Morgunblaðið - 11.06.2016, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 11.06.2016, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016 Söfn • Setur • Sýningar Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Með kveðju – Myndheimur íslenskra póstkorta í Myndasal Dálítill sjór – Ljósmyndir Kristínar Bogadóttur á Vegg Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni Norðrið í norðrinu á 3. hæð Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi LISTASAFN ÍSLANDS BERLINDE DE BRUYCKERE 21.5 - 4.9.2016 LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016 UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN 21.1 - 11.9 2016 PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS; JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016 Leiðsagnir á ensku alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið daglega í sumar kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR GYÐJUR 5.2. - 29.5.2016 Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016 Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið daglega frá kl. 10-17. Verið velkomin Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Sýningin opin daglega frá 10-17 Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Geymilegir hlutir Árni Matthíasson arnim@mbl.is Tónlistarhátíðin Reykjavík Mid- summer Music verður haldin í fimmta sinn í næstu viku, hefst í Hörpu næstkomandi fimmtudag og stendur fram á sunnudaginn 19. júní. Í ár verður leiðarstef hátíðarinnar hinn frjálsi förusveinn og efnisskráin fer með gesti hátíðarinnar í ferðalög um lendur tónlistarinnar og ekki síð- ur innávið. Eins og getið er verður þetta í fimmta sinn sem hátíðin er haldin, en Víkingur Heiðar Ólafsson stofnaði hátíðina 2012 og er listrænn stjórn- andi hennar. Á vefsetri hátíðarinnar, http://reykjavikmidsummermu- sic.com/, má meðal annars lesa að listræn stefna hátíðarinnar „ein- kennist af því að öll tónlist sem flutt er í dag flokkist í raun sem nútíma- tónlist, hvort sem hún var samin á 17. eða 21. öldinni“. Víkingur segir að merkimiðar séu vissulega að vissu leyti hjálplegir, fólk sem langar til að hlusta á Mahler langar kannski ekki að hlusta á Sturlu Atlas og öfugt, „en frá alda- mótum hefur mér fundist sem fólk sé hætt að hugsa svo mikið um merki- miða. Sama fólkið fer þannig á tón- leika með Sinfóníuhljómsveitinni á Tectonics í Hörpu þar sem spilað er á kaktus og síðan á opnun myndlistar- sýningar í i8 og svo á Jazzhátíð líka. Ég er að reyna að styðja þessa þróun með þessari hátíð,“ segir Víkingur en bendir líka á að hátíðin að þessu sinni sé reyndar „klassískari“ núna en oft áður. Ekki eins mikil tilrauna- mennska „Það er ekki eins mikil tilrauna- mennska en við erum þó með verk eftir George Crumb fyrir tvo flygla og slagverk sem er ótrúlega fallegt verk en enginn veit hvort það sé nú- tímaklassík eða tilraunaverk. Það er líka æðislegt að fólk geti komið í Hörpu og hlustað á Kristinn Sig- mundsson syngja An die ferne Ge- liebte eftir Beethoven, einn fyrsta ljóðasöngsflokk sögunnar, og fengið að heyra á sömu tónleikum frum- flutning á nýrri og glitrandi fallegri píanósónötu eftir Áskel Másson. Það er líka skemmtilegt að fólk sem kemur að hlusta á hinn fína vef franska impressjónistans Maurice Ravel á opnunartónleikunum fái líka að heyra nýtt verk eftir Skúla Sverr- isson, Míranda, sem fer út í geim og heitir eftir smæsta tungli Úranusar þar sem Skúli er að reyna að festa þyngdarleysi í tónmál. Fólk þarf þannig ekki að fara í Mengi til að hlusta á Skúla og í Hörpu til að heyra í Ravel og á einhvern enn annan stað til að upplifa Toru Takemitsu. Lungann úr árinu er Víkingur Heiðar á ferð og flugi að spila á tón- leikum víða um heim. Hann segir að hátíðin sé sér líka mikilvæg sem listamanni, enda sé það alveg jafn mikil tjáning að vera listrænn stjórn- andi hennar og að spila og gefa sig allan í eitthvert tónverk. „Þegar ég er að raða saman sjö tónleikum og reyna að stjórna því hvernig fólk upplifir hlutina, frá fimmtudegi til sunnudags, þá er það ótrúlega stórt tjáningarform, Gesamtkunstwerk á Wagner-skalanum. Ég gæti ekki hugsað mér að vera listrænn stjórnandi eingöngu, að hætta að spila. Ég er píanóleikari 95% og að gera þúsund aðra hluti en að skipuleggja tónlistarhátíð allt ár- ið. Þess vegna verður alltaf rosaleg spenna og hamagangur þegar kemur að því að setja hátíðina saman og vik- una fyrir hverja hátíð hugsa ég alltaf: þetta ætla ég aldrei að gera aftur,“ segir hann og hlær. „Svo er þetta alltaf svo rosalega skemmtilegt, sér- staklega af því að áheyrendur eru svo til í þetta, að ég byrja strax að hugsa um næstu. Ég hvet tónlistar- menn til að prófa að stýra svona há- tíð, prófa að skipuleggja og hugsa um hvernig maður raðar verkum upp í prógramm, í eitthvert þema, eins og ég er að gera með Wanderer, föru- sveininn eða ferðalanginn eða hvað sem viljum kalla það. Þetta skýrir mjög mikið mína hugsun og hefur mikil áhrif á það hvernig ég vinn svo sem einleikari restina af árinu.“ Ótrúlega skemmtileg vinna „Þegar ég ákveð þema eins og ég hef gert er ég náttúrlega að gera líf mitt erfiðara. Í stað þess að velja verk sem ég þekki og er að spila leggst ég í rosalega hlustunarvinnu og kynnist þá oft verkum sem ég þekkti ekki áður. Dæmi um það er Orion eftir Toru Takemitsu, ótrúlega fallegt verk fyrir selló og píanó þar sem við ferðumst út í geim. Ég hugsa að þriðjungur af verkunum á hátíð- inni sé verk sem ég þekkti ekki fyrir sem gerir þetta ótrúlega skemmti- lega vinnu.“ Eins og Víkingur nefnir er þema hátíðarinnar förusveinninn, der Wanderer, og þá í víðari merkingu en þýskir rómantíkerar lögðu í hug- takið á sínum tíma, eins og Víkingur lýsir því, áheyrendur ferðast ekki bara út í náttúruna til að njóta henn- ar, heldur líka milli heima og tíma. „Á tónleikunum 18. júní er t.d. hægt að fara í ferðalag í tónatíðni eins og Charles Ives í verkinu 3 Quarter Tone Pieces frá 1932 sem er fyrir pí- anó sem stillt er venjulega og svo annað sem stillt er kvarttón niður sem býr til brjálæðislega falleg blæ- brigði og svo flökkum við inn í kvik- mynd um listamanninn Calder úti í skógi í verki Works of Calder eftir John Cage, og svo er verk eftir Bart- ók þar sem hann vinnur með náttúru- hljóð og George Crumb tekur það enn lengra í Makrokosmos III: Mus- ic for a Summer Evening. Þetta er Ferðalag í tónum, tíma og rúmi  Reykjavík Midsummer Music hefst á fimmtudag Blóðdropinn, hin íslensku glæpa- sagnaverðlaun, voru afhent í gær í 10. sinn og kom í hlut Óskars Guð- mundssonar fyrir Hilmu. Hið ís- lenska glæpafélag stendur að verð- laununum, en verðlaunabókin er framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverð- launanna. Í dómnefnd Blóðdropans sátu Úlfar Snær Arnarson formaður, Kristján Jóhann Jónsson og Guð- rún Ögmundsdóttir, en í umsögn dómnefndar segir: „Óskar stekkur inn á glæpasvið Reykjavíkur með miklum látum með fyrstu glæpa- sögu sinni, Hilmu. […] Lög- reglukonan Hilma þarf ekki aðeins að kljást við að finna morðingja heldur þarf hún einnig að glíma við forhertan glæpamann úr undir- heimum Reykjavíkur sem vill koma fram við hana hefndum. […] Per- sónur sögunnar eru fjölbreytilegar […] Spenna sögunnar felst að miklu leyti í sjónarhorni frásagn- arinnar. Lesandinn fylgist með hugsunum og gjörðum morðingj- ans sem oft er nálægt því að verða gripinn af Hilmu […] Höfundur dregur lesandann inn í umhverfi sögunnar á skýran og greinar- góðan hátt. Fléttan og spennan byggist jafnt og þétt upp og endar í dramatísku uppgjöri sem lesandi átti erfitt með að sjá fyrir.“ Morgunblaðið/Eggert Gleðistund Óskar var að vonum ánægður við verðlaunaafhendinguna. Hér er hann með Eiríki Brynjólfssyni. Hilma besta glæpasagan  Óskar hlaut Blóðdropann sem afhentur var í 10. sinn Rebekka Kühnis opnar sýningu á teikningum sínum í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri í dag kl. 15. „Teikningar Rebekku fjalla um persónulega nálgun hennar að ís- lensku landslagi. Hún leitast við að ná lagskiptri framsetningu í teikn- ingum sínum og skoðar um leið gagnsæi og tvíræðni í rannsókn sinni á landslaginu þar sem línuleg nálgun leikur aðalhlutverkið,“ seg- ir í tilkynningu sýningarhaldara. Rebekka Kühnis er frá Sviss og útskrifaðist frá Hochschule der Künste í Bern árið 2002 með mast- ersgráðu í listum og kennslufræð- um. „Hún kom fyrst til Íslands fyrir tuttugu árum og vann þá á sveitabæ á Suðurlandi. Síðan þá fjölgaði ferðum hennar til landsins og síðasta sumar tók hún þá ákvörðun að flytja til landsins og er nú búsett á Akureyri.“ Kühnis hef- ur reglulega haldið listsýningar, en þetta er hennar fyrsta einkasýning á Íslandi. Sýningin er opin ýmist kl. 14-17 eða kl. 15-18 nú um helgina sem og dagana 16.-19. júní. Rebekka Kühnis sýnir í Mjólkurbúðinni Mælifell Ein teikninga Rebekku Kühnis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.