Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 19
12.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Moskvu. Í lok vetrar gat ég gert tíu upphífingar
og pabbi vildi fara að kaupa jakkann. Ég af-
þakkaði og sagði að þetta hefði verið góður lær-
dómur.“
Sprengjubrot í kinninni
Faðir hans tók þátt í stríðinu í Tsjetsjeníu þar
sem hann bjargaði lífi eins hermanns. Fyrir það
fékk hann medalíu fyrir hetjuskap. Þeir lentu í
sprengju og bar faðir hans hermanninn á öxl-
inni í skjól. Sjálfur tók hann ekki eftir því að
hann var með stórt sprengjubrot í kinninni sem
náði í gegn og skagaði út úr gómnum. Það var
ekki fyrr en seinna að hann var að fá sér að
snæða að hann fann svo mikið járnbragð að
hann uppgötvaði það. „Hann er algjör harð-
nagli,“ segir Arsen og dregur fram mynd af
honum í símanum sínum. Myndin er af manni
með dökk sólgleraugu, hermannahúfu og jakk-
inn er hlaðinn medalíum. „Hann lítur út eins og
Rambó,“ segir Arsen og hlær.
Kokkur eða geimfari
Arsen á tvo hálfbræður hvorn frá sínu foreldri.
Annar bróðir hans býr líka á Íslandi. „Ég kom
hingað 22. september 2009, ég gleymi því ekki.
Ég kom hingað til að hjálpa bróður mínum sem
hafði búið hér í nokkur ár. Ég vildi líka safna
peningum og fór þá að vinna á Argentínu en ég
hafði þá unnið í eldhúsi í 18 ár. Ég hafði lært til
bakara í Lettlandi í konditori. En ég vildi vinna
sem kokkur en ekki bakari en það er mjög erf-
itt að komast í það nám í Lettlandi,“ segir Ar-
sen sem lærði þá til bakarans en eftir átta tíma
skóladag stökk hann alltaf inn í eldhúsið hjá
kokkunum og spurði hvort hann mætti vera
með. „Ég þurfti að vera í eldhúsinu. Pabbi minn
og afi voru líka kokkar. Afi minn bjó í Kákasus
þar sem hann var frægur matreiðslumeistari.
Hann eldaði oft fyrir toppana í Komm-
únistaflokknum. Frændur mínir áttu líka veit-
ingastaði þarna,“ segir hann og nefnir fleiri
frændur sem eru kokkar. „Þegar ég var krakki
var bara tvennt sem kom til greina. Annað
hvort að verða kokkur eða geimfari, þetta
dreymdi mig um. En það var of erfitt að verða
geimfari,“ segir hann og hlær.
Eldaði fyrir Svíakonung
„Þannig að ég vann í eldhúsi frá því að ég hætti
í skólanum. Eftir að ég kláraði bakaranámið fór
ég beint að vinna við að elda í Ríkisóperunni í
Riga í Lettlandi. Þarna eldaði ég ýmislegt og
meðal annars fyrir Svíakonung. Ég var þá ný-
útskrifaður. Ég vann þar aleinn og átti að baka
kökur, gera samlokur og steikur, allt saman.
Geturðu ímyndað þér hversu margir koma í óp-
eruna? Á daginn var það hádegismatur og svo
undirbúningur en lokað var fyrir eldhúsið
snemma kvölds vegna sýninga. Ég lærði heil-
mikið þarna, eldhúsið var mjög lítið og ég lærði
að skipuleggja mig vel. Veitingastaðurinn var
frábær með antíkhúsgögnum úr fínasta viði,“
útskýrir Arsen.
Atvinnuboxari í mörg ár
Eftir vinnuna í Ríkisóperunni fór Arsen að
vinna á stóru hóteli í tvö ár en fór þá til Eng-
lands þar sem hann vann í hóteleldhúsi næstu
tvö árin. Hann sneri þá aftur til Lettlands og
vann um stund sem barþjónn í spilavíti og á
veitingastað. Þá ákvað hann að taka sér hlé frá
matargerð og fór að huga að hinu áhugamálinu
– að boxa. Hann gerðist atvinnuboxari næstu
fjögur árin og keppti víða alþjóðlega. „Þetta
sport er hluti af lífi mínu þannig að þegar ég
kom til Íslands fann ég stað og nú þjálfa ég í
mínum frítíma. Ég er með hóp af krökkum og
einn af mínum nemendum hefur tvisvar unnið,
eitt sinn sem Íslandsmeistari,“ segir hann stolt-
ur.
Hann hætti að vinna sem boxari því það gaf
ekki nóg í aðra hönd. „En boxið hefur hjálpað
við að byggja upp þann karakter sem ég er í
dag, að gefast ekki upp,“ segir hann.
Matreiðslunemi ársins
Þegar Arsen kom til Íslands var hann ekki tek-
inn gildur sem kokkur þrátt fyrir skírteinið úr
konditori-skólanum og 15-16 ára reynslu af
kokkamennsku. „Þeir sögðu þetta ekki það
sama og að ég ætti að taka sveinspróf og ég
ákvað að fara í MK að taka sveinspróf í kokk-
inum. Þar voru einkunnir mínar metnar frá
Lettlandi. Ég komst strax upp á þriðja ár og út-
skrifaðist með hæstu einkunn í bekknum og var
valinn matreiðslunemi ársins,“ segir Arsen sem
vann á Argentínu á þessum tíma og fram til
2013. „Þá fór ég í smá ferðalag um matariðn-
aðinn í Reykjavík. Ég fór að vinna á Grillmark-
aðnum í ár og og annað ár í Fiskifélaginu.
Þarna lærði ég heilmikið sem ég setti í reynslu-
bankann,“ segir hann.
Næst stefnir hann á nám í haust í við-
skiptafræði við Háskóla Íslands. „Mig langar
að nota það sem ég kann í matariðnaðinum og
læra viðskiptafræðina til að jafnvel geta selt
einhverja nýja afurð, ég veit það ekki enn. Mig
langar bara að læra það,“ segir hann og hyggst
vera í námi með vinnu. „Vinnan verður í for-
gangi en ég ætla að reyna að gera þetta með.
Svo ætla ég að taka meistarann í matreiðslu og
líka í bakaranum,“ segir Arsen sem er hvergi
nærri hættur að mennta sig.
Ætlar að komast á toppinn
Í fyrra tók Arsen þátt í keppninni um kokk árs-
ins og komst í tíu manna úrslit. „Mér finnst það
nokkuð gott miðað við útlending sem kom hing-
að aðeins fyrir sex árum. Ég fékk mörg góð
„komment“ en þeir sögðu að ég þyrfti að æfa
mig meira. Þetta var fyrsta keppnin mín og ég
var auðvitað stressaður. Ég ætla að keppa aft-
ur. Og aftur og aftur þar til ég kemst á topp-
inn,“ segir Arsen ákveðinn.
Hann var nú nýlega ráðinn yfirkokkur á Arg-
entínu. Hann hitti eigandann sem sagðist þurfa
yfirkokk. Sá spurði Arsen hvort hann þekkti
einhvern. „Hvað meinarðu? Mig!“ sagðist hann
hafa svarað og var ráðinn með því svari.
Arsen hefur mikinn metnað fyrir því að gera
staðinn að framúrskarandi veitingahúsi. „Ég er
að bæta staðinn og sýna fólki að þessi staður er
enn til og mun verða það um ókomin ár,“ segir
Arsen og bætir við að kúnnarnir séu farnir að
streyma inn. Hann fékk til liðs við sig allt nýtt
starfsfólk með sér. „Það er fullkomið fyrir mig.
Þá er fólk ekki fast í sínu. Mín sýn er að fólk fari
aftur að koma á Argentínu og við fáum að sýna
okkar færni. Steikurnar eru alltaf í aðal-
hlutverki en við erum með marga forrétti sem
við erum að eyða miklum tíma í að þróa. Við er-
um með fjögurra rétta matseðil sem við erum
að gera núna,“ segir hann en einn af kokkunum
hjá honum er gamall vinur hans frá Riga í Lett-
landi. „Ég hef þekkt hann síðan ég var tólf ára.
Hann kom hingað til Íslands hálfu ári á eftir
mér. Hann er lærður kokkur frá Lettlandi en
ég ætla núna að hjálpa honum að taka sveins-
prófið hér.“
Ísland er landið mitt
Arsen er ánægður með lífið á Íslandi. „Það er
miklu betra lífið hér. Þetta land hefur gefið mér
meira á sex árum en Lettland gerði öll tuttugu
árin þar á undan. Ég get ekki sagt neitt um
Rússland því það er í raun mitt föðurland og ég
get ekki sagt neitt slæmt um það.“
Það tók hann töluverðan tíma að fá leyfi til að
fá að vera hér og síðar til að gerast íslenskur
ríkisborgari. Það tókst að lokum og hann er al-
sæll. „Ég er Íslendingur,“ segir hann og brosir.
„Dóttir mín talar rússnesku en íslensku miklu
betur. Ég vil tala við hana rússnesku svo hún
geti talað við ömmur sínar,“ segir hann en móð-
ir hans er einmitt á leið í heimsókn. Hún kemur
reglulega en Arsen hefur ekki tekist að fá föður
sinn í heimsókn enn.
Arsen sér fram á góða tíma á Íslandi. „Hér
hef ég hlotið góða menntun, hér á ég vini. Flest-
ir Íslendingar eru opnir og hjálpsamir og ham-
ingjusamir. Þetta er landið mitt og ég ætla að
hjálpa til við að byggja upp það sem ég get. Það
sem er á mínu valdi. “
’ Ég þurfti að hlaupa 5-6 kíló-metra með handlóð í hvorrihendi og byrði á bakinu. Hannsagðist hafa gert þetta þegar
hann var sjö ára. Ég vildi þetta
ekki og bað um að fá að fara
aftur heim til mömmu. Hann
sagði að ég væri búinn að búa
þar nógu lengi, nú skyldi ég búa
hjá honum og hann ætlaði að
gera mann úr mér.
Alta2 heyrnartækin frá Oticon búa yfir einstakri tækni sem
kallast BrainHearingTM. Þessi tækni hjálpar heilanum að
vinna betur úr hljóði þannig að þú upplifir það eins eðlilega
og hægt er. Með Alta2 heyrnartækjum verður auðveldara
fyrir þig að heyra og skilja, hvort heldur sem um lágvært
samtal er að ræða eða samræður í krefjandi aðstæðum.
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
Sími 568 6880
www.heyrnartaekni.is
Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74
104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta
Einstök tækni – frábær hljómgæði
Prófaðu þessi
heyrnartæki í 7 daga