Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016 ✝ Friðrik Krist-jánsson húsgagnasmíða- meistari fæddist á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði 29. maí 1926. Hann and- aðist á hjúkrunar- heimilinu Hlíð á Akureyri 5. júní 2016. Foreldrar hans voru Kristján Helgi Benjamínsson, bóndi og hreppstjóri á Ytri-Tjörnum, f. 24.10. 1866, d. 10.1. 1956, og Fanney Friðriksdóttir, hús- freyja, f. 6.1. 1881, d. 13.8. 1955. Friðrik kvæntist árið 1949 Kolfinnu Gerði Pálsdóttur, f. 12.8. 1924, á Böðvarshólum í Vesturhópi, húsmæðrakennara úr Reykjavík. Þau stofnuðu heimili á Akureyri, fluttu að Kristnesi 1955 og í eigið hús í Reykárhverfi í Eyjafjarðar- sveit 1978. Börn þeirra eru: 1) Ingibjörg Friðriksdóttir, f. 18.4. 1950, gift Helga Bjarna- syni, f. 14.7. 1953. Börn henn- ar: a) Fanney Friðriksdóttir, f. 23.9. 1970, maki Birgir Árdal Hauksson, f. 24.1. 1964, og eru börn þeirra Þorri Árdal, f. 5.11. 1991, Logi Már, f. 10.6. 1993, Fannar Kári, f. 7.12. 1994, Hekla Valdís, f. 30.3. 2002 og Áróra Ingibjörg, f. Snæbjarnardóttir, f. 20.4. 1988, maki Ásgeir Úlfarsson, f. 1.9. 1982, og er dóttir þeirra Íris, f. 30.4. 2016, b) Auðunn Skúta Snæbjarnarson, f. 1.5. 1990, c) Snæbjörn Hersir Snæ- bjarnarson, f. 21.2. 1993, 4) Anna Friðriksdóttir, f. 10.4. 1955, gift Guðmundi Guð- mundssyni, f. 8.8. 1954. Synir þeirra: a) Sverrir Guðmunds- son, f. 25.4. 1979, maki Ósk Dagsdóttir, f. 12.3. 1983, b) Snæbjörn Guðmundsson, f. 28.3. 1984, c) Eyjólfur Guð- mundsson, f. 30.11. 1988, 5) Baldur Helgi Friðriksson, f. 16.11. 1958, maki Kristín Hrönn Reynisdóttir, f. 20.4. 1962. Börn hans: a) Theodóra Rún Baldursdóttir, f. 7.11. 1988, b) Kamilla Sól Baldurs- dóttir, f. 5.10. 1990, c) Alex- ander Nökkvi Baldursson, f. 1.5. 1992, d) Benjamín Viktor Baldursson, f. 13.2. 1996, e) Natalía Hrund Baldursdóttir, f. 11.5. 2005, 6) Theodór Frið- riksson, f. 20.4. 1960. Börn hans: a) Kristján Páll Theo- dórsson, f. 17.2. 2001, b) Sig- ríður Ásta Theodórsdóttir, f. 17.11. 2002. Friðrik lærði húsgagnasmíði á Akureyri og starfaði við hús- gagnaverkstæðið Valbjörk. Hann hóf störf sem verkstjóri við vinnustofur SÍBS í Krist- nesi á árinu 1954 og var síðan framkvæmdastjóri til 1977. Hann tók þá við starfi hús- varðar við Hrafnagilsskóla og gegndi því til starfsloka. Útför Friðriks verður gerð frá Grundarkirkju í dag, 11. júní 2016, klukkan 13.30. 7.3. 2006, b) Haf- dís Helgadóttir, f. 20.1. 1976, gift Sigurði Hjartar- syni, f. 30.1. 1977, og eru börn þeirra Víkingur, f. 10.11. 2005 og Freyja, f. 27.9. 2010, c) Bjarni Helgason, f. 9.4. 1977, maki Dag- björt Tryggva- dóttir, f. 19.6. 1979, og eru börn þeirra Helgi, f. 13.11. 2008 og Ylfa Kristín, f. 14.2. 2011, d) Friðrik Helgason, f. 7.2. 1982, maki Droplaug Benediktsdóttir, f. 11.8. 1986, 2) Fanney Friðriksdóttir, f. 13.6. 1952, gift Guðmundi J. Halldórssyni, f. 11.2. 1956. Börn hennar: a) María Sigríð- ur Þórðardóttir, f. 2.2. 1971 og eru börn hennar: Árdís Marín Ingadóttir, f. 20.5. 1998, Kristófer Daði Ingason, f. 14.8. 2000 og Ísabella María Bech, f. 26.6. 2007, b) Friðrik Þórðarson, f. 2.2. 1973, c) Sig- urjón Geir Þórðarson, f. 8.10. 1974, kvæntur Sólveigu Er- lendsdóttur, f. 15.4. 1980, og eru börn þeirra: Dagur Árni, f. 1.3. 2006 og Jökull Logi, f. 16.12. 2008, d) Axel Gauti Guðmundsson, f. 17.7. 1990, 3) Snæbjörn Friðriksson, f. 21.1. 1954. Börn hans: a) Kolfinna Íslenski fáninn var dreginn í hálfa stöng við gamla íbúðarhús- ið á Ytri-Tjörnum sl. sunnudag. Friðrik var látinn, síðastur Tjarnasystkinanna. Þau voru 12 og létu öll til sín taka í þjóðlífinu á síðustu öld, hvert með sínum hætti. Friðrik var langyngstur en nærri 27 ára aldursmunur var á honum og elstu systur hans. Friðrik náði 90 ára aldri. Hann fagnaði tímamótunum með börnum sínum, nánu skyldfólki og vinum 29. maí sl. Hann komst í fréttirnar á Fésbókinni með því að vera einn fárra núlifandi Ís- lendinga sem áttu afa eða ömmu sem fæddust fyrir meira en 200 árum. Þegar Friðrik lést voru 208 ár frá því Benjamín Fló- ventsson, afi hans, fæddist. Líf þeirra langfeðga náði yfir meg- inhluta 19. aldar, alla 20. öldina og nokkuð fram á þá 21. Niður aldanna hljóðnaði. Gerður og Friðrik bjuggu sér og börnum sínum gott og menn- ingarlegt heimili og þar hef ég átt margar góðar stundir með þeim. Húsið í Kristnesi var fullt af gömlum húsgögnum og munum úr ættum beggja. Bækur þöktu veggi. Bæði voru miklir safnar- ar. Gestkvæmt var á heimilinu. Friðrik var ræðinn og fróðleiks- fús. Hann hafði gaman af því að spjalla um stjórnmál og leitaði stíft frétta og skoðana gesta og sagði sitt álit. Hann var glettinn og naut þess að segja gamansögur, gamlar og nýjar, og jafnvel lít- ilfjörlegustu atvik gátu orðið að söguefni. Hann gat líka rætt málin af ákafa. Svo var farið í einhverja bókahilluna og flett upp í skræðu og með því gat Friðrik oft stutt mál sitt góðum rökum. Eftir að hjónin fluttu sig í Reykárhverfið, þar sem þau voru meðal frumbyggja, var Friðrik á góðum stundum nefnd- ur „bæjarstjórinn“. Ég stend í þeirri meiningu að það hafi verið vegna þess að hann hélt uppi fjörinu á „bæjarhátíðum“. Friðrik og Gerður fylgdust vel með framgangi barna sinna, barnabarna og barnabarnabarna í lífinu, ávallt stolt af þeim, eins og þau máttu vera. Afkomendur þeirra eru orðnir 42. Blessuð sé minning míns ágæta tengdaföður. Helgi Bjarnason. Í Vallartröð tók Friðrik afi alltaf á móti okkur með bros- mildum augum og sannri gest- risni. Hann hafði gaman af því að spjalla við okkur milli þess sem hann hummaði og kveikti sér í pípu. Á fallegu heimili afa og ömmu þótti okkur alltaf spennandi að koma enda var þar mikið af áhugaverðum munum. Það var gaman að skoða pennasafnið hans afa, gamla skrifborðið og bækurnar óendanlegu sem við skemmtum okkur við að telja. Stór og blómlegur garðurinn var stöðug uppspretta leikja – og rabarbara með sykri úr búrinu hennar ömmu. Okkur er líka minnisstæður ævintýralegur lækurinn, reisulegur skógurinn, fossinn og fjallið – allt í bakgarð- inum. Afi var hagleiksmaður, sí- brallandi eitthvað úti í bílskúrn- um sem í okkar litlu augum var stútfullur af æsispennandi tækj- um sem ekki mátti fikta í. Úti í bílskúr var afi líka með sér ís- skáp undir gos (og fleira) sem hann var duglegur að bjóða úr. Þótt afi hafi verið iðinn er minn- ingin um hann dottandi með bók í hendi ekki síður sterk. Þegar árin færðust yfir var jafn gaman koma í Vallartröð og hitta gömlu hjónin, þiggja veit- ingar og hlusta á þau færa manni ljóslifandi sögur úr fortíð- inni. Það var líka gaman að sjá hvað afi hugsaði vel um ömmu eftir að hún missti heilsu. Lengi lifi minningin um góðan afa. Fanney, Hafdís, Bjarni, Friðrik, makar og börn. Nú er hann Friðrik Kristjáns- son fallinn frá. Honum kynntist ég fyrir um 25 árum þegar ég kom til starfa í Eyjafjarðarsveit. Hann var þá húsvörður við Hrafnagilsskóla. Við urðum síð- an nágrannar í Vallartröð í nokkur ár og með okkur tókst góð vinátta. Friðrik er mér fyrir margra hluta sakir minnisstæðari en margur sem ég hef kynnst á lífs- leiðinni. Eðlilega eru vissir hlutir sem standa upp úr í minning- unni. Friðrik var mjög kvikur í hreyfingum og gekk rösklega til verka. Starfi sínu sem húsvörður sinnti hann af mikilli samvisku- semi og var fyrir vikið í starfi fram yfir sjötugt. Mér er Friðrik sérstaklega minnisstæður þegar hann á sumrin eyddi löngum stundum í að fegra umhverfið. Auk þess að sinna garðinum við hús þeirra Gerðar þá hafði hann tekið í fóstur aðliggjandi opið svæði þar sem hann vökvaði og sló, hlúði að trjám og runnum okkur nágrönnum til mikillar gleði. Sonur minn, Jónas, sem þá var ungur að árum hafði mikið dálæti á Friðriki og kallað hann jafnan „Friðriki minn“. Reyndar held ég að þetta dálæti hafi verið gagnkvæmt. Jónas fylgdist grannt með Friðriki og tók hann sér mjög til fyrirmyndar. Hann eignaðist líka garðsláttuvél eins og Friðrik, að vísu úr plasti. Þegar hann sá Friðrik fara að slá greip hann sláttuvélina og brunaði af stað líka. Um tíma tók hann upp á því að ganga um gólf álútur með hendur fyrir aft- an bak eins og Friðriki minn. Það vantaði bara pípuna. Ég minnist með ánægju sam- tala okkar á grasflötinni við Vall- artröð. Þau samtöl voru mörg um landsins gagn og nauðsynjar og oft á léttu nótunum því Frið- rik var gamansamur. Á undan- förnum árum hef ég alltaf rekist á Friðrik af og til og við tekið stutt spjall um það sem á dagana hefur drifið frá því síðast. Nú var þó orðið nokkuð langt um liðið enda hár aldur hans og löng vinnusöm ævi farin að segja til sín. Við Freyja og börn okkar minnumst Friðriks með hlýhug og þakklæti. Við vottum Gerði og öðrum aðstandendum samúð okkar. Pétur Þór Jónasson. Friðrik Kristjánsson Eðvarð Örn Kristinsson ✝ Eðvarð ÖrnKristinsson fæddist 29. ágúst 1981. Hann lést af slysförum er bát hans hvolfdi út af Aðalvík 11. maí 2016. Útför Eðvarðs Arnar fór fram frá Súðavíkurkirkju 21. maí 2016. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR ÁGÚSTU HANNESDÓTTUR hjúkrunarfræðings. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund og deild 4B Landspítala, Fossvogi, fyrir einstaka umönnun og hlýhug. . Jón Sigurðsson, Una Eyþórsdóttir, Hannes Sigurðsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Albert Páll Sigurðsson, Rannveig Sigurðardóttir, Ólöf Guðrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar BIRGIS ARA EINARSSONAR, fyrrverandi skólastjóra, Ásvegi 28, Breiðdalsvík. . Auður Stefánsdóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og veittu aðstoð vegna andláts og útfarar FINNBOGA JÓNSSONAR frá Skálmarnesmúla. . Þuríður Kristjánsdóttir, Anna Freyja Finnbogadóttir, Óskar Halldórsson, Jón Finnbogason, Auður Elín Finnbogadóttir, Guðjón Þorsteinsson og barnabörn. Þökkum vináttu og samúð við fráfall og útför okkar elskulegu SIGRÍÐAR FANNEYJAR ISAKSEN. Við viljum sérstaklega þakka Hildi og öllum frábæru konunum og öðrum sem önnuðust hana á Blesastöðum. . Viktoría Isaksen, Valdimar Steinþórsson, Vilhelmina Isaksen, Erling Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, ÓSKARS HALLDÓRSSONAR húsgagnabólstrara, Lyngbergi 39b, Hafnarfirði. Við sendum sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar á Sólvangi, starfsfólks Drafnarhúss og taugalækningadeildar Landspítalans í Fossvogi fyrir frábæra umönnun. . Helga Jóna Jensdóttir, Hrafnhildur Óskarsdóttir, Jens Þórisson, Hafdís Óskarsdóttir, Khalil Semlali, Helena Óskarsdóttir, Robert Scobie, Helga Óskarsdóttir, Christof Wehmeier, Valdimar Óskarsson, Lovísa Traustadóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Ástkær sonur minn, bróðir okkar og vinur, RICHARÐUR ÞÓR ÁSGEIRSSON flugvallarstjóri, Hraunbraut 17, lést á heimili sínu 6. júní. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 16. júní. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans láti Hjálparsveit skáta Kópavogi njóta þess. . Dóra Georgsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Berglind Ólafsdóttir, Fanný Fjóla Ásgeirsdóttir, Viðar Ásgeirsson, Guðrún María Einarsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, NIELS P. SIGURÐSSON fv. sendiherra, sem lést 3. júní, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 13. júní kl. 15. . Rafn A. Sigurðsson, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Karitas Sigurðsson, Alexander Mitrogogos, Sigurður B. Sigurðsson, Viky Figueras-Dotti, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.