafimmtug
Anna Soffía Jóhannsdóttir varð 50 ára á dögunum og hélt upp á
afmælið með Konráði manni sínum í nýjum húsakynnum
fyrirtækis þeirra hjóna að Fitjabraut í Njarðvík. Fjöldi gesta mætti
til hófsins og þar á meðal söng Karlakór Keflavíkur afmælis-
sönginn fyrir afmælisbarnið. Glæsilegt afmælisveisluborð var í
boði saumaklúbbsins hennar Önnu Soffíu og fjölmargar ræður
voru fluttar þar sem afmælisbarninu voru færðar heillaóskir.
Þessar myndir voru teknar í afmælishófinu.
Kýtt frí KfRHSTflSÍ:
nyrtivörur fyrir liírríhúr,
og tíl oS slétto hdr.
Vanilluilmir,
kerti, olíp/,
C % *
FRÉTTIR
HMY Airways mMlilendir
í fyrsta sinn á íslandi
James Westmancott aðstoðarforstjóri HMY Airways fékk
blómvönd eftir fyrstu lendingu í Keflavík, frá þeim Birni
Knútssyni, flugvallarstjóra og Steinþóri Jónssyni, umboðsmanni
félagsins á íslandi.
Rétt fyrir liádcgi í
fyrradag lenti þota frá
Kanadíska flugfélaginu
HMY Airvvays í fyrsta sinn á
Keflavíkurflugveli, en samn-
ingar hafa tekist um reglulcga
millilendingu flugvéla frá Flug-
félaginu á Islandi. Þotan kom
frá Vancouver/Calgary í
Kanada en um 9 klukkustunda
flug er þaðan til íslands og hélt
hún áleiðis til Manchester í
Englandi, en um 130 farþegar
voru um borð. Steinþór Jóns-
son hótelstjóri í Keflavík og
umboðsmaður flugfélagsins
sagði í tilefni af konni vélarinn-
ar að þetta væri stór stund:
„Það er gaman að vera hér og sjá
vélina lenda og mér líður svipað
og fyrir sex árum þegar vél frá
Canada 3000 lenti hér. Þetta er
fyrsta skrefið í samstarfi við
flugfélagið og við höfiim nú þeg-
ar lagt inn umsókn til samgöngu-
ráðuneytisins um leyfi til að flyt-
ja farþega til Kanada frá Islandi.
Jafnvel mun ég leita eftir að fá
bráðabirgðaleyfi meðan formleg-
ar samningaviðræður standa yfir
og ég vona að farþegaflutningar
til og frá landinu geti hafist í
febrúar eða mars,“ sagði Steinþór
i samtali við Víkurfréttir.
Við móttökuathöfn þegar áhöfh
flugvélarinnar gekk inn í flug-
stöðvarbygginguna afhenti Bjöm
Knútsson flugvallarstjóri flug-
stjóra vélarinnar biómvönd og
sagði að koma flugfélagsins væri
stórt framfaraskref fyrir flugvöll-
inn og að hann myndi gera allt
sem í hans valdi stendur til að
efla samstarfið: „Flugstöðin get-
Útgáfumet
Víkurfrétta
I desembermánuði var slegið met
á Víkurfréttum en aiis hafa verið
gefin út 12 blöð í mánuðinum
sem samtals eru tæplega 500
blaðsíður. Blöðin eru
Víkurfréttir, VF í Firðinum hið
nýja blað Hafhfirðinga og White
Falcon sem gefið er út á
Keflavíkurflugvelli. Auk þessarar
útgáfu sáu Víkurfféttir um útgáfu
100 síðna Golfs á íslandi auk
fleiri verkefna fyrir fyrirtæki.
Púttmót GS og
púttklúbbsins í
Röstinni
Púttmót á milli GS og Púttklúbbs
Suðurnesja í Röstinni lau-
gardaginn 28.12.2002. kl: 13:00
Púttklúbbur Suðurnesja býður
GS í púttkeppni i Röstinni.
Keppnin hefst kl. 13:00. og eru
GS félagar hvattir til að mæta því
undanfarin ár hafa ávallt mun
fleiri mætt ffá PS.
ur tekið við fleiri flugvélum og
við erum mjög ánægðir með
komu þessa flugfélags og bjart-
sýnir á ffamhaldið," sagði Bjöm
Knútsson. Fyrirtækið Airport
Associates/Vallarvinir afgreiðir
HMY á íslandi og segir Sigþór
Skúlason rekstrarstjóri fyrirtæk-
isins að koma þessa flugfélags sé
kærkomin viðbót við hóp við-
skiptavina fyrirtækisins: „Við
vonum að áform HMY um mikla
aukningu ferða í sumar til og ffá
landinu standist, en það kallar á
aukin umsvif okkar á Keflavíkur-
flugvelli."
James Westmancott aðstoðarfor-
stjóri HMY Airways sagði að
hann væri ánægður með flugið til
Islands og samstarfið við Islend-
inga: „Eg er bjartsýnn á að sam-
starfið takist vel og vonandi
verðum við famir aö fljúga með
Islendinga til Kanada og Evrópu
innan skamms," sagði James en
hann dvelur á Hótel Keflavík og
mun fara aftur til Kanada á
morgun en þá millilendir vélin á
leið sinni til Kanada.
(Osfium ö(Tum vefunnurum
odíar oq iðfencfum
(jfeMeqrajófa,
arsoam
VlngCingaráð Cnattspyrnu í SCefCaviC
60