Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Blaðsíða 29
12.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Fyrir 4
1 hunangsmelóna
70 g hráskinka
1 poki klettasalat
1 msk balsamikgljái
2 msk ólífuolía
20 g parmesanostur
Setjið klettasalatið á disk.
Skerið melónuna í bita og rað-
ið ofan á klettasalatið. Rífið
hráskinkuna ofan á. Hellið
ólífuolíu yfir og að lokum rífið
parmesanostinn og stráið yfir
allt.
Hráskinka með melónu,
klettasalati og parmesanosti
Morgunblaðið/Ófeigur
Arndís Björnsdóttir, Unnur Árnadóttir, Inga Hrönn Pálmadóttir,
Steinunn Anna Hannesdóttir, Berglind Björg Harðardóttir, Ragn-
heiður Elín Stefánsdóttir, Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Arna Torfadótt-
ir, Ragnhildur Helgadóttir, Rebekka Stefánsdóttir, Hugrún Ósk
Óskarsdóttir og Arna Hansen voru sáttar með ítalska matinn.
Fyrir 4
5 msk. ólífuolía
2 hvítlauksrif, fínt söxuð
2 msk. steinselja, fínt söxuð
2 tsk. sítrónubörkur, rifinn smátt
400 g spagettí
4 kjúklingabringur
4 msk. hvítvín
1 poki klettasalat
salt og svartur pipar
Hrærið saman í stórri skál, 3
msk. ólífuolíu, hvítlauk, stein-
selju og sítrónubörk. Sjóðið spa-
gettíið. Skerið kjúklinginn í
strimla. Steikið upp úr ólífuolíu.
Hellið hvítvíni á pönnuna.
Látið vökva gufa upp. Saltið
og piprið eftir smekk. Setjið
kjúklinginn, spagettíið og
klettasalatið út í skálina.
Blandið saman og bragðbæt-
ið með salti, pipar og ólífu-
olíu.
Spagettí með kjúklingi, hvítlauki,
sítrónu og klettasalati
12-14 sneiðar
BOTN
200 g marsipan (ren rå)
250 g mjúkt smjör
250 g sykur
3 egg
100 g hveiti
Hitið ofninn í 160. Rífið marsip-
anið niður með rifjárni og hrærið
saman við smjör og sykur í hræri-
vél. Bætið eggjunum út í, einu í
einu og síðast hveitinu. Setjið deig-
ið í smjörpappírsklætt smellumót,
28 cm breitt og bakið í 30-40 mín.
KREM
4 blöð matarlím
5 eggjarauður
3 msk sykur
4 dl rjómi
4 msk ávaxtalíkjör eða bragðmikill
ávaxtasafi.
1 tsk vanilludropar
fersk ber eftir smekk
Leggið matarlím í bleyti í kalt
vatn. Hrærið saman eggjarauður
og sykur. Þeytið rjóma og gætið
þess að léttþeyta hann. Bræðið
matarlímið í vatnsbaði eða í ör-
bylgjuofni og bætið víni eða
ávaxtasafa út í. Blandið eggjahrær-
unni saman við rjómann. Hellið
matarlímsblöndunni út í ásamt
vanilludropum og hrærið saman.
Smyrjið kreminu ofan á og skreyt-
ið með berjum.
Marsipankaka með
rjómakremi og berjum
BAZAAR
RESTAURANT
BAR
BISTRO
CAFÉ
KARAOKE
Hringbraut 121
REYKJAVÍK
WWW
bazaaroddsson.is
HAPPY HOUR
ALLA DAGA
MILLI
16-18
SÍMI
+354
5193510
BRUNCH ALLA
LAUGARDAGA OG
SUNNUDAGA
frá 11.30 til 15.00