Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2016, Qupperneq 45
12.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Tónlist Tónleikaserían Grapevine Grassroots
hefur aftur göngu sína um helgina, en fyrstu
tónleikar sumarsins verða klukkan 20.00 á
Húrra á morgun, sunnudag. „Ég held að þetta
verði frábær vettvangur fyrir tónlistarfólk til
að stíga fram og láta ljós sitt skína. Það er
mikil spenna í kringum þetta og kraftur í
samstöðunni,“ segir Hrefna Björg Gylfadótt-
ir, einn skipuleggjandi tónleikanna, í samtali
við sunnudagsblaðið. Um er að ræða þrenna
tónleika í sumar þar sem nýir tónlistarmenn
verða kynntir til leiks. Dagskráin annað
kvöld er fjölbreytt og fimm hljómsveitir spila
þar auk þess sem þrjú ljóðskáld koma fram.
Kraftur í samstöðunni
Hrefna Björg hlakkar til að sjá
tónlistarfólk láta ljós sitt skína.
Hinn víðkunni leikari Johnny
Depp, sem við sáum nú síðast á
hvíta tjaldinu í hlutverki klikkaða
hattarans í myndinni Alice thro-
ugh the Looking Glass, selur um
þessar mundir málverkasafn sitt á
uppboði, en það er talið vera
milljóna dollara virði. Þetta gerir
hann í aðdraganda þess að hann
og leikkonan Amber Heard skilja,
en skilnaðurinn er sagður munu
kosta Johnny Depp formúu á vef
People Magazine, þar sem Johnny
Depp er sagður einn ríkasti mað-
ur Hollywood um þessar mundir á
meðan Amber Heard er lýst sem
rísandi stjörnu.
Meðal þeirra listaverka sem
verða til sölu á uppboði Depp er
safn málverka eftir hinn virta
bandaríska listamann Jean-Michel
Basquiat, sem Depp hefur í mikl-
um metum. Hann hyggst losna
við níu málverk eftir Basquiat
sem hann hefur sankað að sér
undanfarin 25 ár. Flest málverk-
anna málaði Basquiat árið 1981,
sjö árum fyrir andlát hans.
„Ekkert getur komið í staðinn
fyrir hlýjuna og tafarleysið í ljóð-
rænu Basquiats, né heldur í stað-
inn fyrir algildu sannindin og
spurningarnar sem hann varpar
fram,“ er haft eftir Depp, sem
virðist ekki eiga auðvelt með að
láta verkin af hendi. „Jafnt fallega
sem truflandi tónlistin í verkunum
hans, hljómharkan sem er falin í
þögnum hans ræðst á skilningar-
vit okkar og mun lifa langt fram
eftir síðasta andardrátt okkar,“
bætir hann við á ljóðrænum nót-
um.
Amber Heard fór fram á skiln-
að við Depp 23. maí síðastliðinn
og fór þar fram á makalífeyri frá
Depp, en leikarinn er talinn vera
virði um 450 milljóna Bandaríkja-
dala. Lögfræðingar telja góðar lík-
ur á að Amber fái sínu framgengt
auk þess sem hún gæti átt inni
sinn skerf í sameiginlegum tekjum
hjónanna þá 15 mánuði sem þau
voru gift. Hjónin gerðu ekki með
sér kaupmála þegar þau giftust.
Johnny Depp er einn ríkasti maðurinn í Hollywood um þessar mundir.
AFP
SKILNAÐUR AMBER HEARD OG JOHNNY DEPP
Selur málverka-
safnið á uppboði
Amber Heard fór fram á skilnað í
maí síðastliðinn.
AFP
Írskfæddi Bretinn Rich-
ard David James, betur
þekktur undir lista-
mannsnafninu Aphex
Twin, tilkynnti það á dög-
unum að stuttskífan
Cheetah kæmi út 8. júlí
næstkomandi. James hef-
ur marga fjöruna sopið
en frá því að breiðskífan
Selected Ambient Works 85-92 kom út árið 1992 hef-
ur kappinn verið meðal fremstu manna í elektrósen-
unni í Bretlandi. Hann er einn helsti áhrifavaldurinn
innan sýruteknósenunnar sem og IDM-senunnar auk
þess sem hann er annar stofnenda Rephlex Records
sem sérhæfir sig í elektrótónlist.
Það var þó ekki fyrr en platan Come to Daddy kom
út árið 1997 sem James fór að vekja athygli þeirra
sem fylgdust ekkert sérlega grannt með elektrósenu
Breta. Tónlistarmyndband var einmitt skotið við
fyrsta lag plötunnar, „Come to Daddy“, en því leik-
stýrði breski vídeólistamaðurinn Chris Cunningham
og hlaut mikið lof fyrir. Gaman er að segja frá því að
Cunningham skaut myndbandið á sama stað og
Stanley Kubrick tók flestar senur kvikmyndarinnar
A Clockwork Orange. Samstarf James og Cunning-
ham hélt áfram að blómstra en árið 1999 gaf sá fyrr-
nefndi út lagið „Windowlicker“ og skaut sá síðar-
nefndi tónlistarmyndband við lagið. Lagið náði
sextánda sæti breska vinsældalistans og er það þar
með vinsælasta lag kauða fram til þessa dags.
Tónlistarmyndbandið, sem er einkar skemmtilegt og
allir hvattir til að kynna sér, hlaut einnig tilnefningu á
Brit-verðlaunahátíðinni ári síðar sem besta mynd-
band ársins. Þá unnu þeir einnig saman að vídeóverk-
inu Rubber Johnny sem vakti mikla athygli árið 2005.
Cunningham hefur leikstýrt tónlistarmyndböndum
fyrir fleiri hljómsveitir en þar ber helst að nefna Port-
ishead og Björk.
Þrátt fyrir að hafa legið í dvala í nokkur ár hefur
James gefið út ógrynni laga og platna en þar ber helst
að nefna breiðskífurnar Drukqs og Syro en sú síðar-
nefnda var útnefnd besta platan í dans- og elektró-
flokki á Grammy-verðlaunahátíðinni árið 2015. Plat-
an Cheetah mun innihalda sjö lög og verður hægt að
nálgast plötuna á vínyl, geisladiski, kassettu auk ým-
issa stafrænna leiða en meðal annars verður hægt að
hala henni niður á MP3-formi, WAV-formi og FLAC-
formi. davidmar@mbl.is
APHEX TWIN MEÐ PLÖTUNA CHEETAH
Elektróundrið
ber ávöxt
Myndbönd Cunningham eru mörg hver ansi skrautleg.
Aphex Twin hefur aðeins gefið út
sex breiðskífur en ógrynni smá-
skífna, stuttskífna og laga.
´ ´
TM