Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2016 Æ tli ég ferðist ekki enn meira en poppstjarna. Í það minnsta koma þær fram á kvöldin en ég er að frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld,“ segir hin 82 ára gamla doktor Jane Goodall, einn frægasti dýra- og umhverfisverndunarsinni heims sem heimsæk- ir Ísland í fyrsta sinn í næstu viku. 300 daga á ári er þessi hugsjónakona á ferð og flugi til að vekja jarðarbúa til meðvitundar um umhverfis- og dýravernd og slær ekki slöku við þótt aldurinn færist yfir. Það er frekar að hún bæti í. Jane Goodall varð heimsfræg árið 1962 þegar National Geographic birti ljósmyndir af henni, 28 ára gamalli, þar sem hún átti í einstökum samskiptum við villta simpansa. Fékk umheim- urinn þá að vita af því að í Afríkulandinu Tan- saníu væri þessi unga breska kona að gera tímamótauppgötvanir á hegðun simpansa. Með þessum öpum hafði hún þá meira og minna dvalið, í þeirra náttúrulega umhverfi, í tvö ár – fylgst með hegðun þeirra og gert merkilegar uppgötvanir. Næstu ár og áratugi áttu eftir að verða til sjónvarpsþættir og kvikmyndir um hana og hennar líf sem og fjöldi bóka. Jane Goodall varð súperstjarna og er í dag meðal annars friðarfulltrúi Sameinuðu þjóðanna. Jane Goodall dvaldist á þessum tíma og næstu áratugi meira og minna með simpöns- unum í Gombe-skóglendinu í Tansaníu þar sem hún stofnaði svo rannsóknarsetrið Gombe Stream. Í dag heimsækir hún rannsóknarstöðina tvisvar á ári og hún myndi vera þar mun oftar og lengur ef hættuástand ríkti ekki í umhverf- ismálum eins og hún segir sjálf. Hún verði að nýta tímann til að ferðast um heiminn og vekja fólk til meðvitundar um jörðina og þá hættu sem hún er í, sem og líf þeirra dýra og manna sem hana byggja. „Við erum að sjá miklar breytingar verða í jarðríkinu: útrýmingu dýrategunda, eyðingu skóga, mengun á lofti og vatni og svo mætti áfram telja. Vandamálið er að þrátt fyrir að flestir geri sér grein fyrir þessu og um þetta sé fjallað í fjölmiðlum er fólk ráðþrota. Því líður eins og það litla sem það gæti hugsanlega gert skipti engu máli. Svo að í stað þess að gera eitt- hvað gerir það ekkert,“ segir Jane Goodall þeg- ar blaðamaður Sunnudagsblaðs Morgunblaðs- ins slær á línuna til hennar. Hún er nýkomin úr stífu ferðalagi og er í smá afslöppun heima við í Bretlandi þar sem hún býr í húsinu sem hún ólst upp í. Það gefur henni mikið að hitta þar fyrir sömu trén og voru þar þegar hún var að alast upp en systir hennar býr að staðaldri í húsinu með fjölskyldu sinni. Jane Goodall er aftur á móti eins og fyrr segir lítið heima við. Þrátt fyrir að henni þyki svo sann- arlega ekki gaman að ferðast. „Nei, það er hræðilegt. Öll þessi bið, flug- vellir, ný hótel. Sérstaklega varð þetta erfitt eftir 11. september, með hertri öryggisgæslu þyngdust öll ferðalög. En ég læt mig hafa það. Ég vil nýta allan tíma sem ég hef til að fræða unga sem aldna því ég er vongóð, ég held að það sé hægt að snúa þessari þróun við. En ég verð að hafa hraðan á, ég veit ekki hvað ég á mörg ár eftir, það styttist í annan endann. Ég vildi að ég hefði fleiri ár í þetta.“ Allir geta gert eitthvað Hvar sem Goodall kemur, leitast hún við að leiðrétta þann misskilning að ein manneskja geti ekki gert neitt. „Sannleikurinn er sá að á hverjum einasta degi getur hver og einn einasti gert eitthvað til að hafa áhrif til góðs á umhverfið. Það getur virst lítið. En bara það að hafa í huga hvað við kaupum úti í búð skiptir öllu. Að kynna sér hvaðan varan er upprunnin, hve langt er hún flutt? Voru mannúðar- og siðferðissjónarmið höfð að engu í framleiðslunni? Var í fram- leiðsluferlinu komið illa fram við dýr eða fólk? Um leið og við spáum í þetta og ákveðum út frá því hvað við setjum í körfuna erum við að breyta heiminum. Okkur einföldu lifnaðar- hættir geta í hverju skrefi haft áhrif.“ Þetta segir Goodall að eigi stórt erindi við okkur Íslendinga og þjóðir í norðri. Neyslu- samfélög hafi einmitt áhrif með sinni neyslu. Og hún er vongóð þrátt fyrir allt. Vongóð um að fólk endurskoði lifnaðarhætti sína en líka von- góð um að fólk grípi til aðgerða. Enda er reynslan sú að hvar sem hún kemur rúllar ein- hver bolti eða boltar af stað. Bæði hefur orðið til Stofnun Jane Goodall, sem hefur það að markmiði að hvetja fólk til að taka virkan þátt í verndun dýra og umhverfis og þá er öflugt ungmennaverkefni, Roots & Shoots, búið að festa rætur í 100 löndum um allan heim. 100.000 ungmenni taka þátt í því og leggja sitt af mörkum í náttúru- og umhverfisvernd. „Ungt fólk er fljótt að aðlagast breyttum lifn- aðarháttum og þessari hugsun um að það sé hægt að koma breytingum áleiðis – og reyndar líka fullorðnir. Tilgangur minn með öllum mín- um ferðalögum er að gefa fólki von og að fólk grípi til aðgerða því það skiptir öllu.“ Þú virðist sjálf vongóð meðan margir um- hverfisverndarsinnar eru svartsýnir og segja jafnvel að það sé of seint að snúa þróuninni við – skaðinn sé skeður og jörðinni verði ekki bjarg- að. Af hverju ertu vongóð? „Það verður of seint ef við bregðumst ekki hratt við og ef við höldum áfram á þeirri braut sem við erum á í dag. Ef við fáum ekki nógu marga til að gera breytingar á sínum lifn- aðarháttum og ef við getum ekki fengið fyr- irtæki til að breyta stefnu sinni í umhverf- ismálum og upprætt spillingu í tengslum einstakra fyrirtækja og ríkisstjórna – jú, þá verður það of seint. En það er ennþá hægt að breyta þessu. Og það unga fólk sem ég hef kynnst í Roots & Shoots og er til í að bretta upp ermarnar og gera heiminn að betri stað – það gerir mann vongóðan. Það sem þetta unga fólk hefur áork- að nú þegar er nokkuð mikilfenglegt og þeir sem eru í dag orðnir fullorðnir og ólust upp við að taka þátt í þessum sellum segja að þetta hafi breytt hugsunarhætti þeirra fyrir lífstíð. Þetta gerir mig vongóða. Þá hef ég líka mikla trú á mannsheilanum. Mannsheilinn getur nefnilega gert ótrúlegustu hluti og þegar fólk hefur viljann til að gera eitt- hvað höfum við séð ótrúlegustu hluti gerast. Staðir á jörðinni sem mennirnir hafa eyðilagt – þeir hafa verið glæddir lífi á ný þótt það verði kannski ekki eins og það var áður. En fólkið sem neitar að gefast upp ræðst á þessi vanda- mál.“ Síðast en ekki síst nefnir Jane Goodall sam- félagsmiðlana sem öflugt tæki. Enginn þurfi að upplifa sig einan með sín hugðarefni og áhyggj- ur. „Áður fyrr upplifði fólk sig kannski eitt. Það hafði áhyggjur af velferð ákveðinna dýrateg- unda, segjum sem dæmi leðurblakna eða skjaldbakna. Í dag er hægt að fara á samfélags- miðlana og finna annað fólk sem þykir líka vænt um leðurblökur og skjaldbökur, mynda hópa og sellur og vinna í sameiningu að verndun þeirra. Ákvarðanir sem þessar breyta heiminum og þetta lætur fólki finnast það gera gagn.“ Heldurðu að Íslendingar geti breytt ein- hverju og að hverju ætti þjóð í norðri að vera að einbeita sér? „Það sem Íslendingar ættu að leggja áherslu á er að skilja hvernig þeirra daglega líf hefur áhrif á gang mála á fjarlægum stöðum. Vörur sem fluttar eru til landsins – kemur barna- þrælkun eða umhverfisspjöll þar við sögu? Hugsið um hversu mikið tvö börn á ykkar heimili nota af auðlindum jarðar – það er kannski jafnmikið og 10 afrísk börn. Og það er hægt að safna peningum til að styrkja verndun jarðarinnar; umhverfisins, manna og dýra. Mikilvægast er að gera sér grein fyrir að manns eigin lífsmynstur hefur afleiðingar fyrir aðra í heiminum.“ Ástandið býður ekki upp á slökun með simpönsunum Saga Jane Goodall með simpönsunum sínum í Afríku er ótrúleg en til Afríku fór hún í fyrsta skipti aðeins 23 ára gömul eftir að hafa orðið ástfangin af þessum heimshluta í gegnum sög- ur á borð við Tarzan. Dýr áttu hug hennar og hjarta strax frá unga aldri. Fyrst lá leið hennar til Kenía þar sem hún dvaldist á búgarði vina- fólks síns. Í Kenía kynntist hún hinum heims- þekkta fornleifa- og steingervingafræðingi Lo- uis Leaky sem hreifst af ástríðu þessarar ungu konu sem hafði safnað sér fyrir Afríkuferðinni í nokkur ár. Fyrir hans tilstuðlan fór hún að fylgjast með og rannsaka simpansa í Tansaníu og eyddi þar samanlagt um 55 árum. Þær rannsóknir vöktu brátt heimsathygli – bæði aðferðafræðin sem byggðist fyrst og fremst á að fylgjast með simpönsunum úr fjarlægð með sjónauka í byrj- un og svo smám saman í meira návígi og skrá niður athugasemdir í stílabók. Simpansarnir hættu smám saman að forðast Jane og eftir tvö ár fóru þeir að treysta henni og nálgast. Meðal tímamótauppgötvana Jane Goodall var að simpansar geta nýtt sér verkfæri til mataröfl- unar en áður var talið að aðeins maðurinn hefði hæfileika til að nýta sér tól og tæki. Leaky hvatti Goodall til að mennta sig meira og fékk hún inngöngu í doktorsnám í Cambridge án þess að hafa lokið grunnháskólaprófi. Í því námi tók hún að sjálfsögðu fyrir simpansana en simpansar eru búnir mikilli lærdómsgáfu og Ekki staður né stund til að slá slöku við Það er Jane Goodall kappsmál að nýta hverja mínútu til að hvetja fólk til aðgerða til bjargar jörðinni. Þessi goðsagna- kenndi náttúru- og dýraverndunarsinni sem varð heimsfræg fyrir rannsóknir á simpönsum er á leiðinni til Íslands. Blaðamaður Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Það er auðvelt að hrífast af og með Jane Goodall en þrátt fyrir mikla ástríðu og baráttuanda býr hún yfir einhvers konar innri ró sem maður ímyndar sér að einhver öðlist eftir að dvelja langdvölum í nánum tengslum við náttúru og villt dýr. Þrátt fyrir að tala við fjölmiðla og fólk um allan heim, allan ársins hring, er hún jafngefandi sem þetta væri hennar fyrsta viðtal.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.