Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Síða 34
Rínardalurinn og
Rotterdam
Lestarferð snýst um meira en bara að komast hratt á milli staða.
Það á sérstaklega við þegar farið er með lest um hluta af Rínardalnum
enda ævintýralegir smábæir og kastalar úti um allt.
Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
S
tarfsmaður Deutsche
Bahn var búinn að vara
mig við en líkt og sann-
ur Íslendingur yppti ég
bara öxlum og missti út
úr mér á íslensku „Þetta reddast“.
Furðulostinn seldi hann mér miða
og skildi ekkert í því hvað ég var
rólegur yfir öllu saman. Í stað þess
að kaupa örlítið dýrari miða til Rot-
terdam með einni skiptingu og
spara mér nærri því tvo og hálfan
tíma í ferðalag ákvað ég að spara
mér tíu evrur og veðja á skilvirkni
þýska járnbrautarkerfisins.
Þrjár skiptingar og tvær mjög
tæpar voru nú í hættu þegar til-
kynnt var í fyrstu lestinni, sem tek-
in var frá Darmstadt, að hún væri
sex mínútum á eftir áætlun til Ma-
inz en þar höfðu mér verið áætlaðar
fimm mínútur til að skipta um lest.
Allt leit út fyrir að veðmálið væri að
tapast því alveg sama hvernig dæm-
ið var sett upp, ég var ekki að fara
að vinna upp þessa einu mínútu sem
upp á vantaði.
Gott að hafa varaáætlun
Í gjörsamlega vonlausri stöðu hugs-
aði ég að þetta hlyti að reddast, það
var svo mikið í húfi. Miðann keypti
ég nefnilega ekki út af verðinu, þó
að það hafði ekki skemmt fyrir. Ég
rak augun í að ódýrasti miðinn og
sá sísti að mati starfsmanns þýsku
járnbrautanna beindi mér á ferð
minni í gegnum Rínardalinn, eitt-
hvað sem dýrari miðarnir gerðu
ekki. Þangað hafði ég aldrei komið
en alltaf langað að fara. Með smá-
heppni átti þetta allt að ganga og
verða skemmtileg ferð um einstakt
svæði, þakið fallegum smábæjum og
köstulum.
Til vara vissi ég af svokallaðri
ICE lest í Mainz en þær fara hrað-
ar yfir og stoppa á færri stöðum.
Alla jafna hljómar það vel en ekki
þegar farið er í gegnum Rínardal-
inn. Þar á að fara hægt yfir og taka
inn eins mikið af því sem svæðið
hefur upp á að bjóða.
Eins og að vinna í lottói
Loksins þegar lestin mín rann í hlað
á aðallestarstöðinni í Mainz sá ég
hvar Düsseldorf-lestin sat enn á
sínum stað við brautarpall á hinum
enda lestastöðvarinnar. Í annað
sinn á sama deginum hafði hið
fræga þýska lestarkerfi klikkað á
nákvæmninni. Hvað olli töfinni veit
ég ekki en mikið var ég feginn.
Núna var hins vegar að duga eða
drepast, vera ákveðinn út úr Darm-
stadt-lestinni og hlaupa þvert yfir
lestarstöðina. Í minningunni hljóp
ég rosalega hratt og man að ég
hugsaði að Usain Bolt ætti varla roð
í mig á þessari stundu en með 10 kg
tösku á bakinu, í gallabuxum,
skyrtu og einföldum götuskóm má
draga þá ályktun að hraðinn hafi í
besta falli verið viðunandi. Ég náði
þó lestinni minni og ef sigurtilfinn-
ingin var ekki þegar í toppi bættist
ofan á gleðina gluggasæti. Byrjunin
lofaði því góðu en ég vissi svo sem
allan tíman að þetta myndi reddast.
Rínardalurinn
Eina eftirsjá mín er að hafa ekki
gefið mér meiri tíma á þessu fallega
svæði. Á einstaka stöðum gafst tími
til að teygja úr sér og stökkva út í
sólina en sjaldnast lengur en nokkr-
ar mínútur í senn. Á einum stað
dokaði lestin við lengur en það var í
borginni Koblenz. Hún virðist í
fyrstu ekki vera stór en íbúafjöldinn
er álíka og í Reykjavík.
Lestarferðin um Rínardalinn var
vel þess virði þó ferðatíminn til Rot-
terdam hefði lengst um nærri því
Þeir sem hafa tíma ættu að ferðast um Rínardalinn með bát.
Koblenz er áhugaverð borg og tilvalið að eyða t́íma í henni, skoða sig um og borða á góðum veitingastað.
Gamlir kastalar og fallegir bæir eru alls staðar við ána og upp á hæðum.
Rotterdam er falleg að kvöldlagi og gaman að fá sér göngutúr um borgina.
FERÐALÖG Líkt og Rínardalurinn er Móseldalurinn gífurlega fal-legur en bæði svæði eru þekkt fyrir vínframleiðslu
og má þá m.a nefna hin frægu Fritz Haag vín.
Vínframleiðsla
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2016
Sjá útsölustaði á www.heggis.is
SILKIMJÚKAR
hendur