Jólakvöld - 01.12.1928, Síða 11
bekknum, sem enn í dag stendur á sama stað í dagstofunni hans
í Wíttenberg.
Lúthershús hefir margt að geyma, altof margt til þess að tal-
ið verðí í stuttri blaðagrein. Minnisstæðar verða mér fjölskyldu-
myndir eftir Cranach, vin Lúthers og samtíðarmann. Myndirnar
eru olíumálaðar með hinum fegurstu litum, er hafa staðið af sér
fleiri alda ryk og ljómar í fegurð sem spánýjar væru.
Andlitsmynd ein af Magdalenu dóttur Lúthers er einkar fög-
ur. Efalaust hefir Lúther oft haft yndi og afþreying af að horfa á
myndina af litlu stúlkunni sinni, eftir að hún var dáin. Hún dó ung
og var föður sínum harmdauði.
Ymiskonar munir, svo sem skrautker úr postulíni í fornum
stíl, fagurlega gjörð og smámunir úr fílabeini og inálmi setja
heimilislegan blæ á hin yfirgefnu heimkynni, auk þess er þau
minna á hlýindi vináttunnar, því ad munir þessir eru gjafir frá
vinum Lúthers og konu hans.
Frú Katrín gaf rnanni sínum eitt sinn í afmælisgjöf yfirskrift
til þess að setja yfir fordyri hússins, stendur þar letrað skýru letri:
»í rósemi og trausti skal yðar styrkur vera«.
Þannig eru því ávarpaðir þeir er ganga inn í Lúthershús.
Hallarkirkjan í Wittenberg er ein hin fegursta kirkja í Þýska-
landi, hún á sér langa sögu og merka. Friðrik kjörfursti hinn
vitri lét reisa kirkjuna á síðari hluta 15 aldarinnar og vandaði til
hennar eftir bestu föngum: hvað eftir annað hefir kirkjan orðið
fyrir stórskemdum í ófriði, og lá við sjálft að hún brynni til kaldra
kola. Eigi að síður stendur hið veglega Guðshús enn jafn óhagg-
anlegt og í öndverðu og er það mikið að þakka þýskri stjórn
og keisurum, sem léu gjöra við kirkjuna á ríkiskostnað fyrir c.
40 árum.
Turn kirkjunnar vekur athvgli. Efst á honum er letrað afar-
stóru letri, með þvi nær mannhæðar háum stöfum, hin alkunnu
upphafsorð úr sálmi Lúthers: Vor Guð er borg á bjargi traust.
A kirkjuhliðinni eru hinar nafntoguðu 95 greinar Lúthers
greyptar í volduga járnhurð á latneskri tungu.
Eg tel mér ofvaxið að lýsa sjálfri kirkjunni, enda var það ekki
9