Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2016 MATUR Ég held alltaf upp á afmælið mitt og þaðhefur þróast þannig að ég býð alltafstelpnahópi. Þetta hafa ekkert alltaf verið sömu stelpurnar en nú lá það beinast við að fá þennan fjallaskokkshóp,“ segir Ragnheiður. „Við erum að hlaupa tvisvar í viku upp á fjöll. Það er alveg hrikalega gam- an í þessum hópi en konurnar eru héðan og þaðan. Við höfum verið að kynnast smátt og smátt og nú erum við alltaf meir og meir saman,“ segir Ragnheiður, en hópurinn ber nafnið Fjallaskokk. Þessar fótfráu konur hlaupa á fjöll nánast allt árið en taka sér þó hlé yfir myrkustu mánuði ársins. „Það er ekkert grín að hlaupa á fjöll í myrkri, það er bara ekki hægt,“ segir hún og hlær. Dreymir um ítalskan veitingastað Ragnheiður er alltaf með ítalskt þema í af- mælisveislum sínum og upplýsir að hana dreymi um að opna ítalskan veitingastað í Toskana í ellinni. Hún æfir sig því í ítalskri matargerð þegar tækifæri gefst. „Þetta er orðin hefð hjá mér. Þeir eru svo sumarlegir þessir réttir og höfða vel til kvenna. Mér finnst svo gaman að hafa marga rétti svo hægt sé að maula fram eftir kvöldi; sitja lengi við borðið. Svo þurfa þeir ekkert allir að vera heitir og þá getur gestgjafinn líka setið og notið en þarf ekki að hlaupa fram að ná í meiri sósu. Svo er bara að hafa nógu mikla ólífuolíu og brauð og vera að dýfa í og narta.“ Allar fóru heim með verðlaun Til að krydda enn frekar upp á kvöldið var á dagskránni afhending verðlauna og viður- kenningarskjala, en Ragnheiður segir að þær hafi hingað til verið svo óheppnar að fá aldrei útdráttarverðlaun sem gjarnan eru veitt í hlaupum. „Við vorum orðnar frekar svekktar yfir þessu þannig að konurnar fengu númer og hlupu tíu kílómetra og fóru svo í pottinn í Vesturbæjarlauginni áður en þær komu í veisluna. Við vorum þá með okk- ar eigin verðlaun til að tryggja að við fengj- um einhvern tímann verðlaun!“ segir Ragn- heiður og hlær. Fjallaskokkskonurnar fóru því heim alsælar, pakksaddar og með gjafir í farteskinu. Konurnar í Fjallaskokk hlupu tíu kílómetra fyrir veisluna og mættu ferskar og flottar til Ragnheiðar. Ítalskt þema fjallaskokkara Ragnheiður Stefánsdóttir, fjallaskokkari og mannauðsstjóri, heldur alltaf upp á afmælið sitt í vinkvennahópi. Að þessu sinni bauð hún konum sem leggja í vana sinn að skokka á fjöll. Borðið svignaði undan ítölsku góðgæti. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Mér finnstsvo gaman aðhafa marga réttisvo að hægt sé að maula fram eftir kvöldi; sitja lengi við borðið. Svo þurfa þeir ekkert allir að vera heitir og þá getur gestgjafinn líka setið og notið en þarf ekki að hlaupa fram að ná í meiri sósu. Svo er bara að hafa nógu mikla ólífuolíu og brauð og dýfa í og narta. Fyrir 4 1 kúla mozzarellaostur (150 gr) 4 stórir tómatar 10 basilblöð, skorin smátt 2 msk ólífuolía salt og svartur pipar Skerið tómata og ostinn í sneiðar og raðið á disk. Hellið ólífuolíu yfir og síðan basilnum. Saltið og piprið eftir smekk. Mozzarellasalat Ferskur aspas og hleypt egg Fyrir 4 500 g ferskur grænn aspas 4 egg 2 msk edik smjörklípa salt og pipar Skerið u.þ.b. 2-3 cm af harð- ari endanum á aspasnum af. Setjið vatn í pott og látið suðuna koma upp. Smá salt í pottinn og sjóðið aspasinn í 2-5 mín., fer eftir þykktinni. Setjið helling af vatni og edik í annan pott og látið suðuna koma upp. Hrærið í vatninu þannig að það verði smá hreyfing á því. Brjótið eggin út í, eitt og eitt í einu. Látið sjóða í 3 mín og veiðið eggin upp úr eitt og eitt í einu og leggið yfir aspasinn. Setjið smjörklípu yfir og saltið og piprið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.