Morgunblaðið - 11.06.2016, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016
Ríkisstjórnarflokk-
arnir standa dyggan
vörð um það sem þeir
kalla óslitna virð-
iskeðju í sjávarútvegi.
Slík keðja gengur út á
að sami aðili haldi um
alla hlekki virðiskeðj-
unnar allt frá því fisk-
urinn er óveiddur í
sjónum hér við land
þar til hann er kominn
á matseðilinn hjá dýr-
indis veitingahúsum eða í kæliborðið
í betri fiskverslunum beggja vegna
Atlantsála. Þetta er það fyrirkomu-
lag sem stórútgerðin og Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi tala fyrir.
Þetta er það fyrirkomulag sem
bankarnir tala fyrir enda eiga þeir í
raun bróðurpartinn af öllum veiði-
heimildum við Ísland.
Í óslitinni virðiskeðju felst að
markaðslausnum er hafnað. Ekki er
einu sinni reynt að nýta markaðinn
til að verðleggja aðgang að hinni
takmörkuðu, en sameiginlegu, auð-
lind þjóðarinnar, fiskinum í sjónum
við Ísland. Niðurstaðan er sú að
handhafar veiðiheimilda fá í raun
niðurgreiddan aðgang að dýrmæt-
ustu auðlind þjóðarinnar.
Nú skyldi maður ætla að stjórn-
völd gættu þess vel að hinn niður-
greiddi aðgangur að auðlindinni
væri ekki misnotaður á íslenskum
samkeppnismarkaði, t.d. með því að
festa í lög reglur sem tryggja að all-
ir sitji við sama borð í íslenskri fisk-
vinnslu og standi frammi fyrir sam-
bærilegum hráefniskostnaði.
Raunin er hins vegar sú að stór-
útgerðin, sem jafnframt er með fisk-
vinnslu, hefur leyfi til að verðleggja
þann fisk sem hún nýtir sjálf langt
undir því markaðsverði, sem sjálf-
stæðir framleiðendur verða að
borga. Þar sem laun sjómanna
reiknast út frá aflaverðmæti við
skipshlið lækkar þetta einnig launa-
kostnað þeirra útgerðarfyrirtækja,
sem eru með lóðrétt samþætta
starfsemi veiða og vinnslu.
Haldið í úrelt og skaðlegt kerfi
Stjórnvöld standa hins vegar vörð
um þetta mismununarkerfi með
þeim rökum að mikil
verðmæti liggi í því
fyrir þjóðarbúið að
virðiskeðjan sé óslitin.
Þar sé m.a. um
afhendingaröryggi að
tefla, þar sem stórar
útgerðarvinnslur geri
oft og tíðum langtíma
afhendingarsamninga
sem erfitt sé að standa
við fái þær ekki að hafa
alla hlekki á sinni
hendi, frá veiðum til
vinnslu til sölu á er-
lendan markað.
Þessi röksemdafærsla stenst ekki
skoðun því nýsköpun í vinnslu og
sölu íslenskra sjávarafurða hófst
ekki fyrir alvöru fyrr fiskmarkaðir
hér á landi ruddu brautina fyrir
sjálfstæða framleiðendur, en fyrir
þann tíma var allt sölukerfi sjáv-
arafurða hlekkjað í höft og stór
sölusambönd á borð við SÍF, SH og
Sambandið skiptu markaðinum á
milli sín.
Enn eimir eftir af þessu gamla
kerfi því smærri útgerðarfyrirtækj-
um og sjálfstæðum fiskframleiðend-
um er gert mjög erfitt fyrir og
óslitna virðiskeðjan þjónar fyrst og
fremst stærstu útgerðarfyrirtækj-
unum. Ég hef áður fært rök fyrir
því að hin óslitna virðiskeðja er í
raun marxísk og áþekk þeirri virð-
iskeðju, sem tröllreið öllu í gömlu
Sovétríkjunum. Sá er munurinn á
sovésku virðiskeðjunni og óslitnu
virðiskeðjunni í íslenskum sjávar-
útvegi að ríkið átti alla hlekkina í
þeirri sovésku en íslenska ríkið hef-
ur fært einkaaðilum þá íslensku.
Nú höfum við í gegnum Panama-
skjölin fengið upplýsingar um að
óslitna virðiskeðjan í íslenskum
sjávarútvegi endar ekki á sölustöð-
um íslensks sjávarfangs erlendis
eins og við áður töldum. Nei, hún
nær alla leið til Panama og eflaust,
ef vel er skoðað, enn lengra – til
Bresku jómfrúaeyja eða jafnvel
Seychelles-eyja. Í Panama-
skjölunum eru upplýsingar um að
aðstandendur stórra og leiðandi ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja eru
með reikninga og félög í gegnum
hina alræmdu Mossack Fonseca-
lögfræðistofu í Panama. Réttnefni
hinnar óslitnu virðiskeðju í íslensk-
um sjávarútvegi gæti því verið Pa-
nama-virðiskeðjan. Varla dregur
það úr dálæti íslenskra ráðamanna á
henni.
Svikin loforð
Fyrir síðustu alþingiskosningar
var haldinn opinn fundur um sjávar-
útvegsmál með fulltrúum stjórn-
málaflokkanna á vegum Félags at-
vinnurekenda. Fulltrúi Framsókn-
arflokksins þar var Sigurður Ingi
Jóhannsson, sem tók við embætti
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra að kosningum loknum og er
nú orðinn forsætisráðherra. Á fund-
inum lýsti hann skýrum vilja til að
jafna samkeppnisstöðu í íslenskum
sjávarútvegi og tryggja aukið hrá-
efnisöryggi sjálfstæðra framleið-
enda með því að auka það magn
afla, sem selt er í gegnum fiskmark-
aði.
Skemmst er frá því að segja að
efndir Sigurðar Inga urðu engar.
Breytti þar engu þótt fyrir lægju
sérstök tilmæli frá Samkeppniseft-
irlitinu til hans um að grípa til að-
gerða til að draga úr samkeppnis-
mismunun í greininni, sem m.a.
stafar af hinni tvöföldu verðmyndun
sem tryggir útgerðarvinnslum allt
að 40 prósentum lægra hráefnisverð
en sjálfstæðum framleiðendum.
Það skaut því skökku við á dög-
unum, þegar Sigurður Ingi lofaði
kosningum í haust og fullyrti að
hann væri vanur að standa við sín
loforð. Sem sjávarútvegsráðherra
sveik hann gefin loforð og stóð
tryggan vörð um sérréttindi þeirra,
sem fá niðurgreiddan aðgang að
sameign þjóðarinnar. Kannski vilja
menn frekar að arðurinn af auðlind-
inni endi í Panama en á Patreksfirði.
Eftir Ólaf Arnarson »Réttnefni hinnar
óslitnu virðiskeðju í
íslenskum sjávarútvegi
gæti því verið Panama-
virðiskeðjan.
Ólafur Arnarson
Höfundur hefur sinnt verkefnum
fyrir Samtök fiskframleiðenda og
útflytjenda.
Panama-virðiskeðjan
Jóhann Hjartarson og HéðinnSteingrímsson deila efstasæti fyrir lokaumferðkeppninnar í landsliðsflokki
á Skákþingi Íslands sem fram fer í
Tónlistarskóla Seltjarnarness. Þeir
eru vinningi á undan Braga Þor-
finnssyni, sem tapaði í gær fyrir Ís-
landsmeistaranum frá 2014, Guð-
mundi Kjartanssyni, og Jóni Viktori
Gunnarssyni. Jóhann og Héðinn
hafa báðir svart í lokaumferð móts-
ins, sem hefst kl. 13 í dag. Þessir
tveir voru fyrir fram taldir sig-
urstranglegir á mótinu, en Jóhann
varð síðast Íslandsmeistari á Ak-
ureyri árið 1997 og hefur unnið tit-
ilinn fimm sinnum.
Staðan fyrir lokaumferðina:
1.-2. Jóhann Hjartarson og Héð-
inn Steingrímsson 7½ v. (af 10) 3.-4.
Bragi Þorfinnsson og Jón Viktor
Gunnarsson 6½ v. 5.-6. Guðmundur
Gíslason og Björn Þorfinnsson 5½ v.
7.-9. Davíð Kjartansson, Guðmundur
Kjartansson og Einar Hjalti Jensson
4½ v. 10. Örn Leó Jóhannsson 3½ v.
11. Hjörvar Steinn Grétarsson 3 v.
12. Jóhann Ingvason 1v.
Stigahæsti keppandinn, Hjörvar
Steinn Grétarsson, hefur átt við
veikindi að stríða allt mótið. Eftir
skák sína við Jón Viktor í 9. umferð
treysti hann sér ekki til að tefla
áfram í mótinu og Íslandsmeistarinn
Héðinn Steingrímsson fékk vinning-
inn í gær án þess að tefla við Hjörv-
ar. Þetta skekkir vitaskuld sam-
keppnisstöðuna, en eins og sakir
standa eru talsverðar líkur á því að
Jóhann og Héðinn verði efstir og
jafnir að vinningum. Jóhann
Hjartarson mætir nafna sínum Jó-
hann Ingvasyni í lokaumferðinni í
dag og skyldi enginn útiloka að hinn
harðvítugi kaffihúsastíll Ingvasonar,
þróaður á knattborðsstofunni í
Faxafeni, geti reynst stórmeist-
aranum hættulegur. Á pappírunum
er viðureign dagsins erfiðari hjá
Héðni, sem mætir Einari Hjalta
Jenssyni.
Hetju þessa móts verður að telja
Guðmund Gíslason, sem hefur náð
lokaáfanga sínum að alþjóðlegum
meistaratitli. Gamli verkstjórinn um
borð á Guggunni frá Ísafirði hóf mót-
ið á því að tapa fyrstu þrem skákum
sínum. Síðan vann hann Héðin Stein-
grímsson og Hjörvar Stein Grét-
arsson og á miklum spretti hlaut
hann 5½ vinning úr sex skákum en
tapaði svo fyrir Birni Þorfinnssyni í
gær. Hann hefur þegar hækkað um
44 Elo-stig fyrir frammistöðu sína.
Ef kjósa á dramatískustu skák
mótsins er valið ekki erfitt:
Skákþing Íslands, 8. umferð:
Jóhann Hjartarson – Einar Hjalti
Jensson
Jóhann Hjartarson náði sér ekki á
strik á Íslandsmótinu í fyrra. Hann
fékk harða mótspyrnu í flestum
skákunum og var einkennilega ófar-
sæll. Í þessu móti hefur gæfuhjólið
snúist honum í vil. Einar Hjalti var
með gjörunnið tafl og lék síðast 51.
… c4-c3. Barátta hvíts virðist alger-
lega vonlaus, t.d. 52. gxh5 c2 53.
hxg6+ Kg8 o.s.frv. eða 52. Hxg6
Kxg6! 53. Dxh5+ Kg7 54. Dxe8 c2 og
mátið í borði blasir við. Jóhann var
við það að „henda inn handklæðinu“
en ákvað að láta reyna á eina sak-
lausa brellu:
52. Hc5!?
Dugar skammt. Svartur getur
leikið 52. … Ha7! t.d. 53. De1 Da4
o.s.frv.
52. … Hxc5??
Þetta mátti hann alls ekki gera.
53. Hxg6! Kxg6
Hvítur hótaði 54. Df6 mát.
54. Dxh5+ Kg7 55. Dxe8
Skákreiknarnir eru á einu máli um
að þessi staða sé jafntefli en Einar
Hjalti vildi ekki láta sigurinn sér úr
greipum ganga. Þar kom að hann
teygði sig of langt og tapaði í 78
leikjum en taflmennska Jóhanns á
þeim kafla var óaðfinnanleg.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Undanfarið hefur
mikið verið fjallað
um skaðsemi sykur-
neyslu og gagnsemi
mettaðrar fitu í fæð-
unni. Fólk er í vanda
þegar ný sjónarmið
stangast á við þau
eldri sem voru áður
höfð að leiðarljósi.
Kostir sykurskerts
en fituríks fæðis
Sykur og krabbamein. Warburg-
kenningin um eðli krabbameina fel-
ur í sér að meðferð með sykur-
snauðu fæði geti eytt krabbameini
því krabbameinsfrumur vinna ein-
ungis orku úr sykri með gerjun.
Þessi meðferð hefur ekki gengið
vel því menn eiga erfitt með að
hafna sykri alveg.
Sykur og alzheimersjúkdómur.
Í alzheimersjúkdómi virðist heil-
inn ekki geta unnið orku úr sykri
en notar þá fituefni (þ.e. ketona
sem myndast við niðurbrot fitu-
sýra) í staðinn. (Sykursýki 3). Or-
sakir þessa sjúkdóms eru ekki
þekktar.
Sykurskert fæði dregur úr offitu
og sykursýki 2.
Er aukin neysla á sætuefnum í
gosdrykkjum og fjölda matvæla
hluti af vandanum? Rannsóknir
hafa sýnt að þessi efni hafa stuðlað
að aukinni offitu neytenda og með-
fylgjandi heilsufarsvandamálum.
Ókostir fituríka
fæðisins
Sýnt hefur verið
fram á að fituríka fæðið
leiðir til aukningar á
tíðni kransæða-
sjúkdóma. Aukin
áhersla á fituminna
fæði eftir 1975 á Íslandi
leiddi til mikillar fækk-
unar dauðsfalla af völd-
um hjartasjúkdóma eft-
ir 1980 og fram til 2009
(heimild: Árni Kristins-
son, Fréttabréf Hjarta-
heilla, maí 2016).
Lengi vel, eða í meira en 50 ár,
voru helstu orsakir kransæðasjúk-
dóma taldar vera fituríkt fæði með
mikið af mettaðri fitu og hátt kól-
esterol í blóði. Ráðlagt var að
borða fitusnautt fæði en auka
neyslu á grænmeti og kolvetnum í
staðinn. Undanfarin ár hefur offita
aukist mikið og þá einnig sykursýki
2 og önnur tengd heilsufarsvanda-
mál. Nú er viðhorfið að breytast og
farið í öfuga átt, auka á fituneyslu
en forðast sykur og önnur kolvetni.
Það eru ýmsar hliðar á fituneysl-
unni, t.d. hvaða fita verður fyrir
valinu. Neysla á omega-6-fitusýrum
í ýmsum jurtaolíum hefur aukist
mikið en þessar omega-6-fitusýrur
eru taldar bólguhvetjandi. Þrálátar
bólgur eru taldar undirliggjandi or-
sök margra erfiðra sjúkdóma svo
sem æðakölkunar, krabbameina og
heilabilunar. Hlutfall bólguhvetj-
andi omega-6-fitusýra og bólguletj-
andi omega-3-fitusýra (í fiskmeti og
lýsi) er yfirleitt mjög hátt í fæð-
unni í dag eða um 30, þ.e. að
omega-6-fitusýrur eru 30 sinnum
meiri en omega-3 en æskilegt er
talið að þetta hlutfall væri um 4 í
stað 30.
Streita er enn einn þáttur sem
hefur neikvæð áhrif á hjartað ef
hún er langvarandi og getur þá
valdið banvænum hjartsláttartrufl-
unum.
Vandamálið er flókið og marg-
þætt og mikilvægt að fara ekki úr
öskunni í eldinn og fá í stað offitu,
aukna tíðni dauðsfalla af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma af fituríku
fæðunni. Menn eru að glíma við
langtímaáhrif. Spurning er hvort
heppilegt sé að ráðleggja öllum
sama mataræðið þegar einstakling-
arnir hafa ólíkar þarfir og bregðast
á mismunandi hátt við sömu fæðu?
Þótt þeim sem glíma við offitu
henti sykursnautt og fituríkt fæði
er óvíst hvort það hentar öllum. Á
meðan beðið er eftir sannfærandi
rannsóknaniðurstöðum ættu menn
yfirleitt að borða fjölbreytt fæði í
hófi.
Sykur og sjúkdómar
Eftir Sigmund
Guðbjarnason » Fólk er í vanda þeg-
ar ný sjónarmið
stangast á við þau eldri
sem voru áður höfð að
leiðarljósi.
Sigmundur
Guðbjarnason
Höfundur er prófessor emeritus.
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ ÓSKAST TIL KAUPS
Eldri borgari óskar eftir þjónustuíbúð á stór Reykjavíkursvæðinu.
Íbúðin þarf að vera a.m.k. 100m2. Æskilegt er að hægt sé að
kaupa tilbúinn mat og bílageymsla fylgi íbúðinni. Íbúðin þarf
helst að vera á efstu hæð eða þakhýsi/penthouse - með miklu
útsýni til norðurs yfir sjó og fjöll.
Íbúðin þarf ekki að afhendast strax.
Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið
bagustsson@me.com
Jóhann og Héðinn
jafnir og efstir
fyrir lokaumferð
Íslandsmótsins
– með morgunkaffinu