Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 13
Óskar í Sunnubúðinni, en hjá honum
var frambjóðandinn sendill í gamla
daga.
Gísli Marteinn Baldursson, sjón-
varpsmaður, hjólreiðafrömuður og
fyrrverandi borgarfulltrúi, var þar
fyrir. „Menn vita ekki hver fann upp
hjólið en Gísli Marteinn fann upp tví-
hjólið,“ sagði Davíð og þeir hlógu
báðir dátt.
Þessi orð voru slegin inn í tölvu áð-
ur en viðtal við Margréti Pálsdóttur
var sýnt á föstudagskvöldi og ekki er
að efa að sá þáttur var skemmtilegur
eins og hinir fyrri þrír. Vonandi
verða allir jafn afslappaðir og
skemmtilegir. Hildur Þórðardóttir
verður á ríkisskjánum á mánudaginn
en á þriðjudag fær þjóðin frí frá
kosningavafstri (!) vegna Evrópu-
móts landsliða í fótbolta.
Að kvöldi þriðjudagsins mæta Ís-
lendingar liði Portúgals í borginni
Saint-Étienne og hefst leikurinn
klukkan 19.
Sturla Jónsson mætir í RÚV-
viðtalið á miðvikudaginn en aftur
taka íþróttamenn völdin að kvöldi
fimmtudagsins, meira að segja Ís-
lendingar og Portúgalar enn á ný! Í
það skipti verður reyndar leikið
innandyra, en karlalandslið þjóðanna
í handbolta etja kappi um sæti á
heimsmeistaramótinu á næsta ári.
Þrír síðustu frambjóðendurnir
mæta svo í viðtal hjá sjónvarpsfólki
RÚV eftir helgina, í síðustu viku fyrir
kjördag. Halla Tómasdóttir verður á
skjánum á mánudaginn, Ástþór
Magnússon á þriðjudaginn og Elísa-
bet Jökulsdóttir rekur lestina, mið-
vikudagskvöldið 22. júní.
Glæsileg bifreið í eigu embættis forseta Íslands. Eftir nákvæmlega tvær vikur kemur í ljós hver fær hana til afnota næst.
Morgunblaðið/RAX
12.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Ekki eiga allir þess kost að kom-
ast á kjörstað 25. júní og heldur
ekki á hefðbundna staði til þess
að kjósa utan kjörfundar. Allir
ættu þó að geta kosið.
Á heimasíðu innanríkisráðu-
neytisins kemur fram að kjós-
anda, sem er til meðferðar á
sjúkrahúsi eða vistmaður þar,
eða er heimilismaður á dvalar-
heimili aldraðra eða stofnun
fyrir fatlað fólk, er heimilt að
greiða þar atkvæði.
Sama er að segja um fangelsi
og vistmenn þar.
Slík atkvæðagreiðsla fer fram
á þeim tíma sem kjörstjóri
ákveður, á sjúkrahúsi sem næst
kjördegi.
Kjósanda, sem ekki getur sótt
kjörfund á kjördegi vegna sjúk-
dóms, fötlunar eða barns-
burðar, er heimilt að greiða at-
kvæði í heimahúsi nema hann
eigi kost á að greiða atkvæði á
stofnun.
„Ósk um að greiða atkvæði í
heimahúsi skal vera skrifleg og
studd vottorði lögráða manns
um hagi kjósandans. Slík at-
kvæðagreiðsla má þó ekki fara
fram fyrr en í fyrsta lagi þremur
vikum fyrir kjördag, laugardag-
inn 4. júní, en ósk um atkvæða-
greiðslu í heimahúsi verður að
berast hlutaðeigandi sýslu-
manni eigi síðar en fjórum dög-
um fyrir kjördag, þriðjudaginn
21. júní, fyrir kl. 16,“ segir á síðu
ráðuneytisins.
Litlahraun. Fangar sem dvelja þar þessi dægrin fá að kjósa á staðnum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Enginn þarf að óttast
að geta ekki kosið