Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Page 26
MATUR Nýjasta tískan í kaffidrykkju felur í sér að setja út í það klípu af ósölt-uðu smjöri og dass af MCT-olíu. Þessu er blandað saman í blandara
og útkoman er freyðandi kaffidrykkur. Kallast drykkurinn Bulletproof.
Skothelt kaffi
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2016
Fyrir 4
4 pönnukökur, gott er að nota pönnukökudeig frá Vilko
250 g jarðarber
4 stk. Mars súkkulaði
vanilluís
heit Kjörís karamellusósa
Bakið pönnukökurnar og hafið þær í þykkari kantinum.
Kljúfið Mars súkkulaðið í tvennt langsum. Setjið
pönnuköku á disk og raðið tveimur Mars helmingum á
hana. Hitið í örbylgju í 30-40 sekúndur eða þangað til
að Marsið er farið að bráðna aðeins. Setjið síðan skor-
in jarðarber í smáhaug á pönnukökuna. Bætið síðan
við þremur litlum matskeiðum af vanilluís og hellið
karamellusósu yfir. Brjótið pönnukökuna saman og
njótið.
Mars fylltar
pönnukökur
Nú er kominhelgi ognammidag-
ur víða um land. Þá
er tilvalið að bjóða
upp á sykursæta
eftirrétti sem hægt
er að vippa fram úr
erminni með lítilli
fyrirhöfn. Annars
vegar fáum við eftir-
rétt úr kókósmjólk,
eplum og kókósboll-
um og hins vegar
Mars fylltar pönnu-
kökur. Hvort tveggja
er borið fram með
vanilluís. Þessir rétt-
ir eru tilvaldir til að
gera heima eða í
sumarbústaðnum og
munu slá í gegn hjá
sætindagrísum.
Óskar Finnsson sýndi í nýj-
asta þætti af Korter í kvöld-
mat hvernig ætti að búa til
Eggs Benedict. Hér kennir
hann okkur að gera tvo sykur-
sæta og einfalda eftirrétti sem
hægt er að útbúa á mjög
skömmum tíma.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir
Óskar galdrar fram tvo ljúffenga eftirrétti.
Morgunblaðið/Ásdís
Sykursætt í
eftirmat
Fyrir 4
4 lítil granny smith græn epli
1 dós kókosmjólk
4 kókosbollur
heit Kjörís karamellusósa
vanilluís
Afhýðið eplin og skerið í 2 cm
bita. Setjið 3-4 msk. af kara-
mellusósunni á pönnu og hitið.
Setjið eplabitana út í sósuna og
látið krauma í eina mínútu.
Hristið vel kókosmjólkur-
dósina, opnið og hellið út á
pönnuna og látið malla í 3 mín-
útur. Setjið allt í eldfast mót og
raðið kókosbollunum sem búið
er að skera endilangt í sundur
ofan á og látið súkkulaðihjúp-
inn snúa niður. Setjið undir
grillið í ca 1 mín. eða þangað
til að þetta verður fallega
brúnt. Berið fram með van-
illuís.
Heitur kókosepladesert
Þú færð öll hráefnin
úr þáttunum hjá okkur