Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2016 HÖNNUN Brugghúsið Saltwater Brewery í Flórída hefur þróað áhald sem heldur drykkjarkippum saman og er úr ætu hráefni fyrir sjávardýrin. Brugghúsið vann lífrænu umbúðirnar í samstarfi við auglýsingastofuna We Believers í New York en þær eru meðal annars gerðar úr hveiti og byggi en samt sem áður eru þær sterkar og eiga að haldast vel. Samkvæmt Greenpeace eru um 100 milljónir tonna af plasti framleidd á ári og um 10 milljónir tonna af því enda í sjónum og hafa skaðleg áhrif á lífið í sjónum. Mikið hefur verið fjallað um plasthringi sem halda kippum saman að undanförnu enda er mikið um að sjávardýr annaðhvort festist í þeim eða gleypi þá. Þetta veldur dýrunum miklum óþægindum og í mörgum tilfellum dauða. Umbúðirnar eru lífrænar, ætar og er meginuppistaðan hveiti og bygg. Þær koma í stað hringja, sem gerðir eru úr plasti. Umhverfisvæn umbúðahönnun Nýjungar úr heimi hönnunar Það er alltaf spennandi þegar hönnunarhús taka nýja stefnu eða hefja samstarf við ólíkar hönn- unarkeðjur og sameina þar með krafta sína til þess að skapa áhugaverðar nýjungar. Skandinav- ískar keðjur á borð við IKEA og H&M hafa verið duglegar upp á síðkastið að efla samstarf við aðra hönnuði. Margir hönnuðir keppast jafnframt við að vinna með náttúrunni og þróa lífrænar, nyt- samlegar nýjungar sem áhugavert er að skoða. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Sænska keðjan IKEA hefur tilkynnt væntanlegt samstarf sitt við ein vinsæl- ustu hönnunarhús Evrópu, HAY og Tom Dixon. HAY er dönsk innanhússhönnunar- keðja sem hefur notið gífurlegra vin- sælda undanfarin ár. Lína HAY fyrir IKEA er væntanleg með haustinu 2017 en þegar hefur IKEA birt myndir af nokkrum vörum úr línunni. Línan ein- kennist af skandinavískum síl, ljósum lit- um og fallegum, stílhreinum formum. Afrakstur samstarfs IKEA og breska hönnuðarins Tom Dixon er hinsvegar væntanlegur í búðir árið 2018. Mikil leynd er yfir því sem hönnuðurinn mun gera fyrir IKEA en frekari upplýsingar koma í ljós í ágúst 2017. Þó greindi hönnuðurinn frá því að hann mundi vinna með málm í línunni en hann vinn- ur mikið með málm í hönnun sinni og er eitt af hans þekktustu verkum Copper Shade kopar-ljósið. IKEA í samstarf við vinsæl hönn- unarhús Danska hönnunarhúsið Republic of Fritz Hansen kynnti nýja vörulínu af smáhlutum fyrir heimilið. Vörulínan er sérlega vönduð þar sem hönn- unarhúsið notast við hágæða efnivið og vandað hand- verk. Línan inniheldur meðal annars brass-kertastjaka eftir spænska hönnuðinn Jaime Hayón og púðaver eftir Arne Jacobsen. Línan samanstendur af 12 munum en við hana bætast síðan smátt og smátt fleiri munir með tím- anum. Með þessu móti fetar Fritz Hansen í fótspor ann- arra danskra hönnunarhúsa á borð við HAY og Normann Copenhagen, sem leitast eftir að ná til ólíkra kúnnahópa með því að bæta smáhlutum við stærri og dýrari lúxusvarning. Línan inniheldur 12 smáhluti. Meðal þeirra eru púðaver hönnuð af Arne Jacobsen. Fritz Hansen leggur uppúr fágaðri hönnun og vönduðu handverki. Smáhlutalína frá Fritz Hansen Brass kertastjakar eftir spænska hönn- uðinn Jaime Hayón tilheyra línunni. Ljósmyndir/frá framleiðanda Stillanlegur, svart bonded leður. Fullt verð: 89.900 kr. EASY hægindastóll Aðeins 29.990 kr. 66% AFSLÁTTUR Opnunartilboð Takmarkað magn Regina 3ja sæta Sófi í klassískum stíl. Dökk- og ljósgrátt áklæði. Stærð 200 x 80 x 82 cm. Fullt verð: 69.900 kr. Aðeins 27.996 kr. 60% AFSLÁTTUR Opnunartilboð Takmarkað magn LÚXUSHANDKLÆÐI Beige litur á ótrúlegu verði 100% tyrknesk lúxusbómull, 500 gsm Stærð cm Fullt verð Opnunartilboð 30 x 30 175 kr. 70 kr. 40 x 60 475 kr. 190 kr. 50 x 100 795 kr. 318 kr. 70 x 140 1.495 kr. 598 kr. 90 x 170 2.495 kr. 998 kr. 60% AFSLÁTTUR Opnunartilboð Takmarkað magn Afgreiðslutími Smáratorgi umhelgina Laugardag frá kl. 1000 til 1800 Sunnudag frá kl. 1200 til 1600 Smáratorgi I 512 6800 Holtagörðum I 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri I 558 1100 Skeiði 1, Ísafirði I 456 4566 www.dorma.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.