Morgunblaðið - 11.06.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016
Nýr stjórnmálaflokkur er stofn-aður og hans fyrsta verk er
að fela megintilgang sinn. Það er
með því sérkennilegasta sem þekk-
ist úr sögu stjórnmálanna.
Óðinn Viðskipta-blaðsins
fjallaði um þetta í
vikunni og vitnaði
líka til skrifa for-
manns flokksins
fyrir nokkrum
árum:
„Benedikt Jó-
hannesson skrifaði
aðsenda grein í Morgunblaðið í
apríl 2009, stuttu fyrir alþingis-
kosningar. Þar má segja að þar
hafi sannast hið fornkveðna, eng-
inn er spámaður í eigin landi. Í
greininni sagði Benedikt m.a.: „Því
miður virðist sem stjórnmálaflokk-
arnir geri sér enga grein fyrir því,
að ef ekki er gripið til ráðstafana
nú þegar er líklegt að yfir þjóðina
dynji annað stóráfall og þjóðin
verði um langa framtíð föst í fá-
tæktargildru. Erlendir loddarar
tala um að Íslendingar eigi að gefa
skít í umheiminn og neita að borga
skuldir sínar. Margir virðast telja
að slík leið sé vænleg. Enginn
stjórnmálamaður talar um það að
landið hefur misst lánstraustið og
mun ekki endurvinna það fyrr en
við sýnum að okkur er alvara með
því að vinna með samfélagi þjóð-
anna.“
Þarna talar Benedikt augljós-lega um Icesave, en hann var
alla tíð mikill stuðningsmaður þess
að íslenskir skattgreiðendur tækju
upp á því að greiða skuldir einka-
bankans Landsbanka Íslands, án
þess að nokkur lagaskylda um slíkt
hvíldi á ríkissjóði Íslands.“
Það er vissara fyrir formannnýja flokksins að fela ekki að-
eins Evrópustefnuna. Hann, eins
og fleiri, þarf á því að halda að
fela líka eigin Icesave-stefnu.
Benedikt
Jóhannesson
Fela þarf ESB- og
Icesave-stefnuna
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 rigning
Bolungarvík 14 alskýjað
Akureyri 15 léttskýjað
Nuuk 21 heiðskírt
Þórshöfn 8 heiðskírt
Ósló 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 11 alskýjað
Helsinki 10 léttskýjað
Lúxemborg 23 skýjað
Brussel 19 skýjað
Dublin 13 rigning
Glasgow 15 skýjað
London 23 alskýjað
París 23 skýjað
Amsterdam 22 rigning
Hamborg 19 léttskýjað
Berlín 23 alskýjað
Vín 24 heiðskírt
Moskva 12 léttskýjað
Algarve 27 skýjað
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 25 heiðskírt
Mallorca 29 heiðskírt
Róm 22 rigning
Aþena 25 heiðskírt
Winnipeg 25 léttskýjað
Montreal 12 skýjað
New York 20 heiðskírt
Chicago 26 rigning
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:01 23:55
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:17 23:38
Á öðrum tónleikum sumartónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúarinnar
við Lækjargötu í dag kemur fram
Tribute tríó; nýtt tríó undir forystu
píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs-
dóttur. Þetta er 21. sumarið sem
sumarjazz er fluttur á Jómfrúnni.
Aðrir hljóðfæraleikarar eru bassa-
leikarinn Leifur Gunnarsson og
trommuleikarinn Kristófer Rod-
riguez Svönuson. Þau munu flytja
eigin jazz-útgáfur af þekktum lögum
Magnúsar Eiríkssonar. Lögin verða
klædd í jazz-gallann og sveipuð
hljómum jazz-heima en markmið
tríósins er að hylla helstu meistara
íslenskrar dægurtónlistar, sam-
kvæmt fréttatilkynningu. Tónleik-
arnir fara fram utandyra á Jómfrú-
artorginu. Þeir hefjast kl. 15 og
standa til kl. 17. Aðgangur er ókeyp-
is.
Á fyrstu tónleikum sumarsins sl.
laugardag kom fram danska söng-
konan Sinne Eeg en hún er af mörg-
um talin fremsta jazz-söngkona
Dana um þessar mundir. Með henni
léku þeir Eyþór Gunnarsson á píanó,
Þórður Högnason á kontrabassa og
Einar Scheving á trommur.
Fór mjög vel af stað
Ragnar Ragnarsson, þjónn á Jóm-
frúnni, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að sumarjazzinn hafi
farið einstaklega vel af stað síðasta
laugardag.
„Nú er öllum framkvæmdum lokið
þannig að við erum komin með allt
plássið úti sem var, þannig að þetta
er allt orðið miklu betra,“ sagði
Ragnar og bætti við: „Þetta fór mjög
vel af stað síðasta laugardag, enda
var svo gott og himneskt veður, að
það gerist vart betra.“
agnes@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jómfrúin Gestir Jómfrúarinnar hafa löngum kunnað að meta sumarjazzinn,
sem boðið er upp á hvern laugardag yfir sumarið. Þetta er 21. sumarið.
Jazza perlur Magn-
úsar Eiríkssonar
Sumarjazz á Jómfrúnni haldinn 21.
sumarið í röð Tónleikar kl. 15 í dag
Staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar er betri en á
sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá fyr-
irtækinu.
„Vatnsbúskapur síðasta vetur var góður og
staða lóna í lok mars var betri en í meðalári. Snjóa-
lög voru í meðallagi á Austurlandi en undir með-
allagi á öðrum svæðum. Lón náðu lægstu stöðu 25.
maí, en tíðarfarið breyttist síðustu vikuna í maí.
Hlýtt hefur verið norðanlands og austan og eins og
kemur fram á vef LV hefur innrennsli í miðlunarlónin aukist verulega.“
Samkvæmt skýringarmynd á vef Landsvirkjunar (www.lv.is) hefur vatns-
borð Hálslóns hækkað ört frá því það var lægst seint í maí. Í fyrra lækkaði
vatnsborð Hálslóns allt fram til 14. júní enda var óvenju kalt fram eftir sumri
þá. Leysingar á fjöllum hófust síðar en menn áttu að venjast vegna kuldans.
gudni@mbl.is
Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er betur
staddur nú en á sama tíma í fyrra
Hálslón Rennur ört í lónið.
Barnaskór Hummel
Litur: Svart, nr 28-38
Hummel Stadil Leather
Verð áður: 11.995
Verð nú 8.995
Dömuskór Rieker
Litur svart, nr. 36-41
Leður hælasandalar
Verð áður: 14.995
Verð nú 12.995
TOLLALÆK
KUN
Skechers Air, herra
Cooled Memory Form
Litur: Burg
Verð áður: 15.995
Verð nú 13.995