Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.06.2016, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016 Laugavegi 99 – Sími 777 2281 (gengið inn frá Snorrabraut) aff.is Concept store Höfum opnað glæsilega nýja netverslun Sky Glass Consoletable 139.900 kr Vintage black Jar 27.900 kr Sky Glass Table 79.900kr Síðustu fimmtudagstónleikarSÍ 2015-16 fóru fram aðviðstöddu fjölmenni ífyrrakvöld. Hljómsveitar- stjóri kvöldsins átti samkvæmt vetrardagskrá að vera hinn ítalski Antonello Manacorda, en þegar til kastanna kom steig í staðinn hinn góðkunni norski Eivind Aadland á stall; að hérlendri venju án auka- tekinnar skýringar. Jafnframt hafði forleik Mússorgskíjs verið bætt við frumdagskrá, þó varla hafi það ver- ið til þess eins að lengja dagskrá, enda var forleikurinn aðeins 5 mín. Hvort tveggja er auðvitað vitasak- laust í sjálfu sér nema að því leyti að ástæðunni var haldið frá tón- leikagestum. Téður forleikur að ókláraðri óp- eru Mússorgskíjs, Dögun við Moskvufljót (1874), var einkar ljúf- ur áheyrnar í vandaðri meðferð SÍ á tærri orkestrun Dmitris Sjosta- kovitsj frá 1959, er fer nær frum- hugsun tónskáldsins en fyrrum tíð flíkuð útsetning Korsakovs. Var ekki annað að heyra en að hljómsveitin væri þá þegar á fullum dampi, og í seinna verkinu fyrir hlé, Ich denke Dein... (2015; 30’) eftir skánska tónskáldið Rolf Mart- insson (f. 1956), blómstraði spila- mennskan á fullu, jafnt í sólóum sem samspili. Það var sérstaklega samið með sópran Lisu Larsson í huga og byggði á fimm þýzkum ást- arljóðum eftir Goethe, Rilke og Eichendorff. Stílrænt séð var tónsmíðin makalaus blanda af síðrómantík allt frá rosknum Richard Strauss og yfir í Weill, Korngold og Bern- stein (að öðrum ónefndum), fyrir utan staka innskotskrydd á við ex- pressjónískan Sprechgesang Schönbergs og meira eða minna djassleitan Broadway-söngleikjastíl miðrar 20. aldar. Á sinn hátt skilj- anleg miðlun á milli 19. aldar söng- texta og seinni tíma. En óneitan- lega var líka harla óvænt að tón- skáld okkar tíma þykist komast upp með annað eins rakið „aftur- hvarf“ sem að yfirbragði hefði get- að verið samið 1880–1960 – ef ekki- allt tímabilið í senn! Hvað sem framsæknustu frum- leikakröfum líður, þá hélt söngva- sveigur Martinssons samt ágætri athygli, þökk sé m.a. litríkri ork- estrun og innlifaðri túlkun jafnt hljómsveitar sem einsöngvara. Lisa Larsson lék á als oddi með líðandi og oft háttlægum ástarstrófum án þess að blása úr nös. Að leikslokum steig svo einnig tónskáldið á svið, og var ekki annað að sjá en að hann væri sáttur við flutninginn. Lokaverkið var 4. sinfónía Gust- avs Mahlers frá aldamótunum 1900. Alldrjúgur biti (58 mín.), sér- staklega fyrir volgustu Mahler- fylgjendur, en engu að síður glæsi- lega orkestrað verk sem náði víða góðu flugi, t.a.m. hjá strengjasveit- inni í III. þætti er læddist fyrst dempuð con sordino með veggjum, þótt skœfi síðar skrugguský með þrumandi þórdunum. Að ekki sé minnzt á fjölda einleikara, þ. á m. á horn og óbó, er hleyptu þjóðlægri melódík meistarans í hæðir. Lisa Larsson söng í lokaþætti sinfóníunnar tónsetningu Mahlers á þýzku þjóðkvæði úr Des Knaben Wunderhorn um „Himneska lífið“ af jafnt einlægni sem faglegu ör- yggi, og var henni, Aadland og hljómsveitinni ákaft fagnað. Morgunblaðið/Eggert Fögnuður Hljómsveitarstjóra, einsöngvara og hljómsveit var ákaft fagnað að loknum síðustu fimmtudagstónleikum S.Í. starfsárið 2015-16. Rakið afturhvarf Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbmn Mússorgskíj: Forleikur að Khovanschina – Dögun við Moskvufljót. Rolf Martins- son: Ich denke dein... Mahler: Sinfónía nr. 4. Einsöngvari: Lisa Larsson. Sinfón- íuhljómsveit Íslands. Hljómsveitarstjóri: Eivind Aadland. Fimmtudaginn 9.júní 2016 kl. 19.30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Shredder fær vísindamann til að búa til nýjategund af andstæðingum. Metacritic 40/100 IMDb 6,5/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 13.00, 14.30, 15.00, 15.30, 17.30, 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 14.30, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 13.30, 14.00, 16.00, 17.30, 18.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 15.00, 17.30, 20.00 Smárabíó 14.00, 17.00 Teenage Mutant Ninja Turtles: Out of the Shadows 12 Úti að aka Ólafur Gunnarsson og Einar Kárason héldu í ferð þvert yfir Ameríku á 1960-árgerð af Kadiljáki. Bíó Paradís 18.00 Jökullinn logar Morgunblaðið bbbnn Smárabíó 13.00, 15.20, 17.40 Háskólabíó 15.10, 17.30, 20.00 Myndiner byggð á einu þekktasta máli Ed og Lorraine Warren, en það er draugagangur sem ein- stæða móðirin Peggy Hodgson upplifði árið 1977. Sambíóin Álfabakka 14.15, 17.00, 18.00, 20.00, 20.00, 21.00, 22.20, 22.45, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.10, 20.00, 22.45 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.45 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.45 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.45 The Conjuring 2 16 Warcraft 16 Í heimi Azeroth er sam- félagið á barmi stríðs. Metacritic32/100 IMDb8,4/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 14.00, 20.10, 22.50 Háskólabíó 22.20 Borgarbíó Akureyri 22.15 Alice Through the Looking Glass Lísa þarf hún að ferðast í gegnum dularfullan nýjan heim til að endurheimta veldissprota. Bönnuð yngri en 9 ára. Metacritic 39/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 15.00, 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 14.00, 17.30 Sambíóin Akureyri 15.00, 17.30 Sambíóin Keflavík 17.30 Money Monster 12 Reiður fjárfestir ræðst inn í upptökuver sjónvarpsþáttar og tekur framleiðsluteymi þáttarins í gíslingu. Metacritic55/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 20.10, 22.40 Háskólabíó 17.40, 20.00, 22.30 Borgarbíó Akureyri 17.50 Florence Foster Jenkins Florence fyllti tónleikasali og glæsihótel og söng þekktar óperuaríur. Hún var gædd órjúfanlegu sjálfstrausti en hafði þann eina galla að geta ekki haldið lagi. Metacritic63/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 17.00, 20.00 Háskólabíó 17.30, 20.00 Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00 Keanu 16 Metacritic63/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 22.30 Sambíóin Egilshöll 22.40 X-Men: Apocalypse 12 Metacritic 51/100 IMDb8,3/10 Smárabíó 21.30 Háskólabíó 22.10 Captain America: Civil War 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 83/100 IMDb 8,7/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Sambíóin Egilshöll 19.45 Mothers Day Metacritic 17/100 IMDb 5,4/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Kringlunni 21.00 The Nice Guys 16 Metacritic 70/100 IMDb 7,9/10 Laugarásbíó 14.00, 20.00, 22.30 Smárabíó 20.00, 20.00, 22.30, 22.40 Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.15 Bad Neighbours 2: Sorority Rising 12 Metacritic 58/100 IMDb 6,2/10 Laugarásbíó 22.20 Flóðbylgjan 12 Metacritic 68/100 IMDb 6,7/10 Háskólabíó 15.00 Angry Birds Metacritic 49/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 13.50, 15.50, 17.50 Smárabíó 13.00, 15.20, 17.45 Háskólabíó 15.10 Sambíóin Keflavík 15.00 The Jungle Book Bönnuð innan 9 ára. Metacritic 75/100 IMDb 8,2/10 Sambíóin Álfabakka 12.40, 17.30 Sambíóin Egilshöll 17.20 Ribbit IMDb 4,2/10 Sambíóin Álfabakka 12.30 Sambíóin Egilshöll 15.00 Arabian Nights: Vol. 1: The Restless one 12 Metacritic 80/100 IMDb7,2/10 Bíó Paradís 21.00 Carol 12 Bíó Paradís 22.15 The Other Side 16 Heimildarmynd um olnboga- börn Ameríku. Metacritic 68/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 22.00 Fúsi Bíó Paradís 22.00 Hrútar 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 7,4/10 Bíó Paradís 18.00 Citizen Four Bíó Paradís 20.00 Demain Bíó Paradís 20.00 Þrestir 12 Dramatísk mynd um 16 ára pilt sem sendur er á æsku- stöðvarnar vestur á firði. Bíó Paradís 20.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.