Orð og tunga - 01.06.2007, Page 175
Orðabókar- og rannsóknarverkefni
165
að smátt og smátt hlaðast upp stærri heildir merkingartengdra orða
innan einstakra orðflokka.
Tengslin við orðasambandalýsinguna birtast m.a. í því að hin fast-
ari orðasambönd (þ.á m. orðtök) fá sjálfstæða stöðu til jafns við stök
orð og verða á þann hátt virk í samheitasamböndum og öðrum merk-
ingarvenslum sem rakin eru irtnan orðaforðans. Hér gegnir hugtaka-
flokkun orðasambandanna í Orðaheimi víða mikilvægu hlutverki við
samtengingu merkingarskyldra orða og orðasambanda.
Meðferð sagna og sagnasambanda er óvenjuleg að því leyti að
sagnmyndin birtist hverju sinni með rökliðum sínum svo að af einni
sögn geta sprottið fjölmargar sagnaflettur, hver með sínum orðtengsl-
um, setningargerð og merkingareinkennum. Föstum orðasambönd-
um, svo sem orðtökum, sem innihalda sögn, eru og gerð skil sem
flettum. Þannig skilar sagnagreiningin jafnframt mikilvægum áfanga
í flokkun og greiningu nafnorða og er í raun forsenda fyrir skipu-
legri flokkun þeirra. Með staðlaðri framsetningu á sagnaflettunum
fæst víða glöggt yfirlit um setningarleg einkenni sagna og sagnarsam-
banda. Þeirri greiningu er fylgt eftir með málfræðilegri mörkun flettn-
anna, bæði til yfirlits um einkenni einstakra sagna og til að afmarka og
virða fyrir sér tilteknar formgerðir (án þess að hugsað sé til sérstakrar
sagnar).
Samheitatenging nafnorða er komin nokkuð á veg með flokkun
orðasambanda sem tengjast lýsingarorða- og sagnaflettum. Samræð-
um nafnorðum sem fram koma í orðastæðum undir þessum tveimur
flettutegundum er skipað í merkingarhópa. Með sérstakri forritun eru
merkingarhópar með samstæðu innihaldi felldir saman, jafnframt því
sem fram kemur hversu oft einstök samheiti koma fyrir í samstæð-
unni. Þar með er lagður grunnur að því að gera grein fyrir innbyrðis
vægi einstakra orða innan samheitaklasa. Þessi aðgerð hefur skilað
álitlegum stofni í samheitasafn íslenskra nafnorða sem síðar verður
aukið með frekari greiningu.
Við þessa yfirferð hefur komið skýrt fram að markviss samheita-
tenging og merkingarflokkun nafnorða er háð því að nafnorðaflett-
urnar séu merkingarlega einræðar, svo að ekki slái saman óskyldu
orðafari innan samheitaklasanna. í þessu efni þarf víða að ganga
nokkru lengra en hefð er fyrir í almennri orðabókarlýsingu.
íslenskt orðanet hefur að ýmsu leyti sérstöðu meðal sambærilegra
merkingarneta. Þar má í fyrsta lagi nefna samhengið við víðtæka og